Fréttatíminn - 22.12.2015, Page 20
„Ég fæ í sjálfu sér alveg
frelsi til að breyta hlutum
í okkar uppfærslu ef mér
finnst það hjálpa verkinu.
Þetta er aðeins stað-
fært en þó ekki mikið því
verkið er ekki staðbundið.
Þessi veruleiki er alveg
jafn skýr hér og í Svíþjóð,
eða annarsstaðar.“ Ljós-
mynd/Hari
Ef maður efast ekki, vex maður ekki
Þjóðleikhúsið frumsýnir um hátíðirnar nýtt sænskt leikverk í
Kassanum. Verkið, Um það bil, er ekki ádeiluverk. Það fjallar
um fólk – fast inni í kerfi sem ekki er hægt að breyta. Það fjallar
um okkur sem neytendur, hvernig við skilgreinum hugmyndir
okkar og samskipti út frá lögmálum hagfræðinnar. Hvort sem
það er ást eða vinátta þá hefur allt sitt virði, alla dreymir um að
komast áfram í kerfinu eða standa fyrir utan það. Una Þorleifs-
dóttir, leikstjóri verksins, segir það frelsi fyrir leikstjóra að hafa
höfundinn ekki á staðnum.
Þ að er verið að fjalla um stöðu okkar í samfélaginu,“ segir Una Þorleifsdóttir, leikstjóri
˜ [um það bil]. „Hvernig við skil-
greinum okkur út frá fjárhagsleg-
um sjónarmiðum, og hagkerfinu
og stöðu okkar innan þess. Hvern-
ig flestir draumar okkar eru skil-
greindir af lögmálum þess. Löngun
okkar til þess að komast áfram er
knúin áfram af peningum, eða því
að eiga eitthvað. Halda að það sé
betra að eiga peninga og hafa efni
á því að kaupa td. lífrænan mat,“
segir hún.
„Það kostar peninga að vera
fyrir utan kerfið. Það er dýrara að
kaupa lífrænt og föt sem eru ekki
framleidd í þrælaverksmiðjum.
Þetta snýst svolítið um það. Þetta
eru fimm meginpersónur og verkið
fjallar um þeirra drauma og þrár
innan kerfisins og hvernig kerfið
hefur áhrif á líf þeirra og ákvarð-
anatöku,“ segir Una. Með aðal-
hlutverkin í sýningunni fara þau
Þröstur Leó Gunnarsson, Guðrún
Snæfríður Gísladóttir, Katrín Hall-
dóra Sigurðardóttir, Oddur Júlíus-
son, Snorri Engilbertsson, Stefán
Hallur Stefánsson og Þorbjörg
Helga Þorgilsdóttir.
Hagfræðihugtök í samskiptum
fólks
Leikritið ˜ [um það bil] varð til eftir
að Dramaten leikhúsið í Stokkhólmi
bað Jonas Hassen Khemiri um að
skrifa nýtt leikrit fyrir húsið. Leik-
ritið átti að fjalla um Frankenstein
– ófreskjuna sem Mary Shelly gerði
ódauðlega. En skrifin leiddu Khem-
iri í aðra átt, í stað þess að skrifa
um Frankenstein beindi Khemiri
sjónum sínum að öðru manngerðu
skrímsli (líkt og Khemiri orðar það):
kapítalismanum – fyrirbæri sem við
höfum skapað sjálf, er bæði mennskt
og ómennskt og löngu sloppið úr
höndum skapara sinna. „Hugsanir
mínar flökkuðu frá ófreskjunni til
efnahagsins. Peningar geta virkað
sem rúllustigi upp þjóðfélagsstig-
ann. En þeir geta líka verið martröð
þegar þú átt ekki peninga og fellur á
botninn,“ segir Kehmiri.
„Höfundurinn er ekki endilega að
fjalla um þennan efnisheim á nei-
kvæðan hátt,“ segir Una. „Hann er
meira að varpa ljósi á hvernig þetta
virkar, og hvernig kerfið hefur áhrif
á okkar daglega líf. Án þess að við
gerum okkur grein fyrir því. Kerfið
hefur áhrif á ástina meðal annars,“
segir hún. „Hvort við erum frjáls.
