Fréttatíminn


Fréttatíminn - 22.12.2015, Side 4

Fréttatíminn - 22.12.2015, Side 4
 Jólagjöf grillmeistarans Smiðjuvegi 2, Kóp - S. 554 0400 Skoðið úrvalið á www.grillbudin.is Opið alla daga til jóla VELDU GRILL SEM EN DAST OG ÞÚ SPARA R • Orka 18,7 KW = 64.000 BTU • 4 brennarar úr ryðfríu stáli • Postulínsemalerað eldhólf • Grillgrindur úr pottjárni • Tvöfalt einangrað lok m. mæli • Postulínsemaleruð efri grind • Rafkveikja fyrir alla brennara • Gashella • Auðveld þrif Landmann gasgrill Avalon 4ra brennara Er frá Þýskalandi FULLT VERÐ 139.900 119.900 18,7 KW  Vikan sem Var Krýndu vitlausa fegurðardrottningu Milljónir fylgdust með í beinni útsend- ingu þegar ungfrú Kólumbía var fyrir mistök krýnd Ungfrú heimur. Í ljós kom að kynnirinn las vitlaust nafn upp og það var ungfrú Filippseyjar, Pia Alonzo Wurtzbach, sem var réttkjörin fegursta kona heims. 8ára bann bíður þeirra Sepp Blatter, forseta FIFA, og Michel Platini, forseta UEFA. Þetta er niður- staða siðanefndar Alþjóðaknattspyrnu- sambandsins vegna mútumála þeim tengdum. 1.250milljóna fjárveiting til Landspítalans var samþykkt í ríkisstjórn fyrir helgi. Þar af fara 250 milljónir í viðhald. Ósáttir Englendingar Fjölmiðlar í Bretlandi eru ósáttir við Íslendingar fái fleiri miða á leiki sína á EM í Frakklandi næsta sumar en stórþjóðin England. KSÍ fær yfir 30 þúsund miða á leiki Íslands og því geta um tíu prósent þjóðarinnar farið á leik. Á hinn bóginn fá Englendingar aðeins einn miða á fyrir hverja 2.254 þegna sína. Slegist um miða á Bieber Miðar á tónleika Justins Bieber í Kórnum í september á næsta ári seldust upp á hálftíma. Talsverð óánægja var með framkvæmd miðasölunnar og töldu ýmsir sig hlunnfarna. Meðal annars heyrðust raddir þess efnis að ógilda ætti miðasöluna. Alls voru 19 þúsund miðar í boði. Sena hyggst reyna að halda aukatónleika. Veður Þorláksmessa aðfangadagur jóladagur N-átt, StrekkiNgur NorðaNlaNdS. Víð SNjór eða éljagaNgur. HöfuðBorgarSVæðið: HægLÁTT og EITTHvAð vErðUr UM éL. Na-átt og kólNaNdi Veður. él NorðaN- og auStaNlaNdS. HöfuðBorgarSVæðið: Að MESTU éLJALAUST, En KALdUr gJóSTUr. froStHörkur, eN Hægur ViNdur og úrkomulauSt. HöfuðBorgarSVæðið: HægvIðrI og FroST 10-15 STIg UndIr KvöLd. köldustu jól frá 1968? Með éljum á Þorláksmessu gerir föl sunnan- og suðvestanlands þar sem fyrir eru gamlir og harðir kaflar. Snjóar meira fyrir norðan og austan og þar verður skafrenningur. Á aðfangadag kólnar heldur um leið og pólloft sýnir sig úr norðvestri. él víða, einkum norðantil, en S-lands birtir upp. Það er síðan á jóladag, í hægviðri, að frostið kemur til með að bíta af alvöru og það fram á annan í jólum. Margar spár hafar reyndar ýkt verulega mesta frostið, en sennilega þarf að fara aftur til jóla 1968 til að finna viðlíka kulda þessa daga. -0 -3 -2 -0 -4 -4 -7 -8 -6 -6 -13 -10 -12 -16 -15 einar Sveinbjörnsson vedurvaktin@vedurvaktin.is Þ etta er í fyrsta sinn síðan lónið opnaði árið 1999 sem því er lokað. „Tilgangur með stækkun lónssvæðisins, sem við vinnum nú að, er fyrst og fremst að styrkja upplifun gesta. Búningsskápum verður ekki fjölgað í þessari lotu,“ segir Grím ur Sæ­ mundsen, for stjóri Bláa Lóns ins. „Við lokum á þess­ um tíma til að raska sem minnst okkar starfsemi, en á móti kemur að veðuróvissan er mest á þessum tíma. Það er sama hversu góður undirbúningurinn er, við þurfum að búa okkur undir að veðrið muni ekki leika við okkur. En við erum bjartsýn á að þetta gangi vel.