Fréttatíminn


Fréttatíminn - 22.12.2015, Blaðsíða 24

Fréttatíminn - 22.12.2015, Blaðsíða 24
Ég var komin með alveg nóg af því að vinna í þjónustu- störfum og díla við dónalegt fólk og láta klípa mig í rassinn af ógeðslegum fullum körl- um öll kvöld og vissi að þannig vildi ég ekki vinna það sem eftir væri. É g man ekki hvað ég var gömul þegar ég ákvað að ég vildi verða hjúkrunar-kona en það hefur verið markmiðið frá því að ég man eftir mér. En skólagangan var erfið. Mamma átti mig ung og þurfti að flytja mikið svo ég skipti mikið um skóla sem var erfitt, en svo var ég líka alltaf veik. Það vissi enginn hvað var að mér, úthaldið var ekkert og mér leið stöðugt illa í líkam- anum. Þetta hefur fylgt mér alla ævi og í dag hef ég fengið þá greiningu að ég sé með hinn umdeilda sjúkdóm vefjagigt. Á sama tíma var ég svona krakki sem vildi standa sig vel í öllu, æfði bæði íþrótt- ir og spilaði á hljóðfæri, og hafði mikinn áhuga á bóklegu námi. Ég var alltaf mjög góð í íslensku en átti erfitt með stærð- fræðina en fékk aldrei neina aðstoð, hvorki heima né í skólanum. Þetta versnaði þegar ég byrjaði í Hagaskóla og þegar ég fór að vera oftar veik dróst ég alltaf meira aftur úr. Ég missti allt sjálfstraust á þessum tíma og fór að vera mjög óörugg með sjálfa mig.“ Fór úr menntaskóla í heim neysl- unnar Eftir grunnskóla lá leið Valdísar í Mennta- skólann við Sund þar sem gigtin og ekki síð- ur andleg vanlíðan héldu áfram að versna. „Ég féll í stærðfræði og íþróttum eftir fyrsta bekk og það var hræðilegt, skömmin var svo mikil. Ég trúði því ekki að ég væri fall- isti. Mín leið frá skömminni var að flýja. Ég hætti í MS og fór að vinna. Stuttu síðar byrj- aði að vera með miklu eldri manni sem var fíkill og flutti heim til hans. Ég vandist því fljótt að eiga alltaf peninga og allar helgar fóru í að djamma. Það var svo auðvelt að vera bara í einfaldri vinnu alla vikuna og sleppa sér svo í skemmtun allar helgar og bera ekki ábyrgð á neinu,“ segir Valdís sem var mjög langt niðri á þessum tíma. „Ég hef alltaf þurft að passa vel upp á lík- amann en óhollt mataræði, drykkja og reyk- ingar höfðu ekki beint góð áhrif á heilsuna og það komu mjög erfiðir tímar þar sem ég hafði engan mátt í líkamanum. Ég fór sem betur fer ekki inn í þennan harða heim neyslunnar sem sambýlismaður minn var í en ég stóð samt í dyragættinni og fylgdist með honum. Þegar ég horfi til baka á sjálfa mig á þess- um tíma þá langar mig svo til að taka utan um mig og knúsa mig fast því að mér leið svo ömurlega illa. Ég hugsaði oft með sjálfri mér að ef þetta væri lífið, sambúð með fíkli og leiðinleg vinna þar sem eina spennan væri að geta skemmt sér um helgar þá væri það hreinlega ekki þess virði að lifa því. En á sama tíma leið mér eins og þetta væri ekki ég, að þetta hlyti að vera eitthvert tímabil sem ég ætti eftir að komast í gegnum og það hélt í mér lífinu.“ Það fara ekki allir beinu brautina Valdís Eva Huldudóttir er ein þeirra ungu námsmanna sem þekkir það að ná ekki endum saman um mánaðamótin. Frá því að hún var lítil stelpa var hún ákveðin í að verða hjúkrunarkona en aldrei hefði hún búist við þrautagöngunni sem sá draumur yrði. Hún segist vera ein þeirra sem duttu af beinu brautinni í lífinu og hafi fengið í kjölfarið að finna fyrir því hversu erfitt er að komast á þá braut aftur. Valdísi finnst kerfið hafa brugðist sér þegar hún þurfti mest á því að halda og hún skilur ekki af hverju ríkið sýnir ekki fólki eins og henni, ungri konu með viljastyrk til að læra, meiri stuðning. Það var á endanum Mæðra- styrksnefnd Reykjavíkur sem kostaði Valdísi til náms og hún þakkar nefndinni þá gæfu að vera í dag á sínu öðru ári í hjúkrunarfræði. Veröldin hrundi þegar dóttirin fæddist andvana Eftir tvö ár fékk Valdís loks kjark til að slíta sig frá sambýlismanni sínum. „Þá fór ég að sjá