Dagblaðið Vísir - DV - 01.09.2015, Page 11

Dagblaðið Vísir - DV - 01.09.2015, Page 11
Vikublað 1.–3. september 2015 Fréttir 11 Arður 4,6 milljarðar umfram veiðigjöldin E igendur Samherja hf. hafa greitt sér 8,3 milljarða króna í arð síðastliðin fjögur ár á sama tíma og sjávarútvegsfé- lagið hefur greitt 3,7 milljarða í veiðigjöld til ríkisins. Arðgreiðsl- ur umfram veiðigjöld nema því 4,6 milljörðum króna á tímabilinu frá og með rekstrarárinu 2011 til og með rekstrarárinu 2014. Hagnaður Sam- herja, sem er eignarhaldsfélag um eignarhluti í dóttur- og hlutdeildar- félögum sem flest tengjast sjávar- útvegi og vinnslu afurða hér á landi og erlendis, hefur á sama tímabili numið 57,5 milljörðum króna. Sam- stæðan hefur greitt 7,9 milljarða í tekjuskatt. Lægsta arðgreiðsla frá 2011 Samherji birti síðastliðinn föstudag tilkynningu um afkomu fyrir rekstrar- árið 2014 þar sem fram kom að hagn- aður samstæðunnar hafi numið 11 milljörðum króna og að greiddir yrðu 1,4 milljarðar króna í arð til hluthafa. Það er lægsta arðgreiðsla samstæð- unnar síðan árið 2011 þegar ákveðið var að greiða hluthöfum 1,3 milljarða í arð. Í fyrra voru greiddar 900 millj- ónir í veiðigjald. Veiðigjöld renna til ríkissjóðs og hafa þau verið útskýrð á mannamáli sem gjald fyrir veiðirétt og afnot af sameiginlegri auðlind þjóðarinnar. Áður hefur því verið litið til þess sem sjávarútvegsfyrirtæki greiða í veiðigjald samanborið við það sem eigendur þeirra greiða sér í arð, það sem þau greiða fyrir afnot af auð- lindinni og það sem ríkissjóður fær til baka. Þessi framsetning hefur verið gagnrýnd meðal annars með þeim orðum að veiðigjöldin séu arð- greiðslum óviðkomandi. Fleiri þætti mætti einnig skoða í þessu samhengi og hafa fyrir- tæki eins og Síldarvinnslan talað um skattaspor sitt, sem sé framlag fyrirtækisins til samfélagsins í formi skatta og opinberra gjalda. Með af- komutilkynningum sínum fylgja gjarnan upplýsingar um hversu mik- ið fyrirtæki hafa greitt í tekjuskatt. Greitt 7,9 milljarða í tekjuskatt Þegar tekjuskattsgreiðslur Sam- herja hf. eru skoðaðar samkvæmt til- kynningum samstæðunnar og árs- reikningum kom í ljós að á árunum 2011–2014 greiddi Samherji sam- tals 7,9 milljarða króna í tekjuskatt. Það er samt um 400 milljónum krón- um lægri upphæð en arðgreiðslur til hluthafa á tímabilinu. Séu hins vegar heildartölur veiðigjalda og tekju- skattsgreiðslna Samherja á tímabil- inu lagðar saman má sjá að ríkið hef- ur fengið 11,6 milljarða króna í formi veiðigjalds og tekjuskatts frá sam- stæðunni. Það má segja að betri afkoma Samherja á undanförnum árum endurspeglist í arðgreiðslum til eigenda. Til samanburðar þá námu arðgreiðslur á árunum 2007–2010 „aðeins“ rúmum 2,9 milljörðum alls og náðu aldrei rjúfa milljarðsmarkið á þessum fjórum rekstrarárum, eins og síðan hefur verið. Félagið á milljarða Eins og sjá má á meðfylgjandi töflu þá eru stærstu hluthafar Samherja hf. annars vegar Eignarhaldsfélag- ið Steinn ehf., sem er í eigu forstjór- ans Þorsteins Más Baldvinssonar og fyrrverandi eiginkonu hans Helgu. S. Guðmundsdóttur, og svo hins vegar Kristján V. Vilhelmsson, fram- kvæmdastjóri útgerðarsviðs Sam- herja. Ljóst er að þessir hluthafar, sem og aðrir minni, hafa notið góðs af góðri afkomu Samherja á undan- gengnum árum. Samkvæmt síðasta ársreikningi Steins ehf., fyrir árið 2013, kom fram að hagnaður þess það ár nam 862,3 milljónum króna og að eigið fé félagsins í árslok nam rúmlega 2,9 milljörðum króna á móti sáralitlum