Eitthvað sem við höldum að við
höfum sjálf áhrif á. Kannski erum
við það ekki,“ segir hún. „Við tölum
um virði einhvers. Virð frelsisins,
ástarinnar og sambandsins. Upplif-
anir og hvað við viljum fá frá hvort
öðru, og hvað við fáum í staðinn.
Við notum hagfræðihugtök þegar
við tölum um samskipti við annað
fólk,“ segir Una. „Tölum um tilboð
og virði og slíkt. Ég tel að þetta verk
sé eitthvað sem allir geta tengt við.
Þetta er er rannsókn á aðstæðum og
endurspegla persónurnar ólík sjón-
armið, allt frá því að vilja viðhalda
því sem er til þess að rífa það niður
til að skapa nýjar útópíur.“
Aðrir betri í því að leika
Una leikstýrði og var meðhöfundur
að verkinu Konan við 1000 gráður
á síðasta leikári og hlaut sýningin
Grímuverðlaunin sem leikrit árs-
ins. Einnig leikstýrði hún verkinu
Harmsaga við Þjóðleikhúsið. Hún
starfar sem lektor við sviðslista-
deildabraut LHÍ og útskrifaðist
sem leikstjóri frá Royal Holloway,
University of London árið 2004.
Hún segir að heildarmyndin heilli
sig meira en að standa á sviðinu
Ég fattaði sem
unglingur að
ég hafði engan
áhuga á því
að standa á
sviðinu. Mér
fannst bara
aðrir miklu
betri í því, en
ég. Ég hafði
miklu meiri
áhuga á stóru
myndinni.
sem leikari. „Það stóð aldrei til hjá mér
að verða leikkona,“ segir hún. „Kannski
er það í fyrsta lagi vegna þess að sýni-
leiki leikstjóra er mjög lítill. Fólk gerir sér
yfirleitt ekki grein fyrir vinnu þeirra og í
hverju hún felst. Maður sér stjörnurnar á
sviðinu og það er ekkert óeðlilegt þegar
maður er ungur að það sé það sem mann
langar að gera. Önnur vinna að sýning-
unni er nánast ósýnileg,“ segir Una.
„Ég var, eins og flestir aðrir, í leiklistar-
hópum sem barn. Ég fattaði sem ungling-
ur að ég hafði engan áhuga á því að standa
á sviðinu,“ segir hún. „Mér fannst bara
aðrir miklu betri í því, en ég. Ég hafði
miklu meiri áhuga á stóru myndinni, á
fagurfræðinni og sviðsetningunni. Sem
leikari verður maður að hafa svo gífur-
lega áhuga á því að leika. Að búa til aðra
persónu og að geta umturnað sjálfum
sér. Svo er ég ekkert rosalega góð í því
þykjast vera önnur en ég er, svo það voru
allskonar hlutir sem spiluðu inn í þessa
ákvörðun,“ segir Una. „Þetta var alveg
rétt val á sínum tíma, fyrir mig. Ég kom
heim 2004 og fékk þá starf sem stunda-
kennari hjá LHÍ,“ segir hún. „Ég var sjálf
á tímamótum. Hafði verið að gera mikið
af gjörningum og vídeólist og þess háttar.
Annarskonar sviðslistum en hefðbundnu
leikhúsi og hafði ekkert sérstakan áhuga
á að fara að vinna innan þess. Ég fór svo
að leikstýra hjá Nemendaleikhúsinu 2010,
og með þeirri vinnu kviknaði aftur á þeim
áhuga að takast á við þetta form,“ segir
Una. „Textann, sviðsetninguna og leikara-
vinnuna. Það er eðlilegt sem listamaður
að áhugi manns breytist með tímanum, að
maður þroskist og vilji ögra sjálfum sér.“
Frelsi leikstjórans
˜ [um það bil] var frumsýnt á Dramaten
í Stokkhólmi á síðasta ári og hefur notið
fádæma vinsælda en jafnframt vakið um-
tal og deilur. Það hefur nú þegar verið sett
upp í Thalia leikhúsinu í Hamburg, Borg-
arleikhúsinu í Nürnberg og er væntanlegt
á svið í Schaubühne í Berlín og Þjóðleik-
húsinu í Osló. Uppsetning Þjóðleikhúss-
ins á verkinu er sú fyrsta á Norðurlöndun-
um fyrir utan frumuppfærsluna í Svíþjóð.
