Dagblaðið Vísir - DV - 01.09.2015, Side 23
Vikublað 1.–3. september 2015 Umræða 19
Beðið Þessi ágæti herramaður sat ekki auðum höndum þegar hann beið eftir strætisvagni í höfuðborginni á mánudag. mynd Þormar Vignir gunnarssonMyndin
1 Eiginkona Bjarna Ben viðurkennir að þau
hjón hafi skráð sig á Ashley
Madison Þóra Margrét Baldvins-
dóttir, eiginkona Bjarna Benediktssonar,
fjármálaráðherra og formanns Sjálf-
stæðisflokksins, segir í stöðuuppfærslu
á Facebook-síðu sinni að þau hjón hafi
heyrt um hinn umdeilda vef Ashley Mad-
ison árið 2008 og ákveðið að skrá sig inn
á hann fyrir forvitnissakir.
Lesið: 16.534
Ísland andspænis örlögum sínum
Þ
að er ekki hægt að segja að
við Íslendingar séum al-
gerlega ráðvillt þjóð heldur
villuráfandi á mörgum svið-
um, einkum hvað varðar stjórnmál,
efnahag og siðferði. Við núverandi
aðstæður er erfitt að vita hvað þjóð-
in vill, ef vilji er á annað borð fyrir
hendi hjá henni en ekki það sama
og reikulu þangi.
Margt bendir til þess að við lát-
um tilbúning ráða hver örlög okkar
verða í framtíðinni. Smám saman
hafa flest þjóðareinkenni verið að
hverfa eða láta undan ytri aðstæð-
um sem hafa hellst yfir okkur og við
látið gott heita. Það mætti halda að
við viljum leika á okkur hvað upp-
hefð varðar gagnvart öðrum þjóðum
og okkur sjálfum. Við virðumst ekki
vilja tengjast meginlandi Evrópu og
því sambandi sem á núna í vök að
verjast vegna þess að ekki var staðið
á verði um evrópskar hefðir eða þor-
að að sjá fram í tímann. Bjartsýnin
hefur fengið að ráða. Hún er stund-
um lítið annað en þægileg blekking
eða gunguháttur.
Helstu rök ráðamanna hér, og
reyndar fleiri, fyrir því að Ísland
tengist ekki Evrópusambandinu
hafa verið þau að fámenn þjóð fái
engu að ráða innan um stórþjóðir og
þess vegna best að standa utan dyra.
En hverju ráðum við utan evrópskra
dyra? Geta stórþjóðir ekki ráðið yfir
okkur bæði utan og innan sinna
dyra? Hverju höfum við ráðið í hinu
volduga Nato? Líklega engu. Samt
erum við félagar og fylgispektin al-
ger. Enginn íslenskur ráðamaður
hefur komið þar nálægt stöðu, þótt
ýmsa hafi eflaust dreymt um slíkt.
Margir hafa fylgjendurnir verið en
enginn hlotið umbun. Vegna þess að
hæfnin hefur verið sú að vera sam-
mála öllum ræðumönnum.
Þetta er fremur dapurleg niður-
staða einkum fyrir formenn gömlu
hægri flokkanna. Nýju flokkarnir
koma að sjálfsögðu ekki til greina,
hvorki í þessu né öðru. Þeir leika sér
bara við skottið á sér og fá fylgi fyrir
að þykjast vera á móti gömlu úreltu
flokkunum. Lengra en skottlengdina
ná þeir ekki hvað varðar stjórnmál.
Flestar tillögur frá þeim eru barna-
legar eða í mesta lagi uppfærð út-
gáfa af baráttumálum úreltu flokk-
anna.
Hvað með gömlu vinstri? Þeir
hafa bara tínt af sér róttæku fjaðr-
irnar án þess að vita hvað eigi að
gera við þær, enda duga þær ekki í
sængur sósíalismans. Hjá þeim hef-
ur hugmyndin um jafnrétti orðið
að uppsetningu á kvótakerfi. Í stað-
inn fyrir að berjast fyrir réttlæti er
kvótakerfið komið þeim á tungu.
