Dagblaðið Vísir - DV - 01.09.2015, Blaðsíða 14
Vikublað 1.–3. september 201514 Fréttir
Slitastjórn fer fram á 10
milljarða tryggingasjóð
n Eitt prósent af eignum í sjóð til að tryggja skaðleysi n Gæti hætt verði tillagan felld
S
litastjórn Glitnis fer fram á að
kröfuhafar búsins samþykki
ályktun um að settur verði á
fót sérstakur sjóður í evrum
að jafnvirði um tíu milljarða
króna í því skyni að tryggja slitastjórn
skaðleysi vegna hugsanlegra mál
sókna í tengslum við ákvarðanir og
störf hennar. Sjóðurinn væri nýttur til
að standa straum af ýmsum kostnaði
sem gæti fallið á meðlimi slitastjórn
ar vegna mögulegra málshöfðana eft
ir að slitameðferð lýkur. Hann á að
nema 1% af heildareignum búsins,
sem var 981 milljarður króna um mitt
þetta ár, og líftími sjóðsins gæti verið
allt að tíu ár.
Þetta kemur fram í gögnum sem
Glitnir sendi til kröfuhafa slita
búsins á miðvikudaginn í síðustu
viku vegna þeirra tillagna sem verða
teknar fyrir á kröfuhafafundi hinn 8.
september næstkomandi og DV hef
ur undir höndum. Steinunn Guð
bjartsdóttir, formaður slitastjórnar
Glitnis, segist í samtali við DV ekki
útiloka að slitastjórnin muni segja
sig frá störfum ef kröfuhafar fallist
ekki á slíka tryggingu fyrir skaðleysi
þeirra. Auk Steinunnar á Páll Eiríks
son sæti í slitastjórn Glitnis.
Umfangið fordæmalaust
Fjármunir sjóðsins gætu einnig verið
notaðir til að tryggja skaðleysi starfs
manna Glitnis, núverandi og fyrrver
andi, auk ráðgjafa slitastjórnarinnar
ef til þess kemur að slík málshöfðun
muni ná til þeirra. Ráðgjafar
slitastjórnar Glitnis sem þar um ræð
ir eru bandaríska fyrirtækið Moelis
& Company og breska ráðgjafafélag
ið Talbot Hughes & McKillop (THM).
Steinunn segir að slíkt skaðleysi til
handa meðlimum slitastjórnarinn
ar vegna starfa við slitameðferðina
sé í samræmi við það sem tíðkast í
flestum öðrum löndum. Í ljósi þess
fordæmalausa umfangs og flækju
stigs sem leiðir af uppgjöri Glitnis þá
bendir hún á að það væri „fullkom
lega óeðlilegt að setja einstaklinga í
þá stöðu“ að eiga hættu á að ósáttir
kröfuhafar – eða þriðji aðili – geri kröf
ur á hendur þeim persónulega. „Við
verðum að hafa í huga að kröfuhafar
Glitnis eru skráðir í 52 löndum og lög
sögum,“ segir Steinunn. Gríðarlegur
kostnaður gæti því fallið á slitastjórn í
tengslum við slíka málshöfðun.
Óttast málsóknir
Á kröfuhafafundi Glitnis munu
kröfu hafar jafnframt kjósa um álykt
un þess efnis að þeir samþykki að
veita meðlimum slitastjórnarinn
ar ábyrgðarleysi vegna krafna sem
þeir kunna að eiga á hendur henni
vegna ýmissa ráðstafana þeirra,
meðal annars greiðslu stöðug
leikaframlags til stjórnvalda, við
gerð nauðasamnings. Slík ályktun,
verði hún samþykkt af meirihluta
kröfuhafa á fundinum, verður hins
vegar ekki bindandi fyrir þá kröfu
hafa sem kunna að greiða atkvæði
gegn því að veita slíkt ábyrgðarleysi.
Þeir gætu því látið reyna á rétt sinn
eftir greiðslu stöðugleikaframlags
og í kjölfarið lok slitameðferðar með
samþykkt nauðasamnings.
