Morgunblaðið - 19.12.2016, Side 16
16 FRÉTTIRInnlent
MORGUNBLAÐIÐ MÁNUDAGUR 19. DESEMBER 2016
L Á G M Ú L A 8
S Í M I 5 3 0 2 8 0 0
Jóla
dagar
kr. 29.900,-
Skaftryksuga
m/Lithium rafhlöðu
Ultra Silencer
800w
EQUIPT
kr. 13.900,-
CE4120
kr. 17.900,- kr. 36.900,-
Jólatilboðsverð kr. 149.639,-
Með fylgir Vitamix sleif, drykkjarmál
og svunta
Fullt verð kr. 199.518,-
Vitamix Pro 750 á sér
engann jafningja.
Nýtt útlit og nýir
valmöguleikar.
5 prógrömm og
hraðastillir sjá til þess
að blandan verður
ávallt fullkomin og
fersk!
Galdurinn við
ferskt hráefni
Rauðagerði 25 108 Rvk Sími 440-1800 www.kaelitaekni.is
Tillaga Studio Granda varð í fyrsta
sæti í hönnunarsamkeppni um ný-
byggingu á Alþingisreitnum. Í öðru
sæti var tillaga frá T.ark arkitektar
og í þriðja sæti tillaga frá PKdM
arkitektar. 22 tillögur bárust í
keppnina og auk verðlaunatillagn-
anna fengu tvær tillögur viðurkenn-
ingu með innkaupum og þrjár fengu
viðurkenningu sem athyglisverðar
tillögur. Greint var frá niðurstöðum
á laugardag, en formaður dómnefnd-
ar var Einar K. Guðfinnsson, fyrr-
verandi forseti Alþingis.
Í skýrslu dómnefndar segir að eft-
ir talsverðar umræður um framtíð-
arhúsnæði Alþingis sl. misseri hafi
niðurstaðan orðið sú að ráðast í ný-
byggingu á Alþingisreitnum, í suð-
vesturhluta hans, á gatnamótum
Vonarstrætis og Tjarnargötu. Hinni
nýju byggingu sé ætlað að tengjast
Alþingishúsinu og Skálanum vel og
vera órofa hluti af þinghúsbygging-
unum. Þar muni alþingismenn hafa
skrifstofur sínar, svo og þingnefndir,
þingflokkar og starfsfólk Alþingis.
Höfundar verðlaunatillögunnar
eru Arkitektar Studio Granda og
höfundur listskreytingar er Kristinn
E. Hrafnsson. Um verðlaunatillög-
una segir: „Sú tillaga sem dómnefnd
er einhuga um að velja til 1. verð-
launa felur í sér sannfærandi og list-
ræna heildarlausn á þeim húsnæðis-
og skipulagsmálum Alþingis sem að-
kallandi er að hrinda í framkvæmd.
Jafnframt sýnir hún fram á dýr-
mæta möguleika til framtíð-
arþróunar á húsakosti þingsins.
Höfundar leitast við að tengja ný-
bygginguna við sögu Alþingis og
þróun byggðar í Kvosinni allt frá
landnámsöld. Minjar um upphaf
byggðar og minni úr seinni tíma
byggingarsögu Reykjavíkur eru
dregin fram og mynda samþætta
heild með nýrri byggingarlist sem
ber samtíð sinni vitni af hógværð og
tillitssemi við nánasta umhverfi.
Merkisberi framsækinnar og
vandaðrar byggingarlistar
Höfundar leggja áherslu á að
styrkja og fegra þau borgarrými
sem fyrir eru við jaðra reitsins frem-
ur en að skapa ný inn á miðju hans.
Tengsl samtíðar við atburði fyrri
alda eru viðfangsefni myndlist-
arverks við aðalinngang og þau end-
urspeglast jafnframt í hugmynd um
lagskipta steinklæðingu á ytra borði
aðalbyggingar.
Innra skipulag allra hæða er vel
leyst og öll vinnurými njóta dags-
birtu og beinnar útloftunar í annars
samþjappaðri byggingu. Hring-
gangur innan hverrar hæðar um-
hverfis ljósgeil í miðju býður upp á
margbreytileg sjóntengsl og sveigj-
anleika í nýtingu. Í heild er tillagan
verðugur merkisberi framsækinnar
og vandaðrar byggingarlistar fyrir
Alþingi á 21. öldinni á líkan hátt og
Alþingishúsið við Austurvöll var
tákn nýrra tíma í listhugsun og
verkmenningu á 19. öld.“
Sýning á öllum tillögum sem
nefndinni bárust verður opin á 1.
hæð Landssímahússins (gengið inn
frá Austurvelli) á virkum dögum kl.
16–18 fram að áramótum. aij@mbl.is
Breytt götumynd Suðvesturhlið nýja hússins sem á að rísa á Alþingisreitnum. Sitt hvorum megin við Vonarstrætið
verða nýja húsið og Ráðhús Reykjavíkur, en Arkitektar Studio Granda unnu einnig samkeppni um það.
Dýrmætir möguleikar
í þróun á húsum þingsins
Studio Grandi vann í samkeppni um byggingu fyrir þingið
Morgunblaðið/Golli
Samkeppni Einar K. Guðfinnson, fyrrverandi forseti AlÞingis, afhendir
Margréti Harðardóttur og Steve Christer, Studio Granda, 1. verðlaunin.
„Það er gert ráð fyrir þessu í
ríkisfjármálaáætlun og fjár-
lagafrumvarpi og ég vonast til
þess að á síðari hluta næsta árs
gæti verið hægt að hefjast handa,“
segir Steingrímur J. Sigfússon,
forseti Alþingis, spurður um
næstu skref varðandi nýbyggingu
á Alþingisreitnum en á laugardag
var tilkynnt um niðurstöðu í hönn-
unarsamkeppni sem efnt var til
um nýja húsið.
Bjóða þarf framkvæmdina út og
semja um hluti því tengda og þá
er líklegt að bygginganefnd verði
skipuð. „Þetta er allt gert í sam-
ráði við framkvæmdasýsluna sem
hefur verið okkur innan handar
með þetta allt saman hingað til,“
bætir Steingrímur við en þreng-
ingar hafa verið í húsnæðismálun
þingsins, sérstaklega nú eftir
kosningar þegar stjórnmálaflokk-
um fjölgaði. laufey@mbl.is
Framkvæmdir við nýbyggingu hefjist 2017