Dagblaðið Vísir - DV - 01.09.2015, Síða 10

Dagblaðið Vísir - DV - 01.09.2015, Síða 10
Vikublað 1.–3. september 201510 Fréttir F jölmargir Íslendingar hafa, á Facebook-viðburðinum Kæra Eygló Harðar – Sýrland kallar, boðist til að veita sýrlenskum flóttamönnum aðstoð sína. Um miðjan dag í gær, mánudag, voru fylgjendur síðunnar orðnir ellefu þús- und talsins. Á sama tíma í gær höfðu um 700 manns skráð sig sem sjálf- boðaliða á einum sólarhring hjá Rauða krossinum til aðstoðar flótta- mönnum. Síðan borgarastyrjöldin hófst í Sýr- landi fyrir rúmum fjórum árum hafa um átta milljónir manna, eða um 40% þjóðarinnar, þurft að yfirgefa heim- ili sín. Þar af hafa um fjórar milljónir manna flúið landið. „Maður hefur skynjað mikla og hraða hugarfarsbreytingu varðandi þetta vandamál,“ segir Stefán Þór Björnsson, formaður flótta- mannanefndar. „Fólk hefur misjafnar skoðanir á þessu máli en af því sem ég heyri þá vill fólk sýna mannúð og Ís- lendingar vilja leggja sitt fram í lausn á þessu vandamáli þó að það sé lítið framlag í hinu alþjóðlega samhengi.“ Talan verður hærri Nefndin lagði til við ríkisstjórnina að 50 flóttamenn yrðu fengnir til Ís- lands á næstu tveimur árum. Spurð- ur hvort ekki hefði verið hægt að fá hingað fleiri flóttamenn segir Stefán Þór: „Fyrir hrun var mótuð sú stefna að taka við um það bil 25 til 30 á ári. Eftir hrunið, væntanlega sem hluta af sparnaðaraðgerðum, fór fjöldinn í 8 til 10 á hverju ári. Það sem við vildum gera í nefndinni var að koma þessu aftur í fyrra horf og í þá stefnu sem var mótuð fyrir um það bil áratug,“ segir hann. „Ég held að það liggi alveg fyrir að sú tala sem hefur verið nefnd hingað til, 50, hún verður hærri. Það er mikil umræða um þetta hjá alþingismönn- um og ráðherrum. Það skiptir miklu máli hversu miklar fjárheimildir Al- þingi getur hugsað sér að ráðstafa til þessa máls,“ bætir hann við og tekur fram að enn eigi eftir að fá fjárheimild frá Alþingi fyrir þessum 50 sem talað var um í byrjun. Sigmundur Davíð Gunnlaugsson forsætisráðherra ætlar á ríkisstjórnar- fundi í dag, þriðjudag, að leggja til að stofnuð verði sérstök ráðherranefnd um flóttamannavandann og hvernig Íslendingar geti brugðist sem best við honum. Fimm milljónir á flóttamann Kostnaður við hvern flóttamann nem- ur hátt í fimm milljónir króna á mann, að sögn Stefáns Þórs. Akureyrar- bær hefur boðist formlega til að taka við hópi, auk þess sem undirnefnd í Hafnarfirði hefur ályktað um að bær- inn taki við hópi. Þar fyrir utan er vit- að um áhuga tveggja sveitarfélaga á að taka við fólki. Velferðarráðuneytið mun á næstunni senda út bréf til allra sveitarfélaga landsins til að fá að vita hvert þeirra vill taka við fólki og þá hversu mörgum. Búist er við að fyrstu flóttamennirnir frá Sýrlandi komi hingað til lands í fyrsta lagi eftir sex til átta vikur.“ Stefán segir að móttaka flótta- manna snúist bæði um vilja og getu. „Við megum ekki taka meira en við ráðum við í einu. Það skiptir gríðar- lega miklu máli að taka vel á móti fólk- inu og hjálpa því að aðlagast íslensku samfélagi og gera það að nýtum þjóð- félagsþegnum. Ég held að til lengri tíma litið verði þetta ávinningur fyrir landið en það skiptir miklu máli að menn haldi vel á spöðunum.