að það væri eitthvað meira, að lífið gæti verið gott og ég fékk í fyrsta sinn í lang- an tíma löngun til að fara aftur í skóla. Ég var komin með alveg nóg af því að vinna í þjónustustörfum og díla við dónalegt fólk og láta klípa mig í rassinn af ógeðslegum fullum körlum öll kvöld og vissi að þannig vildi ég ekki vinna það sem eftir væri. Ég kynntist yndislegum strák og fann að mig langaði til að stofna alvöru heimili en mér leið samt ennþá ömurlega í líkamanum og sjálfstraustið var ennþá í núlli. Ég byrjaði í Fjölbraut við Ármúla þar sem ég fékk alltaf undir fimm í stærðfræði sem ýtti ennþá frek- ar undir það að ég væri vitlaus og gæti þetta ekki. En svo fékk ég frá- bæran stærðfræðikennara, Halldór Leifsson, og hann náði þannig til mín að eftir þrjá áfanga á tveimur önnum fékk ég yfir 9,5 þeim öll- um, sem var til þess að ég sá hvað ég gat og varð alveg ákveðin í að ég skyldi klára stúdentsprófið og komast í hjúkrunina,“ segir Valdís sem var þarna tuttugu og eins árs gömul og átti enn nokkuð eftir til að klára prófið. „Ég var komin með nokkuð gott plan til að ná að vera í skóla með- fram vinnunni þegar ég uppgötv- aði að ég væri ólétt. Ég var orðin mjög hamingjusöm á þessum tíma. Gigtin var ekki svo slæm, ég sá stúdentsprófið í hillingum og ég átti von á barni með manni sem ég elskaði. En svo fæddist Andr- ea litla andvana og þá hrundi lífið á nýjan leik. Við jörðuðum hana þann 19. desember árið 2010 og það er ekki hægt að lýsa því með neinum orðum hvað það var hrylli- leg lífsreynsla. Ég var samt svo ákveðin í að missa ekki af lestinni í skólanum að ég fór í síðustu próf annarinnar daginn eftir og ég skil ekki í dag hvernig ég gat það. Á næstu önn varð ég aftur ólétt og þá hugsaði ég með mér að ég yrði að standa mig, ekki bara fyrir sjálfa mig heldur fyrir þessa ófæddu dóttur mína.“ Kerfið gaf mér fingurinn „Mér fannst allt í einu að ég gæti allt, fyrst ég komst frá þessari lífs- reynslu þá hlyti ég að geta klárað skólann,“ segir Valdís sem átti sína aðra dóttur, Alexöndru Evu, í nóvember árið 2011. „Ég hafði ekki efni á því að vera í dagskóla og fjarnámið var allt of dýrt fyrir mig. Það var ekki hægt í stöðunni að vinna á daginn og stunda nám á kvöldin auk þess að sjá um Alex- öndru því líkaminn minn býður bara ekki upp á það. Ég gerði ekki annað en að vera á netinu og skoða alla þá möguleika sem mér stæðu til boða, undanþágu frá stúdents- prófi, háskólabrú og mögulega styrki en það voru allar dyr lok- aðar því ég átti ekki pening. Ég sótti um að komast í háskólabrú hjá Keili til að klára stúdentinn á styttri tíma en það var svo fá- ránlega dýrt að það kom ekki til greina fyrir mig, auk þess sem það var ekki lánshæft. Mig langaði rosalega til að klára nám en allar dyr voru lokaðar. Það var hræðilega tilfinning að vera í svona vonlausri stöðu. Við Stykur frá Mæðrastyrksnefnd Reykjavíkur gerði Valdísi Evu Huldudóttur kleift að hefja nám í hjúkrunarfræði. Mynd/Hari 24 viðtal Helgin 22.-27. desember 2015
Blaðsíða 1
Blaðsíða 2
Blaðsíða 3
Blaðsíða 4
Blaðsíða 5
Blaðsíða 6
Blaðsíða 7
Blaðsíða 8
Blaðsíða 9
Blaðsíða 10
Blaðsíða 11
Blaðsíða 12
Blaðsíða 13
Blaðsíða 14
Blaðsíða 15
Blaðsíða 16
Blaðsíða 17
Blaðsíða 18
Blaðsíða 19
Blaðsíða 20
Blaðsíða 21
Blaðsíða 22
Blaðsíða 23
Blaðsíða 24
Blaðsíða 25
Blaðsíða 26
Blaðsíða 27
Blaðsíða 28
Blaðsíða 29
Blaðsíða 30
Blaðsíða 31
Blaðsíða 32
Blaðsíða 33
Blaðsíða 34
Blaðsíða 35
Blaðsíða 36
Blaðsíða 37
Blaðsíða 38
Blaðsíða 39
Blaðsíða 40
Blaðsíða 41
Blaðsíða 42
Blaðsíða 43
Blaðsíða 44
Blaðsíða 45
Blaðsíða 46
Blaðsíða 47
Blaðsíða 48
Blaðsíða 49
Blaðsíða 50
Blaðsíða 51
Blaðsíða 52
Blaðsíða 53
Blaðsíða 54
Blaðsíða 55
Blaðsíða 56

x

Fréttatíminn

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Fréttatíminn
https://timarit.is/publication/944

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.