Morgunblaðið - 19.12.2016, Side 25
MINNINGAR 25
MORGUNBLAÐIÐ MÁNUDAGUR 19. DESEMBER 2016
lega mikla ánægju af því að dást
saman að þeim og lofa þá gæfu að
fá að njóta þeirra. Við vorum
ófeimnar hvor við aðra í þessum
samræðum og spöruðum ekki
hrósyrðin. Guðrún var mjög stolt
af börnum sínum og barnabörnum
og naut samvista við þau öll.
Kynnum Haraldar sonar okkar
Hallgríms og Önnu dóttur Guð-
rúnar fylgdi mikil gæfa. Við Hall-
grímur höfum átt fjölmargar
ánægjustundir með góðri, hlýrri,
skemmtilegri og samhentri fjöl-
skyldu Guðrúnar síðustu árin við
margvísleg tækifæri. Þá var æv-
inlega mikið hlegið, mikið talað og
mikil umhyggja og kærleikur
sýndur ættmóðurinni Guðrúnu.
Mér er Guðrún einkar minnis-
stæð sem gestgjafi á fallegu heim-
ili sínu á Reynimel. Hún naut sín
vel í því hlutverki, því hún var
gestrisin og örlát. Allt bar smekk-
vísi hennar vitni. Ekki síst var lögð
áhersla á samræður í þessum
veislum og var gjarnan rætt um
landsins gagn og nauðsynjar. Guð-
rún var skörp og fróð og lagði gott
til málanna, hún fylgdist vel með
og hafði gert það lengi og hafði
góða yfirsýn. Ég lagði ávallt við
hlustir þegar hún fór yfir sjónar-
mið sín. Guðrún hafði yndi af lestri
og stytti sér mjög stundir við bók-
lestur, ekki síst síðustu árin þegar
um hægðist.
Einkar ánægjulegt var að
kynnast fordómaleysi Guðrúnar
Karlsdóttur. Hún var sjálf hógvær
og nálgaðist aðra án allrar dóm-
hörku. Það var hollt að heyra hana
tala um fólk og sjá hvernig hún
nálgaðist alla jafnt.
Þegar ég rita þessi orð er sem
ég heyri glaðan og smitandi hlátur
Guðrúnar, sem var sérstaklega
hláturmild og glaðlynd. Oft var til-
efnið eitthvað óvænt úr daglega
lífinu sem hún kom auga á, en aðr-
ir ekki fyrr en á var bent.
Hún sýndi mikla þrautseigju,
ekki síst hin síðustu ár, þegar lík-
amlegri heilsu hennar tók að
hraka. Andlegu atgervi hélt hún til
hinsta dags. Hún stóð meðan
stætt var, sjálfstæð og sjálfri sér
nóg.
Guðrún Karlsdóttir kvaddi þeg-
ar dagurinn er hvað stystur og
dimman grúfir yfir. Birtan er þó
ekki langt undan með huggun
sinni og von. Sú von og allar góðu
minningarnar munu sefa sorgir
fjölskyldu og vina á kveðjustund
og þegar fram líða stundir.
Ragnheiður Haraldsdóttir.
Það var vorið 1999 sem við fjöl-
skyldan fluttum heimili okkar í
Reykjavík á Reynimel 62. Þar í
húsinu hafði Guðrún Karlsdóttir
nokkru fyrr búið sér glæsilegt
heimili eftir að hún varð ekkja og
börnin flutt að heiman. Við kom-
ust fljótt að því að við vorum sér-
lega heppin að hafa hana fyrir ná-
granna svo að ekki varð á betra
kosið. Eðlislæg háttvísi, hógværð
og tillitssemi einkenndi framkomu
hennar við okkur öll.
Við hjónin vorum með gest-
kvæmt heimili, börn á öllum aldri
og þeim fylgdu félagar og vinir svo
að oft var mikið um að vera á
heimilinu en aldrei kvartaði Guð-
rún eða lét í ljós að allur þessi um-
gangur og erill, sem honum fylgdi,
ylli henni óþægindum eða ama.
Sigríður Erla, yngsta dóttir okkar,
minnist með þakklæti góðra sam-
skipta við Guðrúnu. Þegar Sigríð-
ur Erla var í grunnskóla og fyrir
kom að hún læsti sig úti átti hún
alltaf víst skjól hjá Guðrúnu sem
gaf henni mjólk og kökur og leyfði
henni að bíða hjá sér eftir heim-
komu einhvers úr fjölskyldunni.
Vinátta þeirra var góð og þar var
ekkert kynslóðabil. Við fjölskyld-
an höfum fylgst með vaxandi
heilsubresti Guðrúnar en engu að
síður kom andlát hennar okkur á
óvart og við munum sakna hennar.
Að leiðarlokum þökkum við fyrir
góð kynni og samveru liðinna ára
og sendum börnum, tengdabörn-
um og barnabörnum Guðrúnar
innilegar samúðarkveðjur.
