Morgunblaðið - 19.12.2016, Síða 1
M Á N U D A G U R 1 9. D E S E M B E R 2 0 1 6
Stofnað 1913 297. tölublað 104. árgangur
dagar til jóla
5
Bjúgnakrækir kemur í kvöld
www.jolamjolk.is
ENN EITT GULLIÐ
TIL ÞÓRIS OG
NORSKA LIÐSINS
LESANDINN
ER SJÁLF
SÖGUHETJAN
UNGUR STÍLISTI
Á UPPLEIÐ Í
TÍSKUHEIMINUM
ÆVAR VÍSINDAMAÐUR 32 LILJA HRÖNN 12ÍÞRÓTTIR
Vilhjálmur A. Kjartansson
vilhjalmur@mbl.is
„Íslensk verslun væri ekki betur
stödd með inngöngu í Evrópusam-
bandið,“ segir Ágúst Þór Eiríks-
son, forstjóri Icewear, en í um-
ræðu um ESB er gjarnan vísað til
ódýrari verslunar og þjónustu.
„Ísland er eina vestræna landið
með fríverslunarsamning við Kína,
sem gerir okkur mögulegt að
kaupa og framleiða vörur í Kína og
flytja þær inn tollfrjálst,“ segir
Ágúst.
Innganga í Evrópusambandið
hefði það í för með sér að fríversl-
unarsamningur Íslands og Kína
myndi falla úr gildi, en það segir
Ágúst að myndi skekkja sam-
keppnisstöðu verslana sem selji
vörur til ferðamanna. „Það skekkir
samkeppnisstöðu okkar gagnvart
erlendum verslunum ef við göng-
um í ESB. Innkaupsverðið myndi
hækka um tæp 20 prósent við inn-
göngu og „tax free“ yrði ekki leng-
ur virkt gagnvart Evrópu.“
Styrking krónunnar
Spurður hvort styrking íslensku
krónunnar hafi slæm áhrif á sölu
til ferðamanna segir Ágúst að
styrkingin lækki fyrst og fremst
verð til íslenskra neytenda. „Með
styrkingu krónunnar verður enn
ódýrara fyrir okkur að kaupa
vörur og láta framleiða vörur fyrir
okkur utan Íslands. Það skilar sér
í lægra verði fyrir bæði ferðamenn
og íslenska neytendur.“
Helst er að innlend framleiðsla
verði dýrari, en Icewear framleiðir
allan ullarfatnað sinn hér á landi.
„Við erum með hátt í 30 manns í
vinnu hjá okkur að framleiða ullar-
vörur. Það er helst þar sem verð
gæti hækkað fyrir erlenda ferða-
menn en engu að síður erum við
með mjög samkeppnishæft verð,“
segir Ágúst.
Fríverslun skilar meiru en tollar
Innganga í Evrópusambandið myndi hækka verð á útivistarfatnaði og veikja sam-
keppnisstöðu Úlpur og annar fatnaður framleiddur í Kína fluttur inn tollfrjálst
Morgunblaðið/Ómar
Verslun Barátta um viðskipti ferða-
manna er alþjóðleg.
Landakirkja í Vestmannaeyjum var setin til
þrengsla í gærmorgun þegar þar var haldin
barnamessa á fjórða sunnudegi í aðventu.
Börn settust á kirkjugólfið til að fá sæti og-
úr Austurlöndum og sáu Jesúbarnið í jötu,
eins og Matteus greinir frá í guðspjalli sínu.
Jólaundirbúningurinn setur svip á sam-
félagið um allt land þessa dagana. »6
nutu vel þess sem fram fór. Skrautlega búin
börn, sum með kórónur og önnur með
hirðisstafi, sýndu helgileik um það þegar
vitringarnir fylgdu leiðsögn stjörnu alla leið
Hirðar, englar og vitringar í Vestmannaeyjum
Húsfyllir á barnamessu í Landakirkju þar sem börn úr 5. bekk sýndu helgileik
Ljósmynd/Óskar Pétur Friðriksson
Vilhjálmur A. Kjartansson
vilhjalmur@mbl.is
Efnahagslífið hefur tekið við sér á síðustu árum og
má sjá það á fækkun umsókna til hjálparsamtaka,
að sögn Vilborgar Oddsdóttur, félagsráðgjafa og
umsjónarmanns innanlandsstarfs Hjálparstarfs
kirkjunnar.
„Fólki sem leitar til okkar er að fækka. Við
skráum alla sem sækja um aðstoð, bæði ástæðu um-
sóknar og hvaðan hún kemur. Þannig sjáum við t.d.
að fækkað hefur verulega skráningum fólks af Suð-
urnesjum og almennt um landið.“
Eins hefur nýjum umsóknum fækkað mikið, en
2009 og 2010 var önnur hver umsókn ný. „Við sjáum
síður ný andlit og það segir manni að ástandið er að
lagast,“ segir Vilborg.
Rýmka skilyrði um jólin
Hópurinn sem sækir sér aðstoð alla jafna er lág-
tekjufólk og barnmargar fjölskyldur. Í desember
bætist í hópinn, en þá dregur kirkjan úr skilyrðum
til aðstoðar.
Fatagjöfum hefur fjölgað og til Hjálparstarfsins
leita í auknum mæli hælisleitendur og flóttamenn.
„Í lok nóvember og byrjun desember kom töluverð-
ur fjöldi til okkar í fatagjöfina og þar af voru flestir
af erlendum uppruna, hælisleitendur í leit að hlýj-
um fötum.“
Útlendingastofnun sér hælisleitendum fyrir bæði
húsnæði og fæði en Vilborg segir marga ekki gera
sér grein fyrir kuldanum hér og þá grípi Hjálpar-
starf kirkjunnar inn í og útvegi hlý og góð föt.
Þeim fækkar
sem sækja
um aðstoð
Hælisleitendur fá föt
hjá Hjálparstarfinu
Tillögu endurskoðendaráðs að svipta Guðmund
Jóelsson, löggiltan endurskoðanda í rúmlega
40 ár, réttindum sínum var hafnað í annað sinn
af iðnaðar- og viðskiptaráðuneytinu með til-
vísun í meðalhófsreglu stjórnsýslulaga.
Guðmundur hefur átt í deilum við ráðið
vegna ólögfestra alþjóðaskilmála, sem hann tel-
ur að ekki eigi að byggja gæðaeftirlit á. »20
Tillögum endurskoðenda-
ráðs hafnað í annað sinn