skuldum. Félagið fékk greiddan arð frá Samherja hf. að fjárhæð 791,6 milljóna króna og frá Samherja Ís- land ehf. að fjárhæð 65,4 milljóna. Þrátt fyrir þetta var ákveðið að út- hluta ekki arði á árinu 2014 vegna ársins 2013. Eigendur Granda á grænni grein HB Grandi hf. er ásamt Samherja eitt af allra stærstu sjávarútvegs- fyrirtækjum landsins. Til samanburð- ar þá kemur fram í ársskýrslum félags- ins, sem DV skoðaði aftur í tímann, að arðgreiðslur til hluthafa á árun- um 2011 til 2015 hafi numið samtals rúmum 7,8 milljörðum króna. Á sama tíma hefur HB Grandi greitt rúmlega 4,3 milljarða króna í veiðigjöld til ríkis sjóðs. Eigendur HB Granda hafa því fengið ríflega 3,4 milljarða í arð- greiðslur umfram það sem fyrirtækið hefur greitt í veiðigjöld á tímabilinu. HB Grandi hefur á tímabilinu greitt rúma 4,6 milljarða króna í tekjuskatt til ríkisins. Framlag fyrirtækisins í formi veiðigjalds og tekjuskatts nem- ur því 8,9 milljörðum. HB Grandi er sem kunnugt er skráð á markað í Kauphöll Íslands en langstærsti hluthafinn er Vogun hf. með 33,51% hlut. Vogun er í eigu Hvals hf. sem aftur er í eigu Kristjáns Loftssonar, stjórnarformanns HB Granda. Kristján situr á tugum milljarða Vogun hf. á einnig stóran hlut í Hampiðjunni, en samkvæmt árs- reikningi félagsins fyrir árið 2014 nam hagnaður þess tæpum 3,5 milljörð- um króna á síðasta ári. Ljóst er að Vogun er gríðarsterkt félag fjárhags- lega þar sem eigið fé þess nemur 20,8 milljörðum króna á móti skuldum við Landsbankann upp á tæpar 350 millj- ónir. Ákveðið var að greiða ekki arð út úr Vogun fyrir síðasta rekstrarár. n n Eigendur Samherja fengið 8,3 milljarða í arð á 4 árum n Félag forstjórans á milljarða Arður til eigenda 2011-2014 Arður til eigenda 2011-2014 Veiðigjöld 2011-2014 Veiðigjöld 2011-2014 Tekju- skattur 2011-2014 Tekju- skattur 2011-2014 8 .3 0 0 m ill jó ni r 3. 70 0 m ill jó ni r 7. 9 0 0 m ill jó ni r 7. 8 0 0 m ill jó ni r 4 .3 0 0 m ill jó ni r 4 .6 0 0 m ill jó ni r Stærstu hluthafar í Samherja hf. Eignarhaldsfélagið Steinn: 33,74% - Eigendur: Þorsteinn Már Baldvinsson, forstjóri Samherja, og Helga S. Guð- mundsdóttir. Kristján V. Vilhelmsson: 33,4% - Framkvæmdastjóri útgerðarsviðs Samherja Fjárfestingaf. Fjörður ehf.: 13,85% - Eigendur: Eignarhaldsfélagið Steinn ehf. (50%) Bliki ehf.: 10,94% - Eigendur: FramInvest Sp/f (28,6%) Erlent félag, upplýsingar um eignarhald liggja ekki fyrir. Samherji hf.: 6,47% Kolbrún Ingólfsdóttir: 1,04% Hluthafalisti skv. ársreikningi fyrir rekstrarárið 2013 Sigurður Mikael Jónsson mikael@dv.is Mala gull með Samherja Þorsteinn Már Baldvinsson og Kristján V. Vilhelmsson eru meðal stærstu hluthafa Samherja hf. Þeir hafa hagnast gríðarlega á ágætri afkomu samstæðunnar á um- liðnum árum, sem gerir henni kleift að greiða eigend- um milljarða á milljarða ofan í arð. Mynd VIKudaGur.IS Eignir upp á tugi milljarða Kristján Loftsson á í gegnum Hval hf. félagið Vogun hf. sem aftur á stærsta hlutann í HB Granda. Samkvæmt nýjasta ársreikningi Vogunar á það eigið fé upp á 20,8 milljarða króna.

x

Dagblaðið Vísir - DV

Direct Links

If you want to link to this newspaper/magazine, please use these links:

Link to this newspaper/magazine: Dagblaðið Vísir - DV
https://timarit.is/publication/255

Link to this issue:

Link to this page:

Link to this article:

Please do not link directly to images or PDFs on Timarit.is as such URLs may change without warning. Please use the URLs provided above for linking to the website.