Fréttatíminn - 22.12.2015, Page 10
Ein mesta
uppgötvun
hennar var
eitt árið
þegar hún
frétti af því
að seldar
væru for-
soðnar
kartöflur
enda spar-
aði það fjöl-
skyldunni
tíma.
Hláturmild
og réttsýn
B-manneskja
Biskup Íslands, Agnes Sigurðardóttir, hefur verið mikið í sviðsljósinu
undanfarið vegna heitra umræðna um stöðu kirkjunnar og aukinna
úrsagna úr henni. Hún er sögð halda ró sinni hvað sem á dynur, hafa
mikinn húmor fyrir sjálfri sér en í henni sé ekki arða af popúlisma.
A gnes M. Sigurðardóttir er fædd á Ísafirði 19. október 1954. Hún er dóttir prests-
hjónanna á staðnum, Sigurðar Krist-
jánssonar sóknarprests og prófasts í
Ísafjarðarprófastsdæmi, og Margrétar
Hagalínsdóttur ljósmóður. Systkinin
eru fjögur og það var oft glatt á hjalla
á heimilinu, mikil tónlist og stundaði
Agnes nám í píanóleik hjá Ragnari
H. Ragnar í Tónlistarskóla Ísafjarðar
frá 1963 til 1975. Að sögn æskuvin-
konu var Agnes mikill grallaraspói í
innsta hring en lét ekki mikið fyrir sér
fara í fjölmenni. „Efst í minningunni
er hláturmildi sem oft smitaði út frá
sér í góð hlátursköst viðstaddra. Með
góðan húmor fyrir sjálfri sér, lífinu og
samferðafólki,“ segir hún. „Skapmikil,
ákveðin og alvörugefin, með ríka rétt-
lætiskennd og samkennd.“
Þegar Agnes var sautján ára gömul,
árið 1971, ákvað hún að verða prestur.
Prestastéttin hafði frá upphafi verið
karlastétt og það var ekki fyrr en þrem-
ur árum síðar að fyrsta konan vígðist
sem prestur á Íslandi. Helsta fyrirmynd
Agnesar var faðir hennar, Sigurður
Kristjánsson prófastur. Frá barnsaldri
hafði hún fylgst af miklum áhuga með
störfum föður síns. Skrifstofan hans
var á æskuheimilinu og athafnir fóru
gjarnan fram í stofunni á prestsetrinu
á Ísafirði. Allt þetta þótti henni mjög
spennandi. Þegar Agnes færði ákvörð-
un sína í tal við föður sinn var hann ekki
sérstaklega hrifinn og spurði hvort hún
væri alveg viss um áhugann á prests-
starfinu. Það kom ekki síst til af því að
starfinu fylgir oft álag, sem dæmi má
nefna að veita þarf sálusorgun við erfið-
ar aðstæður í lífi fólks. Þá er vinnutím-
inn óhefðbundinn og fellur ekki vel að
fjölskyldulífi. Agnes hóf nám í guðfræði
árið 1975. Þann 13. febrúar 1977 pré-
dikaði hún í Ísafjarðarkirkju við messu
hjá föður sínum. Eftir það sannfærðist
faðir hennar um að ákvörðun Agnesar
væri rétt, að sögn ættingja.
Agnes var ráðin æskulýðsfulltrúi
þjóðkirkjunnar strax að námi loknu og
gegndi því starfi til ársins 1986. Hún
var vígð prestsvígslu til þessarar þjónustu 20. septem-
ber 1981 og þjónaði samhliða starfi sínu í Dómkirkjunni
í Reykjavík. Árið 1986 var hún skipuð sóknarprestur
á Hvanneyri. Hún gegndi því embætti til ársins 1994
þegar hún flutti sig til Bolungarvíkur sem hún þjónaði
til ársins 2012. Sóknarbörn hennar þar bera henni vel
söguna en taka þó fram að hún hafi kannski ekki verið
allra. „Helsti styrkleiki Agnesar er hversu heiðarleg og
vönduð hún er,“ segir vinkona og fyrrverandi sóknar-
barn úr Bolungarvík. „Það sem aftur háir henni ofur-
lítið er að hún er alveg laus við að vera „people pleaser“
og því ekki arða til í henni af nokkrum einasta popúl-
isma. Það mögulega stendur henni aðeins fyrir þrifum í
biskupsstarfinu. Hún anar ekki að nokkrum hlut heldur
íhugar allt vandlega og kemur hreint fram.“
Árið 2012 var Agnes valin til að gegna embætti bisk-
ups Íslands. Hún var vígð biskupsvígslu í Hallgríms-
kirkju 24. júní 2012 og var fyrsta konan í sögu þjóðkirkj-
unnar til að taka biskupsvígslu, en undan henni höfðu
110 karlar gegnt embætti og hefur síðan, eðli málsins
samkvæmt, verið töluvert á milli tannanna á fólki. Ekki
eru þó allir sammála um að hún eigi það skilið. „Agnes
er brautryðjandi og fyrirmynd bæði karla og kvenna.