„Ég fór til Stokkhólms og sá verkið þar og
hitti Khemiri,“ segir Una. „Ég fæ í sjálfu
sér alveg frelsi til að breyta hlutum í okk-
ar uppfærslu ef mér finnst það hjálpa verk-
inu. Þetta er aðeins staðfært en þó ekki
mikið því verkið er ekki staðbundið,“ seg-
ir hún. „Þessi veruleiki er alveg jafn skýr
hér og í Svíþjóð, eða annarsstaðar. Þetta
er þó allt öðru vísi uppsetning en í Sví-
þjóð. Við leikum okkur öðruvísi með form
leikhússins heldur en þau gerðu. Ég átti
samtal við höfundinn um hvað hann var
að hugsa, og hans upplifun og svo reyni
ég að vinna með það,“ segir Una.
„Það sem mér finnst áhugavert í þessu
er að vinna að þessu án höfundarins. Ég
hef unnið í mörgum frumuppfærslum og
hef því unnið mjög náið með höfundum
verkanna,“ segir hún. „Þetta er öðruvísi
því höfundurinn er ekki á landinu og hann
gaf mér leyfi til þess að gera það sem ég
vil, í sjálfu sér. Ef það er eitthvað sem mér
finnst ég þurfa að breyta þá er það bara í
góðu lagi. Höfundurinn er fjarlægari og
á einhvern hátt er það mikið frelsi fyrir
mig,“ segir hún.
Sýningarnar lærdómsferli
„Við erum búin að vera í tæpar tíu vikur
að æfa þetta verk og eftir frumsýning-
una verður gott að geta verið með börn-
unum mínum og mætt aftur í vinnuna í
Listaháskólanum,“ segir Una þegar hún
er spurð út í lífið eftir frumsýningu. „Mað-
ur sleppir tökunum á generalprufunni og
eftir frumsýningu tekur við smá þung-
lyndi, en vinnu að sýningunni er ekki
lokið fyrir mér fyrr en því ferli er lokið-
Þessi efi snýr ekki að viðtökum eða gagn-
rýni, snýst frekar um sjálfa mig, ef maður
efast ekki, þá vex maður ekki,“ segir hún.
„Þá verður maður ekki betri. Það er mik-
ið lærdómsferli að koma aftur á sýning-
arnar og sjá það sem maður hefur verið
að gera í öðru ljósi. Aðallega fyrir mann
sjálfan. Sem listamaður vil ég auðvitað að
fólki finnist það sem ég er að gera áhuga-
vert. Að maður hafi áhrif og eigi í samtali
við áhorfendur. Þess vegna er maður að
þessu,“ segir hún. „Ég lít ekki á gagnrýni
sem gagnrýni á mína persónu. Þetta snýst
meira um mann sjálfan og manns eigin
efa. Maður er alltaf að læra og endurmeta
það sem maður gerir. Það væri eitthvað
rangt að koma á verkið eftir einhvern tíma
og finnast ekkert að því. Þá hefur maður
ekki vaxið og lært af ferlinu,“ segir Una
Þorleifsdóttir leikstjóri.
˜ [um það bil] verður frumsýnt í Kassa
Þjóðleikhússins 29. desember.
Hannes Friðbjarnarson
hannes@frettatiminn.is
Vesturhlíð 2 Fossvogi | Sími 551 1266 | útför.is
Með kærleik og virðingu
Útfararstofa Kirkjugarðanna
Rósa Kristjánsdóttir, djákni
og hjúkrunarfræðingur
Við erum til staðar
þegar þú þarft á
okkur að halda
Útfarar- og lögfræðiþjónusta
Við önnumst alla þætti undir-
búnings og framkvæmd útfarar
ásamt vinnu við dánarbússkiptin.
Við þjónum með virðingu og
umhyggju að leiðarljósi og af
faglegum metnaði.
20 viðtal Helgin 22.-27. desember 2015