“ Alls hefur 451 flóttamaður komið til Íslands og hefur þeim gengið mis- vel að fá störf. „Sumum hefur geng- ið mjög vel en svo eru önnur mál þar sem þetta hefur tekið lengri tíma. Við stefnum að því að fólkið sem kem- ur hingað muni samþættast íslensku samfélagi vel.“ Sumir tala um að stjórnvöld eigi fyrst að hjálpa fátækum á Íslandi áður en farið er í það að hjálpa útlending- um. Hvað finnst Stefáni um það? „Ís- land er hluti af samfélagi þjóðanna. Það eru alþjóðleg vandamál sem við þurfum að taka þátt í eins og aðr- ir. Við höfum líka alþjóðlegar skuld- bindingar varðandi þróunaraðstoð. Þær fjárhæðir fara m.a. í kostnað vegna flóttamanna. Þannig að við getum eytt þessum fjármunum hér á Íslandi vegna flóttamanna eða eytt þeim erlendis,“ segir hann. n Gamli GluGGinn úr nýi GluGGinn í svo einfalt er það! súðarvoGur 3-5, reykjavík GluGGaGerdin@GluGGaGerdin.is s: 5666630 / GluGGaGerdin.is » Getum tekið á móti 800– 2.000 flótta- mönnum Björn Teitsson, upplýsingafulltrúi Rauða krossins, segir að 700 nýskráningar sjálfboðaliða sé met á einum degi. „Það ríkir mikil gleði yfir þessu á meðal Rauða kross-fólksins,“ segir Björn, sem telur að Íslendingar gætu tekið við 800 til 2.000 flóttamönnum á næstu tveimur árum í stað þeirra 50 sem talað hefur verið um. „Rauði krossinn hefur burði til að taka á móti miklu fleiri flóttamönnum en við höfum gert, sérstaklega með tilliti til þess meðbyrs sem við höfum fengið undanfarið.“ 700 sjálfboðaliðar á einum sólarhring n Íslendingar vilja sýna mannúð og taka þátt í lausn flóttamannavandans n Hröð hugarfarsbreyting Freyr Bjarnason freyr@dv.is Grátandi flótta- maður Sýrlensk konan kemur grát- andi upp úr báti með barnið sitt meðferðis á grísku eyjunni Lesbos. Björn Teitsson Björn er þakklátur fyrir stuðn- inginn frá almenningi. Vantaði vettvang fyrir hjálpsama Íslendinga Bryndís Björgvinsdóttir rithöfundur stofnaði Facebook-viðburðinn Kæra Eygló – Sýrland kallar. Hún telur að fólk sé komið með nóg af biðinni án þess að nokkuð sé að gert varðandi flóttamannavandann í Sýrlandi. „Fólk er búið að sjá sömu fréttirnar aftur og aftur án þess að nokkuð gott gerist og frétt- irnar fara bara versnandi,“ segir Bryndís. „Það þarf að sýna meiri viðbragðsflýti hér á landi við svona neyðarástandi og það sama má segja um alla Evrópu. Það er morgun- ljóst að hamfarir og stríð eiga eftir að halda áfram og þá er mjög svekkjandi að sjá allt þetta úrræðaleysi.“ Hún segist hafa stofnað viðburðinn á Facebook eftir að Þorvaldur Sverrisson skrifaði þar stöðufærslu þar sem hann sagðist geta hýst fimm Sýrlendinga og gefið þeim að borða. Hann bað Eygló Harðar- dóttur [velferðarráðherra] um að veita þeim dvalarleyfi svo það gæti búið hjá honum. „Mér datt í hug að skrifa hjá honum að ég myndi borga flugfarið fyrir flóttamennina og þá gætum við hækkað töluna úr 50 í 55,“ segir hún. „Það eina sem ég gerði var að ýta á hnappa og stofna þennan viðburð. En fyrir mikla mildi virtist akkúrat á þeim tímapunkti hafa vantað vettvang fyrir fólk að tjá sig og leggja fram aðstoð. Þetta fólk er svolítið búið að fá nóg og vill sjá raunveruleg við- brögð. Þess vegna stofnað ég viðburðinn, til að sjá hvort við gætum fengið þessa tölu til að hækka eitthvað.