Fréttatíminn - 22.12.2015, Síða 45
Ég er nokkurn veginn eins langt
frá því að vera grænmetisæta og
nokkur maður getur orðið. Elska
kjöt meira en orð fá lýst og get ekki
hlustað á predikanir grænmetisæta
sem alltaf virðist þó nóg af. Þær
geta hirt beikonið úr köldum dauð-
um höndum mínum – sem virðist
reyndar, samkvæmt nýjustu rann-
sóknum, styttra í en ég hélt. En það
er nú önnur saga.
Þessi fjallar um hana Ebbu. Nán-
ar tiltekið hana Ebbu okkar á RÚV
þar sem hún hefur síðustu vikurnar
verið að elda mat en þar sem ég er
meira en lítið fordómafullur í garð
„heilsukokka“ hafði ég hafði aldrei
séð þátt með henni. En krökkunum
þykir hún æðisleg og harðneituðu
að skipta um stöð eitt kvöldið fyrir
nokkrum vikum og því var ég til-
neyddur að horfa. Aðallega raun-
ar til að missa ekki besta plássið
úr sófanum en endaði þó á því að
horfa á heilan þátt. Hann kom mér
svo talsvert á óvart. Ekki bara er téð
Ebba alveg sérlega örugg þarna fyr-
ir framan myndavélina heldur var
það sem hún eldaði bara alveg ljóm-
andi girnilegt. Ég fór þó í huganum
alltaf að hugsa hvar ég gæti bætt
hakki út í gumsið og stevíudropa
mun ég sjálfsagt aldrei eignast en
þetta leit annars allt saman afar vel
út og það sem meira er, þetta var
skemmtilegt. Enda vottar ekki fyrir
predikunartóni hjá okkar konu, sem
ég er þakklátur fyrir.
Það skal þó viðurkennt hér að ég
er þó orðinn tveimur vikum eftir á
í áhorfinu og hef því ekki séð hvað
hún ætlar að bjóða fjölskyldunni
upp á um jólin. Kannski eru það for-
dómarnir í mér en mig grunar þó
hnetusteik. sem virðist vera jólamat-
ur allra grænmetisætna. Kannski
ég leiti það uppi á vod-inu og athugi
hvaða keti mætti bæta út í slíka til
að gera hana ætilega.
Haraldur Jónasson
hari@frettatiminn.is
4 5 6
allt fyrir áskrifendur
fréttir, fræðsla, sport og skemmtun
STÖÐ 2
07:00 Barnatími Stöðvar 2
13:15 A Christmas Story 2
14:40 Angels Sing
16:10 Help for the Holidays H
17:40 The Middle (11/24)
18:05 Simpson-fjölskyldan (6/22)
18:30 Fréttir Stöðvar 2
19:00 Penguins of Madagaskar
20:30 Night At The Museum: Secret Of
The Tomb Þriðja myndin um Larry
og félaga á Smithsonian safninu
í New York. Að þessu sinni
standa þeir frammi fyrir stóru
vandamáli því töfrarnir sem
vekja persónur og dýr safnsins
eru að hverfa og það er lítill
tími til stefnu. Larry ákveður að
reyna að bjarga þessum sögu-
frægu vinum sínum og ferðast
til London á British Museum til
að bjarga málunum. Með aðal-
hlutverk fara Ben Stiller, Robin
Williams og Owen Wilson.
22:05 Gone Girl Dramatísk
spennumynd frá 2014 með Ben
Affleck og Rosamund Pike í aðal-
hlutverkum. Þau leika hjón sem
hafa verið gift í fimm ár en á
sjálfan brúðkaupsafmælisdaginn
hverfur eiginkonan. Strax bein-
ist allur grunur að eiginmanni
hennar og úr verður mikið
fjölmiðlafár. Það gerir hann enn
grunsamlegri þegar upp kemur
um lygar hans og svik og þá fara
menn að velta fyrir sér hvort
hún sé jafnvel dáin og hann hafi
drepið hana.
00:30 The Grand Budapest Hotel
02:10 The Wolf of Wall Street
05:10 A Christmas Story 2
4 5 6
allt fyrir áskrifendur
fréttir, fræðsla, sport og skemmtun
09:10 Real Madrid - Atletico Madrid
11:50 San Antonio - LA Clippers
13:40 Holland - Ísland
15:25 Pit. Steelers - Denver Broncos
17:45 NFL Gameday
18:15 Hólmurinn heillaði
19:30 Oklahoma - Chicago Beint
22:00 Golden State - Cleveland Beint
01:00 UFC Unleashed 2015
4 5 6
allt fyrir áskrifendur
fréttir, fræðsla, sport og skemmtun
08:40 Chelsea - Sunderland
10:20 Man. Utd. - Norwich
12:00 Manstu (3/7)
12:40 Manstu (4/7)
13:15 Newcastle - Aston Villa
14:55 Messan
16:10 Watford - Liverpool
17:50 Football League Show 2015/16
18:20 Swansea - West Ham
20:00 Wayne Rooney Film
21:00 Arsenal - Man. City
22:40 Premier League Review 2015
23:35 Stoke - Crystal Palace
25. desember
sjónvarp 45Helgin 22.-27. desember 2015
Í sjónvarpinu Öryggi sjónvarpskokks
Ebban okkar allra