“ lokunin á ekki að koma ferðamönnum í opna skjöldu Veitingastaðir og verslun Bláa Lónsins verða einnig lokuð á tímabilinu, auk þess sem lokað verður fyrir bókanir á gistingu í Lækningalind Bláa Lóns­ ins á meðan á lokuninni stendur. „Við höfum undirbúið þessa lokun mjög vel og lokunin ætti því ekki að koma ferðamönnum á óvart. En þá daga sem lokunin stendur yfir verður hins vegar hægt að bóka Betri stofu aðgang í lón Lækningalindar þar sem tekið verður á móti gestum, en þar er takmarkað framboð,“ segir Grímur. tæplega milljón heimsóknir í ár Stefnt er að því að opna endurnýjað og stærra lón þann 22. janúar 2016. Baðlónið mun stækka um helm­ ing, aukið aðgengi verður að hvíta kísilmaskanum, auk þess sem nýtt spa­svæði og veitingasvæði mun opna, ásamt betri aðstöðu fyrir gesti. Framkvæmdir við nýtt upplifunarsvæði og byggingu lúxus hótels standa einnig yfir og áætlað er að þeim framkvæmd­ um ljúki vorið 2017. Hótelið verður líklega fyrsta fimm stjörnu hótelið hér á landi, en stjörnufjöldinn er þó óstaðfestur enn um sinn. „Það er okkur ekki mikið kappsmál en þetta verður vissulega fyrsta hótelið sem er sérstaklega byggt frá grunni sem lúxushótel,“ segir Grímur. Rúmlega 60 herbergi verða á hótelinu og mun gistiþjónustan verða hluti af þeirri upplifun að heimsækja Bláa Lónið. Hótelgestir munu því geta farið í lónið oft á dag, kjósi þeir það. Heimsóknum í lónið hef­ ur fjölgað gríðarlega á þeim rúmum 15 árum frá því lónið opnaði. „Fjöldi heimsókna var 318.500 á fyrsta heila starfsárinu okkar árið 2000 og í ár gerum við ráð fyrir að heildar­ fjöldi heimsókna verði um 900.000.“ Það styttist því í að heildarfjöldi heimsókna fari yfir eina milljón á ári. erla maría markúsdóttir erlamaria@frettatiminn.is  ferðaÞjónusta tæp milljón heimsótti Bláa lónið í ár Bláa lónið stækkað um helming í janúar Bláa Lónið verður lokað gestum frá 5. janúar til og með 21. janúar 2016 vegna framkvæmda við stækkun og endurhönnun upplifunarsvæðis. Lónið verður einnig tæmt og hreinsað. Samhliða stækkuninni er unnið að byggingu lúxushótels sem mun opna árið 2017. Hótelið er hugsað sem hluti af upplifuninni sem fylgir heimsókn í lónið. gestum Bláa lónsins fjölgar ört og styttist í að heimsóknarfjöldi yfir árið nái einni milljón. Bláa lónið mun stækka umtalsvert á næstu tveimur árum. Í lok janúar 2016 opnar ný og endurbætt baðaðstaða og vorið 2017 mun lúxushótel opna á svæðinu. Teikning/Basalt teikningar Innifalið í STAndArd: Heimsóknargjald og aðgangur að Bláa Lóninu. Innifalið í CoMForT: Heimsóknargjald, aðgangur að Bláa Lóninu, afnot af handklæði, fyrsti drykkur að eigin vali og húðvörupakki. Innifalið í PrEMIUM: Heimsóknargjald, aðgangur að Bláa Lóninu, afnot af handklæði, fyrsti drykkur að eigin vali, húðvörupakki, afnot af baðsloppi, inniskór, frátekið borð og freyðivín á LAVA. Innifalið í LUxUry: Heimsóknargjald, aðgangur að Bláa Lóninu, afnot af handklæði, fyrsti drykkur að eigin vali, húðvörupakki, afnot af baðsloppi, inniskór, frátekið borð og freyðivín á LAVA og aðgangur í Betri stofu. Hvað kostar að fara í Bláa lónið? Sumartími 1. júní - 31. ágúst: Vetrartími: 1. september - 31. maí Standard: 7.300 kr. 5.100 kr. Comfort: 9.400 kr. 7.300 kr. Premium: 11.600 kr. 9.400 kr. Luxury: 28.300 kr. 23.950 kr. grímur Sæmundsen, forstjóri Bláa Lónsins og formaður Samtaka ferðaþjónustunnar. 4 fréttir Helgin 22.-27. desember 2015

x

Fréttatíminn

Direkte link

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Fréttatíminn
https://timarit.is/publication/944

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.