Dagblaðið Vísir - DV - 01.09.2015, Page 28

Dagblaðið Vísir - DV - 01.09.2015, Page 28
Vikublað 1.–3. september 201524 Lífsstíll „Svo gaman að læra eitthvað nýtt“ Fyrstu bekkingar deila upplifun sinni af fyrstu vikunni í skólanum S umar minningar gleymast aldrei – eins og fyrsti skóla- dagurinn. Ný taska á bakið, jafnvel ný föt, húfan á haus- inn og af stað með þessa undarlegu blöndu af spennu og til- hlökkun í maga. Loksins er þessi dagur runninn upp. Loksins byrja ég í skóla. DV ræddi við nokkra káta fyrstu bekkinga sem voru að hefja sína skólagöngu víða um landið og voru allir yfir sig ánægðir með fyrstu vikuna í skólanum. n Kann alla stafina „Við vorum að læra stafina – um L en ég kann hann. Ég þarf ekki að læra neina stafi því ég kann þá alla,“ segir Haraldur Snorri Þrándarson sem er í fyrsta bekk í Ölduselsskóla. Kennari Haraldar Snorra heitir Elín. „Hún er skemmtileg,“ segir Halli aðspurður og bætir við að honum þyki mest gaman í frímínútum. „Svo finnst mér bara gaman að læra og standa á höndum. Ég kann það ekki en mig langar að læra það. Það er skemmtilegt í íþróttum. Þá förum við í ýmsa leiki. Það er öðruvísi að vera í skóla en ég sakna svolítið leikskólans. Ég veit samt að ég á eftir að fara þangað í heimsókn.“ Ekkert leiðinlegt í skólanum „Það var mjög gaman að hjóla með pabba mínum í skólann með skólatöskuna mína og ég var með nesti með mér. Það var gaman að borða nestið,“ segir Emil Gauti Haraldsson sem var að hefja sína skólagöngu í Heiðaskóla í Keflavík. Kennari Emils Gauta heitir Ingunn Rós. „Hún er mjög góð og skemmtileg.“ Aðspurður segir Emil Gauti sund og leikfimi það skemmti­ legasta í skólanum. „En það er ekkert leiðinlegt. Það er gaman að vera orðinn stór og byrjaður í skóla eins og stóru bræður mínir. Við erum öll vinir í bekknum mínum en ég á líka marga vini sem eru í hinum bekknum,“ segir Emil Gauti sem hefur þegar ákveðið hvað hann ætlar að verða þegar hann verður stór. „Ég ætla að verða fótboltamaður eins og pabbi.“ Skemmtileg- ast að perla „Mér finnst skemmtilegast að perla en leiðinlegast að fara út í frímínútum þegar það er rigning,“ segir Bríet Krista Sigþórsdóttir sem var að byrja í fyrsta bekk í Egilsstaðaskóla. Bríet segir þó skemmtilegt úti þegar veðrið sé gott. „Þá erum við lengi úti og förum á fótboltavöllinn, í kastalann og leikum með dót.“ Bríet Krista segir kennarann sinn, Elvu Rún, skemmtilegan kennara. „Hún sagði að ég væri dugleg en ég kann alla stafina og kann að lesa.“ Stóra systir Bríetar heitir Arney og er í þriðja bekk en þær systur ganga saman í skólann. „Það er gott að hafa hana með,“ segir Bríet Krista sem ætlar að verða búðarkona og sundkennari þegar hún verður stór. „Ég ætla að verða góð í sundi. Það er svo gaman í sundi.“ Gaman að læra eitt- hvað nýtt „Það var bara skemmtilegt í skólanum,“ segir Bæring Nói Dagsson sem var að hefja sína skólagöngu í fyrsta bekk í Fossvogsskóla og hafði beðið spenntur eftir fyrsta skóladeginum. „Kennarinn minn heitir Berglind og er fín og góð. Það er skemmtilegast að læra smíðar og sauma. Ég kann líka stafina og smá að lesa,“ segir Bæring Nói sem segir mun skemmtilegra í skóla en leikskóla. „Það er svo gaman í frímínútum, að fara út að leika sér, í fótbolta og róla. Svo er gaman að læra eitthvað nýtt. Það er bara ekkert leiðinlegt við skólann.“ Æðislegir krakkar „Það var bara mjög gaman og krakkarnir eru æðislegir,“ segir Kolfinna Lúðvíksdóttir, nemi í fyrsta bekk í Brekkuskóla á Akureyri, aðspurð um fyrsta skóladaginn. Kolfinna segir mun skemmtilegra í skóla en leikskóla. „Miklu skemmtilegra. Kennarinn minn heitir Ástrós og hún er mjög skemmtileg og svo eru miklu fleiri krakkar í skólanum til að leika við en í leikskólanum og svo er mjög gaman að vinna verkefni.“ Kolfinna segist kunna flesta stafina og aðeins að lesa. „En mér finnst skemmtileg­ ast úti í frímínútum nema í dag af því að það var svo mikil rigning. Ef það er sól þá fer ég í klifurtækin og brettapallana en í rigningunni er ég frekar í skjóli,“ segir hún og játar því að skólahúsið sé afar stórt. „Mjög stórt en mér finnst ekkert mál að rata. Kannski villist ég samt einhvern tímann.“ Erfiðast í vísindum „Fyrsti skóladagurinn var ótrúlega skemmtilegur. Við máttum vera í fótbolta allan daginn og við lærðum reglurnar,“ segir Skarphéðinn Gauti Ingimarsson sem var að hefja sína skólagöngu í fyrsta bekk í Melaskóla. Skarphéðni líst vel á kennarann sinn. „Af því að hún kennir mér ógeðslega vel,“ segir hann og bætir við að honum þyki skemmtilegast í stærðfræði. „En vísindin eru erfiðust.“ Skarphéðinn Gauti er einnig ánægður með skólamötu­ neytið. „Maturinn var ótrúlega góður og í frímínútunum fór ég í fótbolta og lék mér. Ég ætla að verða fótboltamaður þegar ég verð stór. Nei, ég meina knattspyrnu­ maður.“ Indíana Ása Hreinsdóttir indiana@dv.is Emil Gauti Hann býr í Keflavík. Bríet Krista Býr á Egils­ stöðum. Skarphéðinn Gauti Er í Mela­ skóla. Kolfinna Lúðvíks- dóttir Býr á Akureyri. Haraldur Snorri Er í fyrsta bekk í Ölduselsskóla. Mynd ÞorMar VIGnIr GunnarSSon Bæring nói Er í Fossvogsskóla. Mynd ÞorMar VIGnIr GunnarSSon ATN Zebra 16 Z-spjótlyfta • Fjórhjóladrifin • Diesel • Vinnuhæð: 16,4m • Pallhæð: 14,4m • Lágrétt útskot: 9,3m • Lyftigeta: 230kg • Aukabúnaður: Rafmagns- og lofttenglar í körfu. • Til afgreiðslu strax Ýmsar aðrar ATN spjót- og skæralyftur til afgreiðslu með stuttum fyrirvara.

x

Dagblaðið Vísir - DV

Direct Links

If you want to link to this newspaper/magazine, please use these links:

Link to this newspaper/magazine: Dagblaðið Vísir - DV
https://timarit.is/publication/255

Link to this issue:

Link to this page:

Link to this article:

Please do not link directly to images or PDFs on Timarit.is as such URLs may change without warning. Please use the URLs provided above for linking to the website.