Dagblaðið Vísir - DV - 01.09.2015, Qupperneq 2
2 Fréttir Vikublað 1.–3. september 2015
Sársauki minnkar strax
• Kaldur gelsvampur & gel
• Lækkar hita í brunasárum um 6-7 °C
• Gelsvampur helst vel á, dettur ekki af
• Tea Tree & Lavender
- sótthreinsar, róar & deyfir
• Sterílar umbúðir
Virkar á sviða og sársauka af:
sólbruna - skordýrabiti
brenninettlum - húðflúrum
laser og núningsbruna
Fæst í apótekum.
Celsus ehf. www.celsus.is
AbsorBurn®
Kælir brunasár, hratt og lengi
n Alls 161 innbrot í bíla á höfuð-
A
lls hefur verið brotist inn í
161 bíl það sem af er árinu
á höfuðborgarsvæðinu.
Um fjórðungur innbrot-
anna, 39 talsins, átti sér
stað í Breiðholti en einnig var mik-
ið um innbrot í Kópavogi, alls 33
tilkynnt innbrot. Þessi hverfi eða
bæjarfélög skera sig úr miðað við
önnur. Innbrotum er að fjölga tals-
vert miðað við undanfarin ár.
Samkvæmt upplýsingum frá
lögreglunni á höfuðborgarsvæð-
inu hefur alls 161 tilkynning um
innbrot borist til embættisins það
sem af er ári. Um helmingur tilvik-
anna, 79 innbrot, hefur átt sér stað
undanfarna þrjá mánuði, júní–
ágúst, samanborið við fimm fyrstu
mánuði ársins.
Eitt á Seltjarnarnesi
Breiðholt og Kópavogur skera sig
úr hvað varðar tíðni innbrota en
einnig er talsvert brotist inn í bíla
í Laugardalnum, 20 tilvik, sem og
í Hlíðunum, 15 tilvik. Aðeins eitt
innbrot hefur átt sér stað á Sel-
tjarnarnesi, það sem af er ári en
einnig eru fá tilvik skráð í Mosfells-
bæ, Garðabæ og Hafnarfirði.
Miðað við undanfarin ár hefur
innbrotum í bíla verið að fjölga. Í
lok september árið 2014 voru skráð
innbrot 147 talsins en árið 2013
voru þau 90 talsins á sama tíma. Þó
að þróunin hafi verið á þessa leið
síðustu ár þá er tíðni innbrota langt
frá því sem var árin 2009–2011. Til
dæmis var tilkynnt um 227 innbrot
í bifreiðar á þessum tíma árið 2011.
Öflug nágrannavarsla
Nýlega greindi DV frá faraldri í
Garðabæ sem snýr að því að farið
er inn í bíla að næturlagi, rótað og
1
39
33
27236
6
5
Seltjarnarnes
1 innbrot,
4.500 íbúar
Innbrot mIðAð
vIð íbúAfjöldA
Athyglisvert er að skoða fjölda innbrota út frá íbúafjölda en hann
virðist ekki hafa mikið að segja. Til að mynda er eftirtektarvert
hversu fá innbrot eru tilkynnt í Hafnarfirði miðað við hversu
fjölmennt bæjarfélagið er.
Breiðholt
39 innbrot
21.000 íbúar
Kópavogur
33 innbrot
34.000 íbúar
Laugardalur/Háaleiti
27 innbrot
30.000 íbúar
Miðborg/Hlíðar
23 innbrot
18.000 íbúar
Vesturbær
6 innbrot
16.000 íbúar
Garðabær
6 innbrot
15.000 íbúar
Hafnarfjörður
5 innbrot
28.000 íbúar InnbrotIn
algengust
í breIðholtI
161 innbrot í bíla
Áberandi flest inn-
brotin eiga sér stað í
Breiðholti og Kópavogi.
Björn Þorfinnsson
bjornth@dv.is
Fjölgun Innbrotum í bíla hefur fjölgað milli
ára. Mynd: pHotoS.coM
Í vímu undir stýri
Ökumaður um tvítugt sem lög-
reglan á Suðurnesjum stöðv-
aði um helgina við hefðbundið
eftirlit reyndist ekki aðeins vera
undir áhrifum fíkniefna heldur
var hann einnig með kannabis í
poka í bílnum. Hann viðurkenndi
eign sína á fíkniefnunum. Ann-
ar einstaklingur sem lögregla
hafði afskipti af var með fíkni-
efni í tóbaksdós, sem hann vísaði
lögreglumönnum á. Þetta kem-
ur fram í dagbók lögreglunnar á
Suðurnesjum.
tundurdufl
um borð
Lögreglan á Suðurnesjum lokaði
hluta Grindavíkurhafnar síðast-
liðinn föstudag þegar Skinney
SF 29 lagðist þar að bryggju með
tundurdufl innanborðs. Í tilkynn-
ingu frá lögreglu kemur fram að
starfsmenn Landhelgisgæslunnar
hafi farið um borð. Áhöfn skips-
ins yfirgaf það meðan starfsmenn
Gæslunnar fjarlægðu sprengikúl-
una. Ekki var vitað hvort hún
var virk, en Skinney hafði fengið
hana í trollið djúpt suður af Eld-
ey þar sem skipið var á humar-
veiðum.