Fréttatíminn


Fréttatíminn - 22.12.2015, Síða 45

Fréttatíminn - 22.12.2015, Síða 45
Ég er nokkurn veginn eins langt frá því að vera grænmetisæta og nokkur maður getur orðið. Elska kjöt meira en orð fá lýst og get ekki hlustað á predikanir grænmetisæta sem alltaf virðist þó nóg af. Þær geta hirt beikonið úr köldum dauð- um höndum mínum – sem virðist reyndar, samkvæmt nýjustu rann- sóknum, styttra í en ég hélt. En það er nú önnur saga. Þessi fjallar um hana Ebbu. Nán- ar tiltekið hana Ebbu okkar á RÚV þar sem hún hefur síðustu vikurnar verið að elda mat en þar sem ég er meira en lítið fordómafullur í garð „heilsukokka“ hafði ég hafði aldrei séð þátt með henni. En krökkunum þykir hún æðisleg og harðneituðu að skipta um stöð eitt kvöldið fyrir nokkrum vikum og því var ég til- neyddur að horfa. Aðallega raun- ar til að missa ekki besta plássið úr sófanum en endaði þó á því að horfa á heilan þátt. Hann kom mér svo talsvert á óvart. Ekki bara er téð Ebba alveg sérlega örugg þarna fyr- ir framan myndavélina heldur var það sem hún eldaði bara alveg ljóm- andi girnilegt. Ég fór þó í huganum alltaf að hugsa hvar ég gæti bætt hakki út í gumsið og stevíudropa mun ég sjálfsagt aldrei eignast en þetta leit annars allt saman afar vel út og það sem meira er, þetta var skemmtilegt. Enda vottar ekki fyrir predikunartóni hjá okkar konu, sem ég er þakklátur fyrir. Það skal þó viðurkennt hér að ég er þó orðinn tveimur vikum eftir á í áhorfinu og hef því ekki séð hvað hún ætlar að bjóða fjölskyldunni upp á um jólin. Kannski eru það for- dómarnir í mér en mig grunar þó hnetusteik. sem virðist vera jólamat- ur allra grænmetisætna. Kannski ég leiti það uppi á vod-inu og athugi hvaða keti mætti bæta út í slíka til að gera hana ætilega. Haraldur Jónasson hari@frettatiminn.is 4 5 6 allt fyrir áskrifendur fréttir, fræðsla, sport og skemmtun STÖÐ 2 07:00 Barnatími Stöðvar 2 13:15 A Christmas Story 2 14:40 Angels Sing 16:10 Help for the Holidays H 17:40 The Middle (11/24) 18:05 Simpson-fjölskyldan (6/22) 18:30 Fréttir Stöðvar 2 19:00 Penguins of Madagaskar 20:30 Night At The Museum: Secret Of The Tomb Þriðja myndin um Larry og félaga á Smithsonian safninu í New York. Að þessu sinni standa þeir frammi fyrir stóru vandamáli því töfrarnir sem vekja persónur og dýr safnsins eru að hverfa og það er lítill tími til stefnu. Larry ákveður að reyna að bjarga þessum sögu- frægu vinum sínum og ferðast til London á British Museum til að bjarga málunum. Með aðal- hlutverk fara Ben Stiller, Robin Williams og Owen Wilson. 22:05 Gone Girl Dramatísk spennumynd frá 2014 með Ben Affleck og Rosamund Pike í aðal- hlutverkum. Þau leika hjón sem hafa verið gift í fimm ár en á sjálfan brúðkaupsafmælisdaginn hverfur eiginkonan. Strax bein- ist allur grunur að eiginmanni hennar og úr verður mikið fjölmiðlafár. Það gerir hann enn grunsamlegri þegar upp kemur um lygar hans og svik og þá fara menn að velta fyrir sér hvort hún sé jafnvel dáin og hann hafi drepið hana. 00:30 The Grand Budapest Hotel 02:10 The Wolf of Wall Street 05:10 A Christmas Story 2 4 5 6 allt fyrir áskrifendur fréttir, fræðsla, sport og skemmtun 09:10 Real Madrid - Atletico Madrid 11:50 San Antonio - LA Clippers 13:40 Holland - Ísland 15:25 Pit. Steelers - Denver Broncos 17:45 NFL Gameday 18:15 Hólmurinn heillaði 19:30 Oklahoma - Chicago Beint 22:00 Golden State - Cleveland Beint 01:00 UFC Unleashed 2015 4 5 6 allt fyrir áskrifendur fréttir, fræðsla, sport og skemmtun 08:40 Chelsea - Sunderland 10:20 Man. Utd. - Norwich 12:00 Manstu (3/7) 12:40 Manstu (4/7) 13:15 Newcastle - Aston Villa 14:55 Messan 16:10 Watford - Liverpool 17:50 Football League Show 2015/16 18:20 Swansea - West Ham 20:00 Wayne Rooney Film 21:00 Arsenal - Man. City 22:40 Premier League Review 2015 23:35 Stoke - Crystal Palace 25. desember sjónvarp 45Helgin 22.-27. desember 2015  Í sjónvarpinu Öryggi sjónvarpskokks  Ebban okkar allra

x

Fréttatíminn

Beinleiðis leinki

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Fréttatíminn
https://timarit.is/publication/944

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.