Hallgerður Gunnarsdóttir og
Sturla Böðvarsson.
✝ Jónína Ísleifs-dóttir (Nína)
fæddist 21. maí
1941 í Reykjavík.
Hún lést 10. desem-
ber 2016. Foreldrar
hennar voru Ísleif-
ur Kristberg Magn-
ússon frá Heina-
bergi, f. 19. júlí
1914, d. 2. október
1983, og Guðríður
Gestsdóttir frá
Syðra-Skógarnesi, f. 18. febrúar
1918, d. 1. ágúst 1979.
Jónína var elst þriggja alsyst-
kina. Skúli, f. 1942, d. 1998,
Gestur Sigurður, f. 1944, d.
1995. Hálfsystkini Jónínu, sam-
feðra, eru Kristjana Þórey, f.
1936, d. 2014, Gunnar Þór, f.
1938, d. 2003, Gunnhildur, f.
1951, Fjóla Sigrún, f. 1956, Kar-
ólína Sif, f. 1959, og Magnús Jó-
hann, f. 1965. Fóstursystir Jón-
ínu er Sólrún Laufey
Karlsdóttir, f. 1962, dóttir Guð-
ríðar.
Jónína eignaðist fjögur börn
með Kjartani Milson Berg frá
Færeyjum, f. 7. nóvember 1932,
d. 23. desember 2012. Þau
skildu. Börn þeirra; 1) Þórunn
Sigurbjörg Berg, f. 1961, d.
1963, 2) Skúli Berg, f. 1963,
maki Auður Yngvadóttir, f.
1963. Skúli á fyrir börnin 1) Ey-
þór Elmar Berg, f. 1982, hann á
einn son. 2) Guðmund Viðar
Berg, f. 1983, maki Johanne
1996. Magnús á einn son fyrir. 2)
Katla Vilmundardóttir, f. 1988,
maki Hjörtur Magni Sigurðsson,
f. 1990, eiga þau eina dóttur. 3)
Þóra Björg, f. 1993, maki Krist-
inn Bergsson, f. 1992, þau eiga
einn son. 3) Anna María, f. 1997,
og Bjarni Sævar, f. 2000.
Fósturbörn Jónínu og börn
Halldórs eru Gestur, f. 1960,
Sæmundur, f. 1961, Stefán, f.
1962, og Þórhildur Elísabet, f.
1963, d. 2016.
Eiginmaður Jónínu er Jón
Einar Rafnsson, f. 21. mars
1955, en hann er sonur
hjónanna Rafns Jónssonar, f.
1932, d. 2013, og Þórunnar Arn-
ardóttur, f. 1935, búsett í Borg-
arnesi.
Jónína ólst upp á Bræðra-
borgarstíg í Reykjavík. Hún
stundaði m.a. nám við Flensborg
og lauk sveinsprófi í ljós-
myndun.
Jónína bjó á höfuðborg-
arsvæðinu fram til ársins 1973
þegar hún fluttist til Horn-
arfjarðar þar sem hún var með
búskap á Nýpugörðum.
Jónína fluttist til Kópavogs
árið 1979 eftir að móðir hennar
veiktist alvarlega. Hún fluttist
síðan til Akraness og starfaði
þar m.a. á sjúkrahúsinu á Akra-
nesi. Á Akranesi bjó hún í nokk-
ur ár og fluttist þaðan til Ólafs-
víkur með eftirlifandi
eiginmanni sínum, Jóni Einari.
Þau bjuggu síðustu árin á Hell-
issandi.
Útför Jónínu fer fram frá
Dómkirkjunni í Reykjavík í dag,
19. desember 2016, kl. 11.
Kristín K. Skjön-
haug, f. 1988, eiga
þau einn son, 3)
Þórunni Sig-
urbjörgu Berg, f.
1985, maki Baldur
Hannesson, f. 1988,
eiga þau einn son.
Fósturbörn Guð-
mundur Geir Ein-
arsson, f. 1985, og
Sigrún Anna Auð-
ardóttir, f. 1993.
Guðríður Kristín Berg, f. 1964,
d. 1986. María Petrína Berg, f.
1967, maki Sigurður Pétur Guð-
mundsson, f. 1963, börn þeirra;
1) Regína Hrönn, f. 1984, maki
Marinó Gunnarsson, f. 1986,
eiga þau eina dóttur. 2) Jónína
Helga, f. 1987, maki Sveinn Be-
noný Magnússon, f. 1988, eiga
þau tvö börn. 3) Jóhann Einar, f.
1989, maki Ingibjörg Lilja Krist-
jánsdóttir, f. 1994, eiga þau einn
son, og Karen Ingibjörg, f. 1994,
maki Bruno Birins, f. 1993.
Jónína eignaðist tvo syni með
Halldóri N. Grímssyni, f. 1. júní
1940. Skildu. Börn þeirra Þor-
lákur Grímur Halldórsson, f.