“ Hún gagnrýnir þá ákvörðun eða tillögu stjórnvalda að taka a móti 50 manns á tveggja ára tímabili. „Þetta þýðir að við erum að bjóða fjölskyldu að koma til Íslands eftir tvö ár. Hún þarf að bíða í flóttamanna- búðum í tvö ár áður en hún fær að koma hingað, sem er algjör óþarfi þegar við höfum öll þessi hús og allt þetta fólk sem er tilbúið að opna heimili sín. Ég held að það sé mikilvægara að koma þeim til landsins fyrst og eftir það væri hægt að finna út úr smáatriðunum,“ segir Bryndís. Sumir telja að Íslendingar eigi fyrst að einbeita sér að vandamálum heima fyrir, eins og fátækt, áður en útlendingar fái aðstoð. Þessu er Bryndís ekki sammála. „Öll samfélög, hvar sem er í heiminum, hafa einhver vandamál og það má alls staðar finna fátækt. En það þýðir ekki að öll lönd í heiminum geti ekki tekið á móti flóttafólki. Þetta þýðir líka að við viljum gefa fólki tækifæri á að geta bjargað sér. Fátækt er auðvitað líka vandamál en það er alveg hægt að skoða önnur vandamál um leið. Það er mjög ógeðfellt að sjá hvernig við höfum ákveðið að Miðjarðarhafið sé eins og eitthvert sýki í kringum kastalann okkar sem fólk á að drukkna í. Í staðinn fyrir að vera bara með ferjur þarna og flutninga sem myndi koma í veg fyrir að fólk skuli drukkna þarna,“ segir hún en á síðustu árum hafa sex þúsund flóttamenn drukknað. „Þetta er vandamál sem við verðum að taka á sem fyrst.“ Kæra Eygló Um ellefu þúsund manns höfðu um miðjan dag í gær skráð sig á Facebook-viðburðinn „Kæra Eygló Harðar – Sýrland kallar“. Hugmyndin með síðunni er að sýna stjórnvöldum að vilji sé hjá almenningi til að taka á móti enn fleiri flóttamönnum frá Sýrlandi en nú þegar hefur verið rætt um. Á síðunni hafa margir boðist til að hjálpa fólkinu á ýmsan máta. Hér eru nokkur dæmi um ummælin: Magnús Guðmundsson „Ég skal glaður fæða, klæða og greiða fyrir tómstundaiðkun barna. Við getum öll gert eitthvað.“ Sóley Stefánsdóttir „Kæra Eygló, ég vil leggja mitt af mörkum. Fatnað, mat, húsaskjól í neyð. Get líka kennt, keyrt, veitt stuðning og hlýju. Hvað sem þarf.“ Omar Al Lahham „Kæra Eygló. Þar sem ég er hálfur Sýrlendingur þá er ég tilbúinn gera allt mitt besta fyrir þetta fólk. Meira þarf maður ekki segja í svona ástandi …“ Magnfríður Ólöf Pétursdóttir: „Við getum hjálpað. Eigum föt á börn og fullorðna, yfirhafnir, skó, leikföng, rúmföt, teppi o.m.fl. Get gefið mat, tíma og umhyggju.“ Rósa Björk Gunnarsdóttir: „Kæra Eygló. Ég get verið vinur; boðið í mat, bíó, sund og hjálpað fólki við að læra á borgina. Get líka borgað fyrir flugmiða. Við þurfum að bregðast skjótt við, hver dagur getur skipt sköpum!“ Gísli Matthías Auðunsson: „Kæra Eygló – ég er tilbúinn að leggja allt af mörkum sem ég get. Er með fullt af mat sem ég gæti látið af hendi og gæti mjög líklega græjað vinnu þegar að því kæmi.“ Bryndís Björgvinsdóttir

x

Dagblaðið Vísir - DV

Beinleiðis leinki

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Dagblaðið Vísir - DV
https://timarit.is/publication/255

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.