Fréttatíminn - 22.12.2015, Blaðsíða 28
28 jólabækur pólitíkusa Helgin 22.-27. desember 2015
Hundadagar
syndara og
munaðarleysingja
Þ að er hefð fyrir því að gefa bækur í jólagjöf og er þá yfirleitt reynt að finna þá bók sem hæfir viðtakandum best.
Stjórnmálamenn fá væntanlega bækur eins og
aðrir og Fréttatíminn setti saman lítinn lista
yfir þær bækur sem henta þóttu í pakka nokk-
urra áberandi pólitíkusa. Tekið skal fram að
bækurnar voru eingöngu valdar út frá titlum
þeirra, ekki skal lagður nokkur dómur á það
hvort efni þeirra henti endilega viðkomandi
lesanda.
Friðrika Benónýsdóttir
fridrika@frettatiminn.is
Birgitta Jónsdóttir
Skrítin skógardís í
skóginum ógurlega
Birgitta stendur utan og
ofan við heim óarga-
dýranna í alþingisskóg-
inum og virðist á köflum
ekki skilja sjálf hvernig
í ósköpunum hún lenti
þar. Skógardísir kunna
þó ýmis ráð til að láta
til sín taka og það hefur
Birgittu tekist sé miðað
við síaukið fylgi Pírata í
skoðanakönnunum.
Katrín Jakobsdóttir
Flekklaus
Þrátt fyrir að fylgi VG fari
hraðminnkandi nýtur
Katrín alltaf jafn mikillar
aðdáunar og trausts
kjósenda, þeir vilja helst fá
hana sem forseta. Henni
hefur tekist að halda ímynd
heiðarlegu og flekklausu
konunnar í stjórnmálunum
í gegnum þykkt og þunnt.
Þessi bók gæti sem best
verið um hana miðað við titilinn.
Árni Páll Árnason
Munaðarleysinginn
Árni Páll er eiginlega
munaðarlaus í eigin flokki,
það vill enginn kannast
við að hafa getið hann
sem formann. Það ætti að
vera huggun í því að lesa
um hörmungar annarra
munaðarleysingja.
Sigmundur Davíð Gunnlaugsson
Erfið samskipti
Sigmundur Davíð opnar
varla svo munninn að
hann kvarti ekki undan
ofsóknum og loftárásum
fjölmiðla, og eiginlega allra
annarra, í sinn garð. Þessi
bók ætti að fræða hann
um það að samskipti eru
tvístefnugata: eins og þér
komið fram við aðra mun
endurspeglast í framkomu
þeirra við yður.
Ólöf Nordal
Krakka-
skrattar
Tveir albanskir drengir
sem vísað var úr landi
skóku samfélagið nýlega
og gerðu innanríkisráð-
herra skyndilega að einni
hötuðustu konu landsins.
Er ekki eðlilegt að álíta
að hún hafi í laumi
hugsað þeim þegjandi þörfina?
Bjarni Benediktsson
Syndarinn
Fjármálaráðherra lenti í
eldlínunni í haust þegar
upp komst að hann hafði
skráð sig á stefnumóta-
síðuna Ashley Madison
undir notandanafninu
icehot1. Það ætti því að
gleðja hann að upp úr
jólapakkanum kæmi bók
með titli sem hann gæti
samsamað sig.
Dagur B. Eggertsson
Viltu vera
vinur minn?
Dagur B. er stundum
kallaður skemmtana-
stjóri borgarinnar og
þykir hætta til að fórna
hagsmunum borgarbúa til
að styggja ekki háttsetta
– les fjársterka – „vini“
borgarinnar. Hann gæti
sem hægast gengið um í
samkvæmum fjárfesta og
verktaka með þennan bókartitil á hraðbergi.
Vigdís Hauksdóttir
Mamma klikk!
Val þessa titils handa
formanni fjárlaganefndar
þarfnast varla mikilla út-
skýringa. Eins og mamma
sem er klikkuð úr frekju
veður Vigdís yfir þá sem
henni þykja undir sig settir
og trúir því staðfastlega
að hennar vilji sé sá eini
sem skiptir máli. Kvartanir
„barnanna“ eru bara væl
og jafnvel einelti.
Illugi Gunnarsson
Hundadagar
Illugi varð undir í RÚV-
málinu og á sannkall-
aða hundadaga innan
ríkisstjórnarinnar nú um
stundir. Hundadagar eru
líka takmarkaðir að fjölda
til, sem gæti gefið honum
vísbendingu um hvert
stefnir í ráðherradómi
hans.
Össur Skarphéðinsson
Eiturbyrlarinn ljúfi
Össur er meistari í því
að senda pólitískum
andstæðingum eitraðar
pillur, ekki síst í Facebook-
færslum sínum, en hann
gerir það gjarnan undir
því yfirskyni að það sé
húmor og allt í góðu. Pill-
urnar eru þó jafneitraðar
fyrir því og ljúfmennskan
dregur ekkert úr eitur-
magninu.