Í umsögn slitastjórnar Glitn
is við frumvarp um breytingar á
lögum um fjármálafyrirtæki sem
var samþykkt á Alþingi 3. júní síð
astliðinn, í tengslum við aðgerð
ir stjórnvalda til að liðka fyrir gerð
nauðasamnings fallinna fjármála
fyrirtækja, var gagnrýnt að tiltekn
ir kröfuhafar gætu verið óbundnir
af ákvörðun kröfu hafafundar um að
veita slitastjórn ábyrgðarleysi. Kröf
uhafar gætu þannig meðal annars
átt rétt á því að höfða mál – á Íslandi
eða erlendis – á hendur slitastjórn
armeðlimum persónulega vegna
greiðslu stöðugleikaframlagsins.
Vilji kröfuhafar forðast það að greiða
39% stöðugleikaskatt á eignir bús
ins verða þeir að samþykkja að inna
af hendi stöðugleikaframlag og ljúka
nauðasamningum fyrir árslok. Stöð
ugleikaframlag Glitnis felur í sér
framsal á innlendum eignum að fjár
hæð um 210 til 260 milljarða króna,
miðað við bókfært virði þeirra, en
endanlegt verðmæti eignanna kann
hins vegar að reynast talsvert meira.
Efnahags og viðskiptanefnd féllst
ekki á það með slitastjórnum föllnu
bankanna að svipta þá kröfuhafa,
sem kynnu að greiða atkvæði gegn
ályktun um ábyrgðarleysi, heimild til
að reyna á rétt sinn gagnvart meðlim
um slitastjórnar. Þá var bent á það í
áliti meirihluta nefndarinnar að sam
kvæmt gildandi lögum gæti meirihluti
kröfuhafafundar tekið „ákvörðun um
skaðleysi og/eða tryggja slitastjórn
skaðleysi vegna mögulegra málsókna
vegna ákvarðana eða starfa hennar, ef
til þeirra kemur.“
Ekki samstaða meðal kröfuhafa
Steinunn bendir á að kröfuhafar séu
stór hópur og því „erfitt að segja til
um“ hvort þeir muni allir samþykkja
ályktun um ábyrgðar og skaðleysi
til handa meðlimum slitastjórnar
Glitnis. Aðspurð hvort það komi
til álita að slitastjórnin hætti störf
um ef ekki fæst samþykki kröfuhafa
um að tryggja skaðleysi þeirra með
eignum búsins segir Steinunn að
„það verði metið þegar þar að kem
ur. En vissulega getur það komið til
greina.“
Samkvæmt heimildum DV er ekki
samstaða um það á meðal kröfu
hafa Glitnis að fallast á þær tillögur
sem slitastjórnin hyggst óska eft
ir vegna lausnar undan ábyrgð og
skaðleysis. Líklegt þykir að einhver
hópur kröfu hafa – þó að hann verði í
miklum minnihluta – muni greiða at
kvæði gegn því að veita slitastjórninni
ábyrgðarleysi. Þá er sú skaðleysis
trygging sem slitastjórnin hefur farið
fram á – að setja 10 milljarða af eign
um búsins í sérstakan tryggingasjóð –
meiri að umfangi en allir kröfuhafar
geti sætt sig við. n
„Það væri „fullkomlega óeðlilegt að
setja einstaklinga í þá stöðu“ að eiga
hættu á að ósáttir kröfuhafar – eða þriðji aðili
– geri kröfur á hendur þeim persónulegaSlitastjórn Glitnis Páll Eiríksson og Steinunn
Guðbjartsdóttir, formaður slitastjórnar.
Hörður Ægisson
hordur@dv.is
Kr
in
gl
an
Kr
in
gl
um
ýr
ar
br
au
t
Miklabraut
Miklabraut
Við
erum
hér!
Tilb
oð
17 10 bitar fyrir 4-5
5 Stórir bitar og 5 minni. Stórt hrásalat og kokteilsósa.
Stór af frönskum og 2l. Pepsi.