Dagblaðið Vísir - DV - 01.09.2015, Síða 12
12 Fréttir Vikublað 1.–3. september 2015
Holskefla af hvimleið-
um Facebook-vírusum
Mikilvægt að vera með daglega uppfærða vírusvörn
S
vo virðist sem að holskefla af
vírusum á Facebook herji á
notendur samfélagsmiðilsins.
Vírusinn lýsir sér í því að til
kynning berst um að vinur hafi sett
inn myndband þar sem fórnarlambið
er „taggað“. Myndbandið virðist nokk
uð svæsið og ef smellt er á hlekkinn, af
forvitni eða fyrir mistök, sendir vírus
inn sig áfram á fjölmarga á vinalista
viðkomandi. Svo virðist sem send
andinn hafi ekki hugmynd um þessa
hvimleiðu sendingu. Nokkrar útgáfur
af þessum vírus virðast vera í gangi því
stundum er þeim deilt beint á veggi
fórnarlamba en einnig berast slík skila
boð í gegnum einkaskilaboð. Far
sælasta lausnin er einföld, virk vírus
vörn.
„Fólk þarf að vera með virkar vírus
varnir á tölvunum sínum, það er lykil
atriði. Hins vegar er líka mikilvægt að
fólk sé vart um sig, ýti ekki á grunsam
lega hlekki og treysti ekki öllu sem berst
í tölvupósti. Það er hins vegar landlægt
kæruleysi varðandi vírusvarnir hér
lendis. Það er ekki nóg að kaupa vírus
vörn ef hún er ekki uppfærð. Það er að
mínu mati nauðsynlegt að vera með
aðgang að daglegri uppfærslu á vírus
vörnunum,“ segir Marinó G. Njálsson
upplýsingaöryggisráðgjafi.
Marinó hefur orðið var við þessa
fjölgun vírusa á Facebook: „Þetta er
aðallega hvimleitt en í einhverjum til
vikum eru slíkir vírusar að reyna að
ná í einhverjar upplýsingar. Ef sá sem
smellir á myndina er með vel uppfærða
vírusvörn þá ætti tölva hans að koma í
veg fyrir að vírusinn dreifi sér.“ n
Vírusar Flestir hafa orðið varir við hvim-
leiða hlekki á samfélagsmiðlum.
Enginn er óhultur Forseti Íslands varð
fyrir því óláni að fá slíkan vírus á Face-
book-vegg sinn.
Stýra ljósastaurum í
Þýskalandi frá Íslandi
Íslenska fyrirtækið Rational Network teygir anga sína víða í Evrópu frá Egilsstöðum
V
ið erum með höfuðstöðvar
á Egilsstöðum og skrifstofur
í Noregi,“ segir Þröstur Jóns
son, rafmagnsverkfræðing
ur og eigandi fyrirtækisins
Rational Network sem teygir anga
sína víða um Evrópu og sérhæfir sig í
hönnun tölvubúnaðar sem notaður er
til að fylgjast með orkunotkun og stýr
ingu rafeindabúnaðar.
„Það má segja að starfsemi okkar
sé tvískipt. Annars vegar er um grunn
starfsemi fyrirtækisins að ræða þar
sem markmiðið er að ná niður orku
kostnaði í byggingum. Hitt er svo
verkefni sem hefur verið styrkt af
Tækniþróunarsjóði Rannís en það er
sprottið upp úr langri reynslu okkar
á sviðinu þar sem þróuð hefur verið
ákveðin gerð af stýritölvum til að auð
velda orkusparnað og eins stjórnun á
byggingum, heimilum, götulýsingu og
öðru.“
Stjórna ljósastaurum í
Þýskalandi og Bandaríkjunum
„Jú, við byrjuðum með verkefni fyrir
nokkrum árum þar sem við stýrum
birtunni frá tilteknum ljósastaurum
í Þýskalandi og Bandaríkjunum. Við
stjórnum þannig götulýsingu og get
um til dæmis aukið birtuna á götum
bæjarins þegar sjúkrabílar keyra um
með slasað fólk á sjúkrahús.“
Í dag einblínir fyrirtækið hins vegar
aðallega á orkusparnað í opinberum
byggingum, skólum og verslunarsetr
um. „Við höfum staðið að uppsetn
ingum á sólarsellum í þremur skólum
í Belgíu til að mynda. Þar settum við
upp búnað sem getur fylgst með öllu
ferli og skráir niður upplýsingar. Það
er verkefni sem hefur verið styrkt af
Evrópusambandinu. Þessir skólar eru
nánast sjálfbærir hvað rafmagn varðar
nema þegar það er skýjað eða dimmt.
