Fréttatíminn - 22.12.2015, Blaðsíða 50
RÚV Spennandi fjölSkylduleikRit
Leifur óheppni í Útvarpsleikhúsinu
n ýtt íslenskt verk verður frumflutt í Útvarpsleikhús-inu um jólin. Leifur óheppni
er spennandi fjölskylduleikrit í sex
þáttum eftir Maríu Reyndal og
Ragnheiði Guðmundsdóttur en
María er jafnframt leikstjóri.
María Reyndal er hlustendum af
góðu kunn og hefur m.a. leikstýrt
áður m.a. „Best í heimi“ og „Sálm-
inum um blómið“ í Útvarpsleikhús-
inu. Hún hefur einnig skrifað ásamt
öðrum m.a. „Stelpurnar“, „Ástríði“
og Áramótaskaup Sjónvarpsins.
Ragnheiður hefur verið búsett í
Bretlandi síðastliðin 20 ár og m.a.
rekið barnaleikhús sem ferðaðist
með sýningar á Karíusi og Baktusi í
skóla vítt og breitt um London. Þær
eru systkinabörn og er þetta fyrsta
verkið sem þær skrifa saman.
Með helstu hlutverk fara Þórunn
Arna Kristjánsdóttir, Dominique
Sigrúnardóttir, Arnmundur Ernst
Bachmann, Sigurður Sigurjónsson,
Sólveig Guðmundsdóttir, Steinunn
Ólína Þorsteinsdóttir og Sveinn
Ólafur Gunnarsson. Einar Sigurðs-
son sér um hljóðvinnslu.
Leifur óheppni mun hljóma dag-
lega á Rás 1 klukkan 15, dagana 24.-
29. desember.
Leifur óheppni er spennandi fjölskyldu-
leikrit í sex þáttum sem flutt verður í
Útvarpsleikhúsinu um jólin.
tónleikaR ÞekktiR SöngVaRaR Syngja inn jólin
Sigga og Siggi á KEX
Sigríður Thorlacius og Sigurður Guðmunds-
son syngja inn jólin með tónleikum á KEX
Hostel á Þorláksmessu. Söngtvíeykið kemur
fram ásamt glæsilegri hljómsveit sinni og sam-
an reiða þau fram hátíðardagskrá með ríkum
jólaanda í líkingu við þá sem var á nýafstöðnum
tónleikum þeirra í Hörpu.
Tónleikarnir hefjast stundvíslega klukkan
21 og er frítt inn.
Sigríði og Sigurð þekkja langflestir lands-
menn í gegnum söngva þeirra sem þau hafa
framið með hljómsveitum sínum, Sigríður í
Hjaltalín og Sigurður í Hjálmum. Einnig hafa
þau sent frá sér afbragðs sólóskífur.
Það eru einmitt tvær hljómplötur þeirra sem
verða í forgrunni á tónleikunum á Sæmundi í
sparifötunum – jólaplöturnar Nú stendur mikið
til með Sigurði og Jólakveðja með Sigríði. Auk
laga af þessum plötum verða á dagskránni há-
tíðarlög úr öllum áttum sem Sigurður og Sigríð-
ur munu syngja bæði saman og í sitt hvoru lagi.
Sigurður Guðmundsson og Sigríður Thorlacius bjóða upp á ókeypis tón-
leika á KEX á Þorláksmessu. Ljósmynd/Baldur Kristjánsson
50 menning Helgin 22.-27. desember 2015
PLAKAT
3.900 kr.
FÁNI
1.400 kr.
Álfheimar 4 | 546 8225 | farvi.is
Farvavörur er hannaðar af alúð & handþrykktar á
verkstæðinu okkar. Þær eru því einstakar í sinni röð!
Gott bland fyrir
áramótin!
OPIÐ TIL 22 í kvöld
Miðasala | 568 8000 | borgarleikhus.is
Gjafakort
Borgarleikhússins