Dagblaðið Vísir - DV - 01.09.2015, Qupperneq 38
Vikublað 1.–3. september 201534 Fólk
V
ið byrjum á að tala um stráka,
bólfélaga og sannleika. Við
tölum líka um aftengingu
kynlífs og djamms og erum
sammála. Bylgja hefur einu
sinni verið í föstu sambandi, en það
entist í þrjá mánuði. Hún segist ekki
vera að leita sér að manni, en væri þó
til í að stunda kynmök oftar. Þá er það
frá!
Bylgja fékk nóg um daginn. Henni
var boðið að koma á konukvöld til að
skemmta, sem hún var að sjálfsögðu
til í, þar til að í ljós kom að greiðsla
væri ekki í boði. Hún skrifaði harðorða
stöðuuppfærslu á Facebook þar sem
hún beindi meðal annars þessum orð-
um til kynsystra sinna: „Ég er alveg til
í að koma fram á kvennakvöldunum
ykkar, en hættið að vera svona ógeðs-
lega hneykslaðar þegar ég vil fá borgað
fyrir þau eins og öll önnur kvöld.“
Hún er orðin þreytt á því að fókus-
inn sé alltaf á kyn hennar þegar kemur
að gríninu. „Þarna var litið á að ég væri
í einhverri kvennaherferð og mundi
þess vegna skemmta konum ókeyp-
is. Ég er kona, en ég er ekki í neinni
herferð og auðvitað eiga konur að fá
greitt fyrir vinnuna sína.“
Tinna og Tóta
Eftir leiklistarnám í Kvikmyndaskól-
anum, þar sem Bylgju drepleiddist
allt annað en grín og breytti öllu í
prumpuhúmor, fór hún að vinna með
Önnu Hafþórsdóttur og hinar geysi-
vinsælu líkamsræktardrottningar
Tinna og Tóta urðu til. „Við heyrðum af
keppni þar sem maður gat unnið ferð
á Hróarskeldu og þyrluflug og fullt af
bjór. Við settumst niður og sömdum
fyrsta atriðið og fannst þær ansi góð-
ar. Við unnum auðvitað ekki þessa
keppni, en þær lifðu.“ Hvar eru Tinna
og Tóta í dag, eru þær að skera sig
niður eða …? Bylgja hlær og bendir á
diskinn sinn sem er fullur af amerísk-
um pönnukökum, eggjum, beikoni
og steiktum kartöflum og löðrandi í
hlynsírópi, í þokkabót er Bylgja ansi
föl um þessar mundir. „Nei, ég er alls
ekki að niðurskurði núna. Ég fékk
líka hrikaleg ofnæmisviðbrögð af allri
spreibrúnkunni, breyttist í eðlukonu
og endaði í sterakremi og einhverju
rugli. En svona er listin stundum,
fórnir nauðsynlegar.“
Þær stöllur byrjuðu að birta mynd-
böndin sín á Youtube en unnu síðar
með sjónvarpsstöðinni Bravó og Stór-
veldinu. Þær gerðu hlé á samstarfinu
þegar Anna fór í skiptinám til Banda-
ríkjanna. „Um daginn fengum við
verk efni sem var lítið myndband fyrir
brúðkaup einkaþjálfara. Eftir á áttuð-
um við okkur á því að þetta var fyrsta
launaða verkefnið okkar. Þó svo að
margir þekki Tinnu og Tótu höfum við
ekkert grætt á þeim.“
Með úlfum í baði
Bylgja segist fá flugur í hausinn, og
hún fylgir yfirleitt eftir hugmyndum
sínum. „Um daginn fékk ég hugmynd
að sjónvarpsþáttum sem heita Í baði
með Bylgju, og tók upp prufuþátt.
Þar fæ ég strákana í Úlfur úlfur í bað
með mér og Egill Helga kemur líka við
sögu.“ Hér tekur blaðamaður andköf
og brestur í mikla hvatningarræðu.
Það er brýnt að þessir þáttur komist í
almenna umferð.
„Ég kláraði bara að klippa þátt-
inn og þarf svo að selja hann eða
kynna einhvers staðar, en ég er
greinilega með einhvern athyglis-
brest. Samt er þetta ágætt, því ég
hef alls konar þekkingu og hæfileika
á ólíkum sviðum. Ég sat til dæm-
is í vinnunni um daginn og hugs-
aði með mér að það væri gaman að
kunna á úkúlele. Skömmu seinna
var ég búin að kaupa mér hljóðfæri
í næstu tónlistarbúð. Svo er ég búin
að vera ferlega dugleg að æfa mig.“
Gaman að ögra
Bylgja byrjaði að flytja uppistand fyrir
ári. Hún er mjög persónuleg í gríninu
og gerir látlaust grín að sjálfri sér. „Mér
finnst svona „oversharing“ mjög hent-
ugt fyrirbæri. Ég hef oft verið ásök-
uð um að deila of miklu, til dæm-
is um kúk og piss og blæðingar, og
fólki finnst það stundum spes. Í uppi-
standinu tek ég þetta upp á hærra
stig, ýki það ennþá meira. Það er alltaf
sannleikur í sögunum mínum því ég
gæti ekki skáldað þetta frá rótum.“
En passar grínið hennar í alla
hópa? „Ég er í pínu veseni því ég á
svo lítið af pólitískt kórréttu efni, og
efast um að píkubrandararnir mín-
ir mundu ganga á bankaárshátíðum.
