Morgunblaðið - 19.12.2016, Page 21

Morgunblaðið - 19.12.2016, Page 21
21 MORGUNBLAÐIÐ MÁNUDAGUR 19. DESEMBER 2016 Jólatónleikar Hátíðleiki var í fyrirrúmi á jólatónleikum Sinfóníuhljómsveitar Íslands um liðna helgi. Þar komu m.a. fram nemendur úr Listdansskólanum sem túlkuðu Blómavals Tsjajkovskíjs. Golli Hinn 19. desember árið 2016 er aldarfjórð- ungur liðinn frá því, að Ísland varð fyrst til þess vestrænna ríkja að viðurkenna Slóven- íu, eitt hinna mörgu smáríkja, sem risu upp úr rústum komm- únismans. Í frægri rit- gerð um menningu smáþjóða sagði tékk- neski rithöfundurinn Milan Kundera, að sendimenn þeirra yrðu að hírast frammi í bið- stofum, á meðan fulltrúar stóru ríkjanna kysu þeim örlög inni í fund- arsölum. En árið 1991 virtist sem þessi raunsanna og sorglega lýsing ætti skyndilega ekki lengur við. Fyr- ir Júgóslavíu fór eins og Ráðstjórn- arríkjunum, að hún liðaðist í sundur, enda hafði henni verið haldið saman með valdi, en ekki vali íbúanna sjálfra. Þjóðirnar, sem byggðu land- ið, stofnuðu hver sitt ríki. Smáþjóðir í eigin ríkjum Hver er ástæðan til þess, að smá- þjóðir stofna eigin ríki? Á nítjándu öld spurði franski rithöfundurinn Ernest Renan hvað gerði heild að þjóð, og svar hans var, að það væri viljinn til að vera saman þjóð. Með öðrum orðum skilgreindist þjóðin af sífelldu og samfelldu vali frjálsra einstaklinga, gagnkvæmri við- urkenningu þeirra, daglegri at- kvæðagreiðslu. Þjóðin væri sjálf- sprottin eining, sem helgaðist af sögu, tungu, menningu, landi. Á síð- ustu tveimur öldum hafa frjáls al- þjóðaviðskipti síðan auðveldað smá- þjóðum leikinn: Þær hafa efni á því að vera sjálfstæðar, af því að þær geta nýtt sér kosti verkaskiptingar og viðskipta, framleitt fyrir heims- markað. Árið 1946 voru sjálfstæð ríki 76 talsins, en nú eru aðildarríki Sameinuðu þjóðanna 193, auk þess sem Páfagarður og Palestína eiga þar áheyrnarfulltrúa og Taívan og Kosovo taka þátt í margvíslegri al- þjóðlegri starfsemi eins og sjálfstæð ríki. Það kann að hljóma einkennilega, en er þó skiljanlegt og eðlilegt, að samruni markaða fer saman við aukna sundurleitni ríkja: Því stærri sem markaðurinn er, því minni sjálfstjórn- arsvæði fá staðist, því að þá þurfa ríki ekki að reka kostnaðarsaman sjálfsþurftabúskap. Með því að smáþjóðir eru oft samleitar frek- ar en sundurleitar, er traust oftast meira þar og framleiðsla sumra samgæða eins og löggæslu og menntunar ódýrari en hjá stórþjóðum. Samrunaþróun í viðskiptum hefur því alls ekki í för með sér samrunaþróun í stjórn- málum, eins og sumir halda, heldur frekar hið gagnstæða, eins og fjölg- un lítilla þjóðríkja hin síðari ár sýnir best. Sjálfstæði Slóveníu Slóvenía er ekki stór að flatarmáli, fimmtungur Íslands, 20 þúsund fer- kílómetrar. Í Mið-Evrópu hefur landið jafnan verið í þjóðbraut, en þess vegna um leið vígvöllur, og urðu Slóvenar illa úti í heimsstyrj- öldunum tveimur. Þeir eru nú rösk- ar tvær milljónir talsins og tala slóv- ensku, suður-slavneskt mál, skylt króatísku og serbnesku. Árið 1990 greiddu 88% kjósenda atkvæði með sjálfstæði, og var því lýst yfir 25. júní 1991. Her Júgóslavíu, sem þá var enn til, reyndi með valdi að koma í veg fyrir aðskilnað, og hlaust af tíu daga stríð, sem lauk með vopnahléi. Vildi Slóvenum til happs, að þeir áttu ekki landamæri að landi Serba, sem börðust fyrir sameinaðri Júgó- slavíu. Þjóðverjar og Austurríkismenn beittu sér hart innan Evrópusam- bandsins fyrir viðurkenningu Slóv- eníu, en aðrir vildu fara hægar í sak- ir. Fyrst til að viðurkenna landið opinberlega voru nýfrjáls ríki