Fréttatíminn


Fréttatíminn - 22.12.2015, Page 6

Fréttatíminn - 22.12.2015, Page 6
Dormaverð aðeins 8.990 kr. Sængurföt frá MistralHome 100% bómullarsatín tveir litir. 300 tc. Jólatilboð 20.900 kr. O&D dúnsæng · 90% dúnn · 10% smáfiður Fullt verð: 25.900 kr. Holtagörðum 512 6800 Dalsbraut 1, Akureyri 558 1100 Aðeins 19.900 kr. TVENNUTILBOÐ dúnsæng + koddi O&D dúnsæng – Stóri björn · 50% dúnn og 50% smáfiður Fullt verð: 19.900 kr. + Dúnkoddi – Stóri björn Fullt verð: 5.900 kr. Fullt verð samtals: 25.800 kr. JÓLA- TILBOÐ verð Frábært og gæði Hafðu það notalegt um jólin! Mikið úrval af vönduðum bómullarsængurfötum frá Nordicform á frábæru Dormaverði. Dormaverð aðeins 11.990 kr. SENDING NÝ turiform Afgreiðslutími um jólin 22. des. kl. 10–20 23. des. kl. 10–22 24. des. kl. 10–13 OPIÐ DORMA til kl. 2000 í kvöld Vinstri grænir voru líklegastir til að vera með lifandi jólatré. V ið vorum nú bara í einhverjum pælingum eins og oft áður hér á stofunni,“ segir Darri Johansen, viðskiptastjóri hjá PIPAR/TBWA auglýs­ ingastofu um herferðina Við öll sem vakið hefur mikla athygli á samfélagsmiðlum og í sjónvarpi að undanförnu. „Þetta var bara lítil hugmynd sem ég fékk, og var varla að þora að nefna hana. Þetta var ekki hugsað fyrir neitt sérstakt fyrirtæki eða slíkt en okkur langaði að gera eitthvað samfélagstengt og var bara virkilega gaman. Þrátt fyrir að þetta hafi kostað helling af vinnu,“ segir hann. „Það var engin markaðsþenkjandi pæling á bak við þetta eða slíkt og enginn öngull sem neytendur þurfa að bíta í. Þetta er bara hugmynd til þess að fá fólk til þess að opna augun og opna umræðuna,“ segir Darri. „Við höfum þennan vettvang sem sjónvarpið er og langaði til þess að búa til nokkurskonar dagatal þar sem við fengjum samtal eða viðtal við fólk af erlendum uppruna og býr á Íslandi.“ Í dagatalinu Við öll koma fram 24 einstak­ lingar af jafn mörgum þjóðernum sem koma fram í herferðinni. Darri segir það hafa verið auðvelt að finna þetta fólk. „Öll stofan kom að þessu verk­ efni. Það þekkja allir einhvern þegar það fer að hugsa um þetta,“ segir hann. „Það voru allir til í að vera með okkur í þessu og stofan lagðist á eitt í framkvæmdinni. Hugmyndin spratt upp frá umræðunni í samfélaginu og víðar þar sem það er mikil tortryggni oft á tíðum í garð útlendinga og þá sérstaklega undanfarið í garð flóttafólks. Alveg sama hvaða landi fólk tilheyrir og hvaða trúar­ brögðum. Hér á Íslandi erum við bara svo fjölbreytt og það er mikið af útlendingum hér. Við vinnum við það að segja sögur og koma skilaboðum á framfæri og mér datt í hug hvort við gætum ekki nýtt okkur að­ stöðu okkar og fengið fólk til þess að opna á umræðuna, og koma skilaboðum á milli fólks. Við höfum gott af því að fá innsýn inn í líf þessa fólks sem býr á landinu og vonandi nær fólk að skilja hvort annað betur,“ segir hann. „Viðbrögðin hafa verið alveg frábær. Bæði frá fólki í kringum okkur og svo auð­ vitað okkar kúnnum. Meira að segja hafa hörðustu naglar komið hérna í heimsókn og talað um það að þessar myndir hafi snert við þeim, svo þetta er að ná til ansi margra. Þó ég hafi átt þessa hugmynd í upphafi þá er það allt fólkið á stofunni sem hefur tekið þessa litlu hugmynd og framkvæmt hana, gert þetta að því sem þetta er,“ segir Darri Johansen hjá PIPAR/TBWA. Hannes Friðbjarnarson hannes@frettatiminn.is  Jólahald GerViJólatré Vinsælli en lifandi tré Stuðningsmenn Bjartrar framtíðar líklegastir til að sleppa jólatrénu Vinsældir gervijólatrjá eru að aukast, að því er fram kemur í könnun sem MMR gerði dagana 15. til 18. desember. Af þeim sem tóku afstöðu nú sögðust 54,9% ætla að vera með gervitré í ár sem er um 5 prósentustigum meira en var fyrir fimm árum. 31,9% ætla að vera með lifandi tré, borið saman við 32,4% í desember 2014 og 41,6% fyrir fimm árum. Þá voru 13,6% sem sögðust ekki ætla að vera með neitt jólatré á sínu heimili í ár, borið saman við 11,7% í desember 2014 og 8,8% í desember 2010. Einnig var spurt hvaða stjórn­ málaflokk fólk styddi og val jólatrjáa flokkað eftir því. Í ljós kom að stuðn­ ingsmenn Bjartrar framtíðar voru ólíklegastir til að vera með jólatré og að stuðningsmenn Vinstri grænna voru líklegastir til að vera með lif­ andi jólatré. Valdir voru 1010 einstaklingar á aldrinum 18 ára og eldri til að svara könnuninni. ­ fb  herferð samfélaGstenGdu auGlýsinGarnar Við öll VekJa athyGli Auglýsingar sem opna umræðuna Nú í desember hafa birst auglýsingar í sjónvarpi undir yfirskriftinni Við öll. Þar er rætt við fólk af erlendum uppruna sem hefur búið hér á landi mislangan tíma og það segir frá sinni upplifun af landi og þjóð. Auglýsingarnar eru ekki merktar neinu fyrirtæki því það er auglýsingastofan PIPAR/TBWA sem stendur að herferðinni. Einn viðskiptastjóra stofunnar, Darri Johansen, segir þetta hafa verið litla hugmynd sem gripin var á lofti og keyrð af stað af öllum á stofunni. Darri Johansen hjá PIPAR/TBWA segir stofuna hafa langað að gera eitthvað til þess að opna umræðuna. Ljósmynd/Hari Þó ég hafi átt þessa hugmynd í upphafi þá er það allt fólkið á stofunni sem hefur tekið þessa litlu hug- mynd og framkvæmt hana, gert þetta að því sem þetta er. 6 fréttir Helgin 22.-27. desember 2015

x

Fréttatíminn

Direct Links

If you want to link to this newspaper/magazine, please use these links:

Link to this newspaper/magazine: Fréttatíminn
https://timarit.is/publication/944

Link to this issue:

Link to this page:

Link to this article:

Please do not link directly to images or PDFs on Timarit.is as such URLs may change without warning. Please use the URLs provided above for linking to the website.