Dagblaðið Vísir - DV - 27.10.2015, Page 30
26 Fólk Vikublað 27.–28. október 2015
Tónninn verður
að vera hreinn
Þ
átturinn verður með frekar
svipuðu sniði en við lærðum
helling í fyrra. Það eina er
að þátturinn hefur elst – eða
jafn mikið og við sjálf,“ segir
Unnsteinn Manuel Stefánsson, sem
mun stjórna nýrri þáttarröð af Hæp
inu ásamt Katrínu Ásmundsdóttur
en fyrsti þáttur fer í loftið á miðviku
daginn.
Kafa djúpt
Í Hæpinu er fjallað um málefni sem
brenna á ungu fólki. „Reglan hjá
okkur er að enginn þáttur á að vera
eins. Við ætlum að leyfa okkur að
kafa dálítið djúpt í afmörkuð efni
og sjáum hvort það virkar eða ekki.
Við verðum með fimm þætti fyrir
áramót og sex eftir áramót. Fyrsti
þátturinn fjallar um allar þess
ar netbylgjur ungu femínistanna
og þar er af nógu að taka. Hliðar
sagan er svo hvort eitthvað sé að í
samfélaginu því sannleikurinn er
sá að það er ekki komið eins fram
við konur og karla á Íslandi frekar
en annars staðar í heiminum,“ seg
ir Unnsteinn og játar því að hafa
lengi verið femínisti. „Ég verð ekki
hræddur þegar talað er um femín
isma og varð ekki síður femínisti
út af umræðunni í samfélaginu.
Við verðum alltaf að vera í sjálfs
skoðun því skoðanir fólks litast af
samfélaginu og ef tónninn í samfé
laginu er ekki hreinn getum við ekki
alið upp fólk sem setur sig í spor
annarra. Það er eitthvað að í samfé
lagi sem setur stúlkurnar sínar út í
lífið með einhvers konar krossalista
yfir hluti sem þær eiga að forðast
svo þeim sé ekki nauðgað. Það er
nokkuð ljóst að nú þurfa ungir karl
menn að taka við keflinu af ungu
femínistunum og hefja umræðu um
þessi mál.“
Nett, fræðsla og væmið
Unnsteini er umhugað að fjalla um
það sem lítið er talað um. „Það er
meira spennandi. Við viljum samt
ekki vera fræðsluþáttur heldur
kafa ofan í hlutina frá sjónarhorni
ungs fólks. Vonandi verðum við
skemmtilegur spegill á samtímann.
Við hugsum þetta sem þríhyrning.
Nett er efst; það sem er flott, niðri
til vinstri er fræðslumynd og niðri
til hægri er væmið. Við viljum lenda
ofarlega í þríhyrningnum og ná til
fólks með mannlegu „elimenti“ en
líka fræða en án þess að predika.“
Æðislegar raddir
Þótt Unnsteinn sé söngvari hljóm
sveitarinnar Retro Stefson er hann
meiri sjónvarpsstjarna en tónlistar
stjarna þessa dagana því auk Hæps
ins er hann einn af fjórum þjálfur
um í söngþættinum The Voice.
Hann segist hafa gaman af því að
vinna í sjónvarpi. „Þetta er mjög
mikil vinna en það er svo gaman
að skora á sig. Undanfarna mánuði
hefur mesta vinnan farið í Hæpið
en núna förum við að hitta krakk
ana í The Voice. Það verður gam
an að byrja að æfa með þeim,“
segir hann og játar aðspurður að
hæfileikarnir í þáttunum hafi kom
ið honum á óvart. „Heldur betur.
Þar sem við erum á Íslandi hélt
ég að maður myndi þekkja helm
inginn af þátttakendum en raunin
var sú að þarna kom margt fólk með
æðislegar raddir sem ég hafði aldrei
séð áður,“ segir hann en neitar því
að hafa þegar fundið sigurvegara
keppninnar. „Þetta er ennþá jafnt.
Við erum að vinna með söngvurun
um í hverri viku og þeir eru að þró
ast mikið og kenna mér mjög margt
í leiðinni. Þetta er bara rosalega
gaman.“ n
indiana@dv.is
Unnsteinn Manuel Stefánsson og Katrín Ásmundsdóttir byrja aftur með Hæpið„Það er eitthvað að
í samfélagi sem
setur stúlkurnar sínar út í
lífið með einhvers konar
krossalista yfir hluti sem
þær eiga að forðast svo
þeim sé ekki nauðgað.
Unnsteinn Manuel
Unnsteinn er eiginlega
meiri sjónvarpsstjarna
en tónlistarstjarna
þessa dagana. MyNd Saga Sig
„Þetta verð-
ur einhver
tryllingur!“
Hits&tits snúa aftur á Húrra
Hits&tits er heiti á plötusnúða
dúói Margrétar Erlu Maack og
Ragnheiðar Maísólar Sturlu
dóttur. Þær eiga stóran aðdá
endahóp og eru þekktar fyrir
kátínu og stuð í hvívetna.
Fyrir utan að taka að sér
plötusnúðagigg í veislum um
allar grundir
hafa þær stöll
ur staðið fyrir
karókíkvöld
um á Húrra.
Æstir aðdá
endur stúlkn
anna hafa
þurft að bíða
með hendur
í skauti í tals
verðan tíma,
þar sem dúóið dýnamíska hefur
verið í pásu síðustu mánuði.
Blaðakona hafði samband
við Margréti Erlu og spurði
hvernig stemningin í tónlistar
herbúðum Hits&tits væri
þessa dagana, en þær eru önn
um kafnar við að undirbúa
endurkomu á Húrra fimmtu
dagskvöldið 29. október. „Við
erum að koma aftur sterkar
inn í samkvæmismenninguna,
Maísól eftir barnsburð og ég
eftir sirkussumar. Þetta er
fimmtudagurinn fyrir hrekkja
vökuna, svo fólk má alveg vera í
búningi eða með gerviblóð eða
svoleiðis. Annars verður reyk
vélin á sínum stað, og Maísól
er búin að vera að klippa kon
fettí í heila viku núna, svo þetta
verður einhver tryllingur.“ Það
er óhætt að búast við stuði og
skemmtun á Húrra eins og
alltaf þegar þessar glamúr
dömur stíga á svið.