Mér finnst samt ögrandi og skemmti-
legt að koma upp á svið fyrir fram-
an hóp sem ég veit að mun ekki alveg
skilja mig. Sérstaklega eldri konur –
þeim var kennt að það væri ekki einu
sinni í lagi að segja píka, svo þær hafa
mjög gaman af þessu. Þær hlæja líka
svo mikið og hátt og leyfa sér að taka
pláss.“ n
M
atarmarkaður Búrsins var
haldinn í Hörpunni um
helgina. Að þessu sinni voru
yfir 50 fyrirtæki á staðnum
sem kynntu vörur sínar, allt inn-
lenda matarframleiðslu. Það má
með sanni segja að framtakið fari
vel í borgarbúa en um helgina lagði
fjöldi matgæðinga leið sína í Hörpu-
na, smakkaði á gómsætum mat,
keypti eitthvað í gogginn og bland-
aði geði við aðra. n
Matarmarkaður Búrsins haldinn um helgina
Matur og margmenni í Hörpu
Safaríkt salat Það
jafnast fátt á við ís-
lenskt grænmeti. Nick
Robinson ræktar salat
og fleira í Gróðrar-
stöðinni Reykjalundi.
Salt og
hnetur Eiður
frá Saltverk
var á staðn-
um með salt
beint úr Ísa-
fjarðardjúpinu
og gómsætar
saltaðar
hnetur.
Íslenskar
geita-
afurðir
Jóhanna og
Hildur frá
Geitfjársetri
Íslands buðu
upp á ýmsar
afurðir úr
geitamjólk
og geitafitu.
Indverskur matur fyrir fjölskylduna
Ásta María, Jóna Sigríður, Halla Ruth, Una
Sigrún og Guðrún María voru mættar á vegum
Heilsurétta fjölskyldunnar og kynntu gómsæt-
an og framandi mat.
Svava og
sinnepið Lyf-
jafræðingurinn
Svava venti
kvæði sínu í
kross nýverið
og fór að fram-
leiða ljúffengt
sinnep í sætum
krukkum
undir heitinu
Sælkerasinnep
Svövu.
Íslenskt og
ómótstæði-
legt Andrea
frá Kökugerð
HP kynnti klein-
ur, flatkökur og
annað þjóðlegt
góðgæti.
Ljúfmeti í krukkum Agnes og Helga
Lára kynntu vörur Búrsins fyrir gestum
markaðarins.
Það er alltaf
pláss fyrir ís
Arna Rún seldi
gestum Mat-
armarkaðarins
ís úr þessum
fallega vagni.
Segir brandara og
baðar sig með úlfum
n Bylgja Babýlons er uppistandari n Finnst athyglisbresturinn ágætur n Er of bersögul
Tinna og Tóta
á góðri stund Þær voru með vægast sagt
með góðan grunnlit þessar tvær.
Hí á Húrra
Spennandi dagskrá á Húrra
Miðvikudagskvöldið 2. september verður haldið uppi-
standskvöld á Húrra þar sem Bylgja stígur á svið ásamt
fleiri valinkunnum uppistöndurum. Skipuleggjendur hafa
ákveðið að láta allan ágóða renna til Unicef til styrktar
hjálparstarfi samtakanna, en það kostar einn lítinn
þúsundkall inn. Dagskráin hefst kl. 21.
Ráð til þeirra
sem langar
að byrja í
uppistandi
n Vertu alltaf í hreinum
nærfötum og nýbúin/n á
salerninu
n Skrifaðu efnið þitt
niður, það er nauðsynlegt
n Mættu á opin kvöld
til dæmis á Ellefunni og
Gauknum
n Gættu þín á bröndurum
sem eru innblásnir af öðr-
um uppistöndurum – þeir
virka yfirleitt stolnir
n Ekki vera of drukkin/n
þegar þú ferð á svið,
dómgreindin getur komið
sér vel
n Ekki vera fífl
Ragnheiður Eiríksdóttir
ragga@dv.is
Mynd ÞoRMaR VIGnIR GunnaRSSon