Fréttatíminn - 22.12.2015, Blaðsíða 51
„Ég er að vísa í eitthvað sem er angra og trufla okkur í lífinu. Við sitjum samt áfram
en alltaf einhverjar áhyggjur og söknuður í hausnum. Ekki það að mér líði eitthvað
illa, því ég er mjög hamingjusamur maður,“ segir Rúnar Þórisson. Ljósmynd/Hari
TónlisT RúnaR ÞóRisson sendiR fRá séR plöTuna ólundaRdýR
Sannir rokkarar þagna aldrei
Tónlistarmaðurinn Rúnar
Þórisson gaf út frá sér plötuna
Ólundardýr í byrjun nóvem-
ber. Rúnar er enginn nýgræð-
ingur í tónlistarbransanum.
Hann var gítarleikari í ísfirsku
hljómsveitinni Grafík sem sló
í gegn á níunda áratugnum
og eftir að sveitin lagði upp
laupana hefur Rúnar gefið út
sitt eigið efni og er Ólundadýr
hans þriðja breiðskífa. Hann
segir að sköpunargleðin
sé alltaf í miklum mæli hjá
honum og ennþá er þetta það
sem honum finnst skemmti-
legast að gera.
é g er búinn að vera nokkuð lengi í þessu,“ segir Rúnar Þórisson tónlistarmaður.
„Auðvitað fyrst með hljómsveitinni
Grafík en svo fór ég í klassíkina
og hætti í rokkinu í nokkuð mörg
ár. Síðustu tíu árin hefur það hins
vegar ekki látið mig í friði,“ segir
hann. „Taugin er voðalega sterk.
Þetta er öðruvísi en í klassík-
inni þegar maður er að túlka verk
annarra. Það er öðruvísi sköpun
að vera að semja þetta sjálfur, bæði
texta og lög,“ segir hann. „Það
lætur mér mjög vel. Sköpunin er
alltaf undirliggjandi hjá mér, en ég
vinn efnið samt mikið í skorpum.
Ég er ekki með lagabanka eða lög
á lager. Ég sem í rauninni ekk-
ert umfram það sem kemur út frá
mér,“ segir Rúnar. „Þetta virkar
hreinlega þannig að ég ákveð að
gera plötu og sem þá mjög mark-
visst lög og texta fyrir þá plötu.
Þannig vinn ég þetta í grófum
dráttum,“ segir hann.
„Á þessari nýju plötu, Ólundar-
dýr, er undirliggjandi í öllum
textum hjá mér umhyggja og vissar
áhyggjur um hvað verða vill. Þetta
tengist ákveðinni hugsun og tilfinn-
ingum sem kvikna með árunum,
ekki síst þegar maður eignast börn
og barnabörn. Hvað verða vill hjá
þeim sem og öllum öðrum sem erfa
þessa jörð,“ segir Rúnar. „Þetta
kemur sterkt upp í huga mér þegar
kemur að textum og öðru. Ég er
að vísa í eitthvað sem er angra og
trufla okkur. Við siglum áfram í
lífinu en alltaf með undirliggjandi
áhyggjur, trega og söknuð í hausn-
um. Ekki það að mér líði eitthvað
illa, því ég er mjög hamingjusamur
maður,“ segir hann.
Rúnar er umkringdur góðu tón-
listarfólki í fjölskyldunni. Dætur
hans báðar hafa verið áberandi í
tónlistinni. Margrét, dóttir hans,
er söngkona í hljómsveitinni Him-
brimi og Lára Rúnarsdóttir er
þekkt stærð í íslensku tónlistarlífi.
Tengdasynir Rúnars eru svo báðir
tónlistarmenn svo það er auðvelt
að fá alla til þess að spila inn á
plötu með tengdaföðurnum. „Ég
nýt auðvitað góðs af þessu,“ segir
Rúnar. „Ég hugsa oft um að segja
við þau öll, að þau þurfi ekkert að
vera með í þessu. Þau megi alveg
segja nei,“ segir hann. „Ég veit
samt ekki hvort þau mundu gera
það. Þetta er auðvitað sérstakt en
einnig mjög skemmtilegt.”
„Ég verð með útgáfutónleika 15.
janúar á Rosenberg og á Akureyri í
febrúar. Svo hef ég haft mjög gam-
an af því að koma fram á hátíðum
eins og Aldrei fór ég suður, Secret
Solstice, Myrkum músíkdögum,
Iceland Airwaves og Listahá-
tíð,“ segir hann. „Við spiluðum
síðast á Airwaves í nóvember og
þar fengum við alveg glimrandi
móttökur svo manni var nánast
brugðið við lófaklapp og hróp á
milli laga. Þetta hættir aldrei að
vera skemmtilegt. Maður er ekki
fyrr búinn með eitt verkefni þegar
maður er byrjaður að hugsa það
næsta. Svo er ég að kenna á gítar
og var að gefa út námsefni í gítar-
kennslu og það er ákveðin sköpun
í því líka. Maður heldur áfram á
meðan það er gaman. Sannir rokk-
arar þagna aldrei,“ segir Rúnar
Þórisson gítarleikari.
Platan Ólundardýr fæst í öllum
helstu hljómplötuverslunum.
Hannes Friðbjarnarson
hannes@frettatiminn.is
Bankastræti 4 I sími: 551 2770
www.aurum.is
Full búð af nýjum og spennandi vörum.
HEILL HEIMUR AF HÖNNUNARVÖRUM
SKARTAÐU
ÞÍNU
FEGURSTA
Bankastræti 4 I sími: 551 2770
Íslensk skartgripahönnun
menning 51 Helgin 22.-27. desember 2015