í Mið- og Austur-Evrópu, Litháen og Úkraína. Ísland varð næst til þess, og voru þeir Davíð Oddsson for- sætisráðherra og Jón Baldvin Hannibalsson utanríkisráðherra mjög samstiga um það. Þeir Davíð og Janez Drnovsek, sem var for- sætisráðherra Slóveníu 1992–2002, urðu góðir vinir. Þegar Davíð veikt- ist alvarlega sumarið 2004, hafði Drnovsek, sem nú var orðinn forseti Slóveníu, strax samband og bauð honum að dveljast sér til hvíldar og hressingar í sumarhúsi, sem hann hafði til ráðstöfunar. Á ýmsu hefur gengið í stjórn- málum Slóveníu, frá því að landið fékk sjálfstæði, en hagur þess vænk- ast jafnt og þétt. Þótt samskipti Ís- lands og Slóveníu séu ekki mikil, eru þau vinsamleg. Ríkin hafa haft stjórnmálasamband frá 1992, og heiðursræðismenn starfa í þeim báð- um, Vlado Luznik í Ljubljana og Sigtryggur Eyþórsson í Reykjavík. Góð vinkona mín frá Slóveníu, sagn- fræðingurinn dr. Andreja Zver, kom til Íslands haustið 2013 og flutti í Þjóðarbókhlöðunni fyrirlestur í minningu fórnarlamba alræðisstefn- unnar í Evrópu á tuttugustu öld. Lýsti hún því, hvernig fasistar, nas- istar og kommúnistar hefðu vaðið yf- ir land sitt, kúgað fólk og drepið. Enn væru að finnast þar fjöldagrafir frá alræðistímanum. Morgunblaðið birti viðtal við Zver 17. september 2013, en hún er gift einum virtasta stjórnmálamanni Slóveníu, Milan Zver, sem situr á Evrópuþinginu. „Lýðræðið er hvergi greypt í stein, ekki einu sinni á Íslandi,“ sagði hún. Spurning, veðmál, áhætta Í ritgerð sinni um menningu smá- þjóða skrifaði Milan Kundera í svip- uðum anda: „Það sem greinir smá- þjóðir frá þeim stóru er ekki íbúafjöldinn; það er eitthvað mun djúpstæðara: tilvera þeirra er ekki sjálfsagður hlutur, heldur stöðug spurning, veðmál, áhætta; þær eru í varnarstöðu gagnvart mannkyns- sögunni, þessu afli sem er þeim yf- irsterkara, sem tekur þær ekki með í reikninginn, sér þær ekki einu sinni.“ Íslendingar og Slóvenar geta sameinast um að svara spurning- unni, taka áhættuna, varðveita vilj- ann til sjálfstæðis. Þessar tvær smá- þjóðir geta haft í huga, að Guð er ekki hliðhollur fjölmennustu her- sveitunum, heldur bestu skyttunum. Þær þurfa báðar að berjast fyrir heimi, sem ekki er stjórnað af duttl- ungafullum tröllum, heldur almenn- um og arfhelgum lögmálum um frelsi einstaklinga og þjóða. Eftir Hannes H. Gissurarson »Með því að smáþjóð- ir eru oft samleitar frekar en sundurleitar, er traust oftast meira þar og framleiðsla sumra samgæða eins og löggæslu og menntunar ódýrari en hjá stór- þjóðum. Hannes Hólmsteinn Gissurarson Höfundur er prófessor í stjórn- málafræði í Háskóla Íslands. Tvö smáríki bindast vináttuböndum Fyrirlestur Dr. Andreja Zver flytur fyrirlestur í Þjóðarbókhlöðunni 16. september 2013 um reynslu Slóvena af alræðisstefnu tuttugustu aldar, fas- isma, nasisma og kommúnisma. Illugi Gunnarsson menntamálaráðherra stjórnar fundinum. Vinskapur Davíð Oddsson, forsætisráðherra Íslands, og Janez Drnovsek, forsætisráðherra Slóveníu, reyna með sér skotfimi 16. maí 2000 í opinberri heimsókn Davíðs til Slóveníu. Slóvenar kunnu vel að meta, að Ísland varð fyrsta vestræna ríkið til að viðurkenna Slóveníu.

x

Morgunblaðið

Direct Links

If you want to link to this newspaper/magazine, please use these links:

Link to this newspaper/magazine: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Link to this issue:

Link to this page:

Link to this article:

Please do not link directly to images or PDFs on Timarit.is as such URLs may change without warning. Please use the URLs provided above for linking to the website.