Dagblaðið Vísir - DV - 01.09.2015, Qupperneq 16
Vikublað 1.–3. september 201516 Fréttir Erlent
n „Tröllaverksmiðja“ áróðurstæki rússneskra stjórnvalda n Tilbúnar bloggfærslur
Pútín kePPir um
Birna Guðmundsdóttir
birna@dv.is „Hún vann
á tólf tíma
vöktum í sér
stakri bloggdeild
og skrifaði færsl
ur fyrir tilbúna
einstaklinga.
hug unga fólksins
Snoppufríð
Fink fjallar
Mortal Kombat
Stillir upp bardaga
milli Pútíns og
helsta illmennis
tölvuleiksins
Í
atvinnuauglýsingum er fátt annað
gefið upp en að leitað sé að fram-
kvæmda- eða ritstjóra á skrifstof-
ur sem staðsettar eru í lítt þekktu
hverfi Sankti Pétursborgar í Rúss-
landi. Mánaðarlaunin eru óvenju há.
Vel hæfir umsækjendur eiga þó
tækifæri á hvort tveggja farsæld og
frama í starfi enda um starfsvettvang í
töluverðum blóma að ræða. Vel skrif-
andi einstaklingar geta komið skörp-
um og þjóðræknum athugasemdum
á framfæri í bloggum um fegurð-
arráð, spádóma, veiði eða ljósmynd-
un. Hægt er að úthúða bandarískum
og úkraínskum stjórnvöldum með
því að birta af þeim kjánalegar mynd-
ir og myndbönd á samfélagsmiðlum.
Ef enskukunnátta viðkomandi er góð
og pólitísk hollusta mikil er jafnvel
möguleiki á að koma að hatursfull-
um athugasemdum á stórum miðl-
um vestrænna ríkja.
Þeir allra bestu fá tækifæri til að
búa til myndbönd um ofurhetjur,
brjóstaaðgerðir eða hvað sem er þar
sem móðgunum í garð erlendra leið-
toga er smeygt inn í annars hlutlausa,
jafnvel nördalega, umfjöllun.
Í umfjöllun The Guardian segir
að umræddur vettvangur, Tröllaverk-
smiðjan (The Guardian; troll factory),
sé áróðurstæki rússneskra stjórn-
valda þar sem „atvinnutröll“ kapp-
kosta að lofa ríkjandi stjórnar far á
internetinu. Um er að ræða vaxandi
grein í efnahagslegri lægð Rússlands
þar sem hundruð ungs fólks starfa
enda mánaðarlaunin hærri en geng-
ur og gerist og vinnutíminn einkar
þægilegur.
Afhjúpaði starfsemi
tröllaverksmiðjunnar
Starfsemin í Tröllaverksmiðju Sankti
Pétursborgar hefur verið afhjúpuð
fyrir tilstilli fyrrverandi starfsmanns
hennar, Lyudmilu Savchuk, en henni
var dæmd eina rúbla í bætur í frægu
bótamáli gegn téðum vinnustað þar
sem hún kærði fyrrverandi yfirmann
sinn fyrir óréttláta uppsögn í starfi og
vangreiðslu launa.
Savchuk, aðgerðasinni sem býr
í Sankti Pétursborg, tók að sér starf
í fyrirtækinu í tvo mánuði með það
í huga að afhjúpa vinnubrögð tröll-
anna. Síðan lögsótti hún fyrirtækið,
sem opinberlega ber heitið Internet-
Rannsóknir, og þvingaði það út úr
skugganum og inn í réttarsal.
„Ég er mjög ánægð með sigurinn,“
sagði hún eftir að dómur var upp
kveðinn. „Ég náði markmiði mínu
sem var að sanna að tröll eru til. Það
var mitt helsta markmið.“
Eftir dómsuppkvaðningu var full-
yrt að starfsemi fyrirtækisins væri
hætt en Savchuk hefur látið í ljós
Rafport ehf • Nýbýlavegur 14 • 200 Kópavogur • S: 554-4443 • rafport.is
Fermax mynd-
dyrasíma kerfi
er bæði fáguð
og flott vara
á góðu verði
sem hentar
fyrir hvert
heimili. Hægt
að fá með eða
án myndavélar
og nokkur útlit
til að velja um.