Morgunblaðið - 19.12.2016, Side 8
8 FRÉTTIRInnlent
MORGUNBLAÐIÐ MÁNUDAGUR 19. DESEMBER 2016
HUMAR
Sogavegi 3
Höfðabakka 1
Sími 555 2800
HUMARSÚPA
FISKIKÓNGSINS
SKELFLETTUR
HUMAR
HUMAR HUMAR
3.900 kr.kg 4.900 kr.kg
Stærð 30/40 Stærð 24/30
HUMAR
5.900 kr.kg
Stærð 18/24
HUMAR
6.900 kr.kg
Stærð 15/18
HUMAR
7.900 kr.kg
Stærð 12/15
HUMAR
8.900 kr.kg
Stærð 9/12
HUMAR
9.900 kr.kg
Stærð 7/9
Tryggingagjaldið er gert aðumtalsefni í leiðara nýút-
komins fréttabréfs SA. Leið-
arinn, sem Hannes G. Sigurðsson
framkvæmdastjóri ritar, hefst á
þessum orðum:
„Tryggingagjaldið
er vondur skattur
sem leggst á öll
laun og dregur úr
nýsköpun í at-
vinnulífinu. Það
bitnar sérstaklega
á litlum fyr-
irtækjum þar sem launagjöld eru
yfirgnæfandi hluti rekstr-
argjalda, en lítil fyrirtæki eru
meginuppspretta nýrra starfa í
efnahagslífinu. Lækkun þess er
því til þess fallin að stuðla að
aukinni nýsköpun og bættum hag
landsmanna þegar fram í sækir.“
Í leiðaranum er gagnrýnthvernig tryggingagjaldið hef-
ur þróast og hvernig stjórnvöld
hafi hækkað almenna hluta þess
þegar atvinnuleysi minnkaði í
stað þess að láta gjaldið lækka
að fullu eftir aðstæðum. Stjórn-
völd hafi „fallið í þá freistingu
að marka stefnu sem felur í sér
stöðuga hækkun trygginga-
gjalds“, en um þessa stefnu verði
engin sátt, og skyldi engan
undra.
Í leiðaranum er bent á aðtryggingagjaldið þyrfti að
lækka um tæpt eitt prósent til að
verða sambærilegt við það sem
það var áður en vinstri stjórnin
hóf að hækka það. Fullyrða má
að fyrirtækin í landinu munar
verulega um þetta eina prósent.
Sérkennilegt er, þegar skattareru flestir eins og trygginga-
gjaldið, of háir, að þá skuli kröf-
ur um skattahækkun þvælast
fyrir stjórnarmyndun. Nær væri
að í þeim viðræðum væri rætt
hversu mikið skattar ættu að
lækka.
Hannes G.
Sigurðsson
„Tryggingagjaldið
er vondur skattur“
STAKSTEINAR
Veður víða um heim 18.12., kl. 18.00
Reykjavík 4 alskýjað
Bolungarvík 5 rigning
Akureyri 5 skýjað
Nuuk -11 léttskýjað
Þórshöfn 9 súld
Ósló -6 skýjað
Kaupmannahöfn 4 alskýjað
Stokkhólmur 0 heiðskírt
Helsinki 0 þoka
Lúxemborg 5 alskýjað
Brussel 6 þoka
Dublin 8 skýjað
Glasgow 9 alskýjað
London 6 þoka
París 4 þoka
Amsterdam 7 þoka
Hamborg 6 skýjað
Berlín 5 súld
Vín 0 rigning
Moskva 0 snjókoma
Algarve 17 léttskýjað
Madríd 10 léttskýjað
Barcelona 13 léttskýjað
Mallorca 13 rigning
Róm 11 heiðskírt
Aþena 8 léttskýjað
Winnipeg -27 léttskýjað
Montreal -4 snjókoma
New York 9 þoka
Chicago -14 heiðskírt
Orlando 26 skýjað
Hægt er að lýsa skoðun á ritstjórnar-
greinum Morgunblaðsins á slóðinni
http://mbl.is/mogginn/leidarar/
VEÐUR KL. 12 Í DAG
19. desember Sólarupprás Sólsetur
REYKJAVÍK 11:22 15:30
ÍSAFJÖRÐUR 12:09 14:52
SIGLUFJÖRÐUR 11:53 14:33
DJÚPIVOGUR 11:00 14:50
Akureyrarbær vill byggja tvö smáhýsi
í bænum fyrir fólk með fjölþættan
vanda á lóð bæjarins við Norðurtanga
7. Þetta var samþykkt af skipulags-
nefnd bæjarins á dögunum en aðeins
sem tímabundin lausn. Þörfin á úrræði
hafi verið bráð og því hafi meirihluti
nefndarinnar samþykkt tillöguna, sem
kom frá vinnuhópi skipulagsdeildar og
fjölskyldudeildar. Einstaklingar sem
nýta munu úrræðið glíma ýmist við
fíkn eða annan vanda sem gerir þeim
erfitt fyrir að búa í fjölbýli.
„Þessi lausn byggir á því að þarna
var lóð í eigu Akureyrarbæjar þar
sem við gátum brugðist hratt við og
staðsett smáhýsin en lausnin er ekki
fullkomlega að skapi nefndarinnar og
við leitum að varanlegri lausn til
framtíðar, nær samfélaginu,“ segir
Tryggvi Már Ingvarsson, formaður
skipulagsnefndar bæjarins, en honum
hafi þótt staðsetningin of afskekkt.
Vandann hafi borið brátt að sem leysa
hafi þurft án tafar.
Smáhýsunum sem komið verður
fyrir á Norðurtanga svipar til úrræðis
sem Reykjavíkurborg greip til árið
2008 þegar fjórum smáhýsum fyrir
útigangsfólk var komið fyrir á Fiski-
slóð í Reykjavík. Þar var fyrirmyndin
norræn hönnun og bygging sérsniðin
að íslenskum aðstæðum.
laufey@mbl.is
Bærinn bregst við bráðum vanda
Akureyrarbær reisir smáhýsi á Norður-
tanga fyrir fólk með fjölþættan vanda
Morgunblaðið/Skapti Hallgrímsson
Akureyri Færa á smáhýsin nær
samfélaginu til framtíðar.
Flutningi borkjarnasafns Náttúru-
fræðistofnunar Íslands (NÍ) frá
Akureyri til Breiðdalsvíkur lauk
fyrir rúmu ári. Uppbygging safns-
ins er vel á veg komin, samkvæmt
frétt NÍ. Borkjarnasafnið hýsir í
dag 30-40.000 metra af bor-
kjörnum úr yfir 800 borholum.
Starfsemin hefur aukið sókn jarð-
fræðinga og nemenda í jarðfræði
til Breiðdalsvíkur, sem vilja fræð-
ast um jarðfræði Íslands.
„Borkjarnar gera jarðfræð-
ingum mögulegt að skoða þann
hluta berggrunnsins sem ekki er
sýnilegur á yfirborði jarðar og
þeir veita mikilvægar upplýsingar
um gerð og uppbyggingu jarðlaga
á viðkomandi svæði,“ segir í frétt-
inni.
Hýsa kjarna
úr 800 holum
Geymdir í slátur-
húsi á Breiðdalsvík
Ljósmynd/NÍ/Birgir Vilhelm Óskarsson
Breiðdalsvík Borkjarnar geyma
sýni úr borholum víða um land.