Síðan selja þeir alla umfram fram
leiðslu á netinu.“
Þröstur nefnir önnur lönd í
þessu sambandi en fyrirtækið hef
ur einnig unnið að verkefnum á Ís
landi, í Luxemborg, Hollandi, Noregi
og Bretlandi. „Við erum til dæmis með
nokkrar stórar byggingar í Canary
Wharfviðskiptahverfinu í London.“
Öll stýringin í gegnum Ísland
„Öll stýringin fer í gegnum Ísland. Við
stýrum þessu frá Egilsstöðum og það
an í gegnum tölvur hjá Advania og þá
til til bygginganna erlendis.“ Líkja megi
starfsemi Rational Network við heild
sala sem smásalar vinni síðan með í
hverju landi.
Hann segir að um ákveðinn geira
sé að ræða sem fari ört stækkandi en
sé lítt þekktur hér á landi. „Þetta er
ákveðið konsept sem fer ört vaxandi og
heitir á ensku Internet of things (IoT).“
Með því er átt við að allur sá tækjabún
aður sem í kringum okkur er myndi
með sér net til að tala saman og skipt
ast á gögnum og upplýsingum. Er IoT
meðal helstu viðfangsefna Rational
Network en Þröstur segir að fyrirtæki á
borð við Google, Microsoft og IBM ætli
sér stóra hluti í þeim efnum.
Þess má geta að Jeremy Rifkin, einn
af efnahagsráðgjöfum ESB og Andreu
Merkel, talar um innkomu IoT í hinu
nýja hagkerfi heimsins sem tekur við
af hagvaxtarhagkerfinu sem nú er.
Aðspurður segir Þröstur fyrirtækið
ekki hafa einblínt á íslenskan markað.
„Við höfum aðallega verið að einbeita
okkur að alþjóðlegum markaði. Það
gæti þó breyst í framtíðinni.“ n
Birna Guðmundsdóttir
birna@dv.is
Sólarrafhlöður á
þökum „Við höfum
staðið að uppsetningum
á sólarsellum í þremur
skólum í Belgíu.“
Þröstur Jónsson
Hannar tölvubúnaðar
til að fylgjast með
orkunotkun og stýr-
ingu rafeindabúnaðar
í heiminum.„Við stjórnum
þannig götulýsingu
og getum til dæmis aukið
birtuna á götum bæjarins
þegar sjúkrabílar keyra...
Um 20 milljónir
búnar að safn-
ast fyrir Abdul
Stærstu fjölmiðlar veraldar hafa
fjallað um pennasölumanninn
Abdul sem Gissur Símonarson
aðstoðaði
Hátt í tuttugu milljónir króna
hafa safnast fyrir Abdul Hamim
og börnin hans tvö, Reema, 4 ára,
og Abdalla, sem er níu ára.
Það var Íslendingurinn Gissur
Símonarson sem birti átakan
lega mynd af Abdul, sem er þrjá
tíu og fimm ára Sýrlendingur, að
selja penna á götum Líbanons,
á samskiptavefnum Twitter. Og
viðbrögðin létu ekki á sér standa.
Hann safnaði 145 þúsund dollur
um á fjórum dögum..
Abdul segir í viðtali við NBC
fréttastöðina í Bandaríkjunum að
hann hafi reynt að selja ýmislegt
í þau þrjú ár sem hann hefur ver
ið á flótta, en pennar virtust vera
það eina sem gengi.
Abdul vann í súkkulaðiverk
smiðju í Yarmouk í Líbanon sam
kvæmt CNN.
Abdul segir sjálfur að féð
muni auðvitað koma að gagni.
„Ég vil ekki að dóttir mín sé á göt
unni og ég vil að sonur minn fái
að stunda nám, það er allt sem ég
vil,“ segir Abdul sem bendir á að
það séu 1.500 flóttabörn á götum
Líbanons. „Og megi þau, hvert
og eitt, verða jafn heppið og ég,“
bætir hann við.
Gissur vinnur nú ásamt hjálp
arstarfsmönnum við að tryggja
öryggi Abduls og koma fénu til
hans. Yfir fimm þúsund gáfu
flóttamanninum pening fyrir til
stilli Gissurar, sem opnaði fjáröfl
unarsíðu fyrir Abdul og fjölskyldu
um leið og hann fann fyrir áhug
anum.
Allir helstu fjölmiðlar verald
ar hafa fjallað um þessa ótrúlegu
söfnun sem hefur ekki síst varpað
átakanlegu ljósi á flóttamanna
vandann í Sýrlandi og nágrenni.
E
F
LI
R
a
lm
an
na
te
ng
s l
/
H
N
O
T
S
K
Ó
G
U
R
g
ra
f í
s k
h
ön
nu
n
Lágmúla 9 • 108 Reykjavík • Sími 581 3730 • jsb@jsb.is • www.jsb.is
Velkomin í okkar hóp!
Viltu léttast, styrkjast og losna úr vítahringnum?
Staðurinn - Ræktin
Innritun hafin á fyrstu
TT námskeið haustsins!
Alltaf frábær
árangur á TT!
Ný TT námskeið hefjast 30. ágúst
Nánari upplýsingar
í síma 581 3730 og á jsb.is