Fréttatíminn


Fréttatíminn - 22.12.2015, Qupperneq 26

Fréttatíminn - 22.12.2015, Qupperneq 26
bjuggum í 40 fermetra stúdíóíbúð og barnsfaðir minn vann myrkr- anna á milli til að sjá fyrir okkur sem þýddi að við vorum „tekjuhá“ samkvæmt kerfinu, sem er fyndið því við rétt náðum endum saman. Mér leið bara eins og kerfið væri að gefa okkur fingurinn. Ég treysti mér alls ekki út á vinnumarkað- inn, ekki bara vegna gigtarinnar heldur hafði ég ekki náð að vinna úr því að hafa misst Andreu. Ég fékk engan stuðning eða eftir- fylgni og ég hafði ekki efni á sál- fræðingi. Það hélt enginn utan um mig og mér finnst það ömurlegt þegar ég hugsa til þess í dag. Það fara ekki allir beinu menntabraut- ina og ég skil ekki af hverju kerfið hjálpar ekki fólki í svona stöðu.“ Auðveldara að hætta í námi en að skulda LÍN „Þegar Alexandra komst inn hjá dagmömmu fann ég háskólabrú í HR sem var nýbúið að samþykkja sem lánshæft nám og ég missti mig af gleði. Þarna gat ég ekki bara menntað mig heldur lærði ég loksins hvernig maður á að læra og svo kynntist ég fullt af góðu fólki sem var í nákvæmlega sömu spor- um og ég, hafði tekið hliðarspor og vildi komast aftur á rétta braut. Ég útskrifaðist í janúar 2013 og það var ein besta stund lífs mín,“ segir Valdís sem komst svo inn í hjúkrun. „Þegar ég byrjaði í háskólanum vorum við barnsfaðir minn ný- skilin svo dóttir mín var hjá mér aðra hverja viku. Það fannst mér hræðilega erfitt því ég upplifði svo ofboðslega sterka sorg í hvert sinn sem ég þurfti að kveðja hana, mér leið alltaf eins og ég væri að sjá hana í síðasta sinn. Þetta reif svo í sárin yfir því að hafa misst And- reu að ég var bara ekki alveg með sjálfri mér þennan fyrsta vetur í há- skólanum. Á sama tíma var ég að standa alveg á eigin fótum í fyrsta sinn og sem betur fer þá stóð vel á hjá mömmu þennan vetur því náms- lánin dugðu bara alls ekki fyrir út- gjöldunum. Ég endaði á því að falla í klásusnum, með 0,5 stigum í einu fagi, sem voru ekki bara vonbrigði heldur skuldaði ég þá líka bank- anum námslánin. Ég fór að vinna um sumarið en var stöðugt veik og áfram söfnuðust þá upp skuldirnar. Þarna var ég alveg að gefast upp á því að fara stöðugt í hringi og lenda alltaf aftur á byrjunarreit, því um leið og ein greiðsla dregst þá kem- ur kvíðinn og skuldin verður stærri og á endanum sérðu ekki tilgang- inn með því að halda áfram í námi og fara ekki bara að vinna.“ Kann að vera útsjónarsöm Þegar Valdís sá fram á að eiga ekki fyrir skólagjöldum og bókum til að taka klásusinn aftur var henni bent á Mæðrastyrksnefnd Reykjavíkur. „Mér fannst skrítið að hugsa til þess að ég þyrfti ölmusu því ég á ekkert erfitt, mig langar bara í betra líf. Mér fannst að ég þyrfti að vera komin á götuna til að geta þegið hjálp. En það hvernig við lítum út segir ekki alla söguna. Ég var komin á algjöra endastöð og sá ekki fram á að geta átt fyrir mánaðarlegum útgjöldum, hvað þá munaði á borð við bækur og skóla- gjöld. Ég fékk ekki krónu í viðbót hjá bankanum, var búin með alla dagpeninga frá Tryggingastofn- un, búin að reyna að komast að hjá Virk starfsendurhæfingu, en fékk ekki aðstoð því ég mætti á hjóli svo þau töldu mig ekki geta verið veika. Mamma var búin að hjálpa mér eins og hún gat en það sem ég á henni mest að þakka er að hún kenndi mér að vera útsjónarsöm. Ég á fallegt heimili í dag en þar er allt úr Góða hirðinum, ég kaupi mér notuð föt og er góð í að redda mér.“ Lifir fyrir daginn í dag Valdís sótti um menntunarstyrk hjá Mæðrastyrksnefnd og fékk hann. „Ég grét og grét, bara af gleði og spennufalli. Þær borg- uðu fyrir mig skólagjöldin og all- ar bækur og svo um jólin fékk ég matargjöf sem bjargaði okkur al- veg. Ég flaug í gegnum klásusinn og er núna komin á annað ár, þökk sé þeim því þær eru enn að styðja mig. Ég er þeim óendanlega þakk- lát. Ég lifi á námslánum í dag og á ekkert þegar öll gjöld mánaðarins hafa verið greidd og það er ekki nokkur leið fyrir mig að safna einni krónu til að getað eignast eitthvað í framtíðinni. Námslán- in eru 180 þúsund krónur á mán- uði, leigan í stúdentagörðunum er 100 þúsund og svo borga ég 50 þúsund á mánuði í að greiða niður gamlar skuldir. Þá er ekki mikið eftir til að lifa og borga leikskóla. Bensínið er svakalega dýrt en þar sem við búum í Fossvogi hentar strætókerfið okkur ekki til að kom- ast leiðar okkar. Þegar barnabæt- urnar koma getum við leyft okkur eitthvað aðeins meira og þær gera það að verkum að Alexandra get- ur stundað fótbolta. Þetta er bara dæmi sem gengur ekki upp. En ég lifi fyrir daginn í dag og eina markmiðið mitt er að klára þetta nám svo ég geti unnið við það sem mig langar til að gera og verið góð fyrirmynd fyrir dóttur mína.“ Halla Harðardóttir halla@frettatiminn.is Mér fannst skrítið að hugsa til þess að ég þyrfti ölmusu því ég á ekkert erfitt, mig langar bara í betra líf. 26 viðtal Helgin 22.-27. desember 2015

x

Fréttatíminn

Direct Links

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Fréttatíminn
https://timarit.is/publication/944

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.