Sem ung kona í hópi eldri karla þurfti hún yfirleitt að
hafa meira fyrir hlutunum. Starf prestsins fór hún létt
með en verja þurfti tíma í að sanna tilverurétt sinn, ekki
síst í upphafi. Viðhorfin hafa vonandi breyst eitthvað á
þeim 40 árum síðan hún hóf nám í guðfræði,“ segir einn
viðmælenda. „Agnes er mjög fórnfús og líf hennar hefur
að mestu leyti snúist um þjónustu í þágu sóknarbarna
sinna og nú síðustu árin í þágu landsmanna allra. Það
hefur oft verið á kostnað fjölskyldulífs en á móti kemur
að hún var sjálf alin upp á heimili prestsins í gamla
tímanum þar sem starf prestsins var númer eitt en fjöl-
skyldan kom þar á eftir. Staða prestsfjölskyldunnar hef-
ur verið Agnesi hugleikin. Á fyrsta áratug aldarinnar
tók hún til að mynda námsleyfi frá störfum og vann að
verkefni um prestfjölskyldur.“
Agnes og fyrrverandi maður hennar, Hannes Bald-
ursson, eiga þrjú börn og sonur hennar segir að starf
hennar hafi sett sitt mark á fjölskyldulífið, en skipulags-
gáfa hennar og lausnamiðuð hugsun hafi þó valdið því
að málin hafi alltaf bjargast og tekur dæmi af jólahaldi
því til sönnunar. „Agnes er mjög praktísk í hugsun.
Eðli máls samkvæmt er annatími hjá prestum um jól
og þegar við bættist að fyrrum eiginmaður Agnesar
spilaði á orgel í kirkjunni þurfti að skipuleggja jólahald
fjölskyldunnar vel. Ein mesta uppgötvun hennar var
eitt árið þegar hún frétti af því að seldar væru forsoðnar
kartöflur enda sparaði það fjölskyldunni tíma.“
Öllum sem rætt er við ber saman um að Agnes sé
afskaplega réttsýn, hafi góða kímnigáfu, haldi ró sinni
hvað sem á dynur. „Helsti galli hennar er hvað hún
gefur sér lítinn tíma fyrir sjálfa sig,“ segir náinn ættingi.
„Hún er B-manneskja sem kemur miklu í verk, enda
vinnur hún oft fram á nótt. Þrátt fyrir hvað hún er skipu-
lögð er hún þó oftar en ekki á síðustu stundu. Hún er
ákveðin og treystir fólki en er ekki tilætlunarsöm. Eitt
sem er alveg á hreinu að hún lætur engan vaða yfir sig.“
Friðrika Benónýsdóttir
fridrika@frettatiminn.is
Agnes sigurðArdóttir
Fædd á Ísafirði 19. október 1954
Foreldrar:
Sigurður Kristjánsson, sóknar-
prestur á Ísafirði og prófastur
í Ísafjarðarprófastsdæmi, og
Margrét Hagalínsdóttir ljós-
móðir
Fyrrverandi maki:
Hannes Baldursson tónlistar-
maður
Börn:
Sigurður, framkvæmdastjóri
eignastýringar hjá Kviku
Margrét, hagfræðingur
og söngkona
Baldur sálfræðingur
Nám:
2006-2007 Háskóli Íslands,
guðfræðideild.
1981 Cand. theol. frá HÍ.
1977-1978 Nám í Tónskóla Þjóð-
kirkjunnar
1975-1976 Nám í Tónlistarskóla
Reykjavíkur
1975 Stúdent frá MÍ.
1963-1975 Nám í Tónlistarskóla
Ísafjarðar
Starfsferill:
Biskup Íslands frá 2012
Frá 2005 Prófastur í Vest-
fjarðaprófastsdæmi
1999-2005 Prófastur í Ísafjarð-
arprófastsdæmi
Frá 1994 Sóknarprestur í
Bolungarvíkurprestakalli
1986-1994 Sóknarprestur í
Hvanneyrarprestakalli
1982-1986 Þjónusta í Dóm-
kirkjunni í Reykjavík
1981-1986 Æskulýðsfulltrúi
Þjóðkirkjunnar. Vígð til þess
embættis 20. september 1981.
10 nærmynd Helgin 22.-27. desember 2015