Hugsjónin nær varla lengra en það
að koma velstæðum menntakon-
um í yfirstjórn banka eða fyrirtækja.
Stefnan er í blindgötu sem hún
kemst ekki úr. Þá gildir einu hvort
hún kallar sig Vinstri græna, Sam-
fylkingu, Pírata eða Bjarta framtíð.
Undir nafnayfirborðinu blundar
blaður.
En nýju flokkarnir hafa fengið
til fylgis við sig hluta þjóðarinnar
sem er ráðlaus og reiður og þar af
leiðandi magnlaus þegar kemur að
vanda sem verður ekki leystur með
upphrópun: Gömlu flokkarnir eru
úreltir! Hvar er þá nýja innihaldið? Í
raun virðist það ekki vera annað en
uppáhellingur ungs fólks sem veit
ekki hvernig hellingurinn var fyrir
daga þess. Það þekkir ekki korginn
í pokanum, bragðlausu steypuna
sem hvorki eykur fjör né skapið bæt-
ir. Í gömlu auglýsingunni átti þetta
að fylgja indæla kaffisopanum áður
en landið komst í þjóðbraut og við
varðveittum fátæklegu þjóðarein-
kennin sem hefði mátt auðga með
sóma ef við hefðum átt vitra stjórn-
mála- og menntamenn í hæfilega
lokuðu landi. n
guðbergur Bergsson
rithöfundur
Kjallari
Mest lesið
á DV.is
2 Lögreglan hafði afskipti af sofandi pari í Heiðmörk
Lögreglumenn á eftirliti í Heiðmörk
höfðu afskipti af sofandi pari í bifreið
sem lagt var í bifreiðastæði á svæðinu
aðfaranótt mánudags. Við nánari
athugun lögreglu fundust ætluð fíkni-
efni í bifreiðinni.
Lesið: 8.872
3 Völli Snær ákærður fyrir skattalagabrot: Sagður
hafa svikið 18 milljónir undan
skatti Sérstakur saksóknari hefur
ákært matreiðslu- og sjónvarpsmanninn
Völund Snæ Völundarson fyrir meiri
háttar brot gegn skattalögum en málið
verður þingfest í Héraðsdómi Reykjavík-
ur á fimmtudag. Upphæðin í ákærunni
nemur tæpum 18 milljónum króna.
Lesið: 6.312
4 Árásin á Valtý Björn: Lögreglan hefur yfirheyrt
grunaðan árásarmanni Einn af
hinum grunuðu árásarmönnum sem
misþyrmdu íþróttafréttamanninum
Valtý Birni Valtýssyni á heimili hans
aðfaranótt sunnudagsins 16. ágúst
hefur verið yfirheyrður af lögreglunni á
höfuðborgarsvæðinu. Þá á lögregla eftir
að ná tali af hinum árásarmanninum en
líkt og DV greindi frá í gær þá misþyrmdu
tveir menn íþróttafréttamanninum þar
til hann missti meðvitund.
Lesið: 5.992
5 Kæra Eygló Harðar: Hjartnæm samstaða
Íslendinga á samfélagsmiðlum
Yfir tíu þúsund Íslendingar hafa skráð sig
í hóp á samfélagsmiðlinum Facebook
undir yfirskriftinni: „Kæra Eygló Harðar.“
Hópurinn er fyrir þá Íslendinga sem vilja
rétta fram hjálparhönd þegar kemur að
því að taka á móti flóttamönnum.
Lesið: 3.675
Heiða rún sigurðardóttir leikkona væri til í að vinna meira á Íslandi. – DV
Draumurinn væri að koma heim
af og til í spennandi verkefni
Bjarni Benediktsson, fjármálaráðherra, um það að ná til kjósenda. – DV
Ég byrja nú iðulega á
að líta í spegil
mundi Vondi er búinn að stofna tölvuleikjafyrirtæki í Berlín. – DV
Það var æskudraumur
hjá mér að gera þetta