1968, unnusta Magnea Rán Guð-
laugsdóttir, f. 1969. Börn Þor-
láks Særún Ösp, f. 1994, og
Aníta Ólöf, f. 2004.
Þóroddur Halldórsson, f.
1971, maki Guðbjörg Særún
Sævarsdóttir, f. 1970. Börn
þeirra 1) Magnús, f. 1987, maki
Jóhanna Perla Gísladóttir, f.
Elsku mamma mín, þú ert far-
in til austursins eilífa. Þú ert
komin til Þórunnar Sigurbjargar
og Guðríðar Kristínar (Dinnu),
barna sem þú fékkst ekki að sjá
þroskast og dafna í þessari jarð-
vist. En við vitum að þær hafa
verið á góðum stað og fengið
verkefni við sitt hæfi hjá Guði.
Það er ekki hægt að lýsa því með
orðum hversu mikið ég sakna þín.
Fæ ekki að heyra lengur rödd
þína, finna ást þína og virðingu
sem þú sýndir öllum í þessari til-
veru. Þú kvartaðir aldrei og lést
aldrei vita ef þér leið illa og
fannst til í sálinni vegna þess
ástvinamissis sem þú gekkst í
gegnum, auk annarra ófara. Ég
veit og þú meintir það þegar þú
talaði um að ég hafi verið bjarg-
vættur þinn í lífi þínu, þegar Þór-
unn systir lá á líkbörunum 14
mánaða gömul. Ást þín til mín var
ólýsanleg. Henni er ekki hægt að
lýsa með orðum. Að eiga móður
sem þig er mikils virði, bæði í
sorg og gleði.
Þegar ég hugsa til baka, sér-
staklega til æskuáranna þá er það
í fersku minni þegar þú kallaðir á
mig með nafninu „Daddi“. Þú
nefndir mig alltaf með því nafni,
en minnkaðir það þegar ég sagði
við þig að mér þætti það asnalegt.
Það lá eitthvað bak við þetta nafn,
eitthvað sem ég hugsaði aldrei út
í. Þegar ég fullorðnaðist áttaði ég
mig á því að það hafði einhverja
þýðingu fyrir þig.
Þú varst mjög næm. Það var
aldrei hægt að leyna þig nokkrum
hlut, þú vissir ef eitthvað væri að
hjá þínum nánustu eða þá það
stæði eitthvað til. Þegar ég kom
að rúmi þínu fjórum dögum áður
en þú lést, lást þú með lokuð aug-
un og hálfdormandi. Þegar ég
kom hljóðlega inn til þín, snerti
hönd þína sagðir þú: „ert þetta
þú, Skúli minn“.
Að skrifa minningar eftir
fimmtíu og þriggja ára samvist
duga vart í eina bók. Ég tel best
að geyma þær minningar í huga
og hjarta mínu sem verða þar svo
lengi sem ég lifi. Við systkinin er-
um þakklát fyrir það að hafa
fengið að fæðast í þennan heim
og hafa fengið að eiga þig sem
móður. Það er ótrúlegt krafta-
verk að þú skulir hafa fætt sex
börn þar sem læknar sögðu að þú
gæti aldrei eignast börn eftir að
þú slasaðist alvarlega í bílslysi
sjö ára gömul. Læknar reyndust
ekki sannspáir í það sinn. Mér
fannst það ótrúlegt æðruleysi að
hafa fyrirgefið og sæst við þann
yndislega mann sem varð fyrir
því ógæfuspori að hafa verið öku-
maður í þeim bíl sem þú varðst
fyrir. Þú varst honum aldrei reið
og skírðir son þinn í höfðuð á hon-
um. Þitt aðalsmerki var trúin,
vonin og kærleikurinn.
Þú varst alltaf svo létt og kát,
lífsglöð manneskja. Í sumar og í
haust ákvað ég að fara til þín í
heimsókn á Hellissand sem ég sé
ekki eftir. Við nutum lífsins fyrir
það að vera saman.
Ég þakka hinum hæsta fyrir
það að hafa fengið að vera hjá þér
síðustu daga ævi þinnar og á
meðan þú barðist við dauðann.
Þú varst engan veginn tilbúinn til
að deyja, barðist til síðasta dags.
Þú hafðir níu líf, en þetta var þitt
tíunda.
Það var gott að hafa fengið að
vera hjá þér, knúsa þig, faðma og
kyssa áður en þú fórst yfir móð-
una miklu.
Elsku mamma, ég elskaði þig
út af lífinu. Minning þín lifir í
hjarta mínu.
Þinn,
Skúli (Daddi).
Í dag kveð ég elsku mömmu
mína sem lést 10. desember síð-
astliðinn á heilbrigðisstofnun
Suðurnesja.
Líf mömmu var barátta síð-
ustu fjögur árin við illvígan sjúk-
dóm, sem hún tók af æðruleysi og
sýndi mikinn lífsvilja og hug-
rekki.
Elsku mamma mín, það sem
þú varst alltaf sterk, hugrökk og
jákvæð gagnvart sjúkdómnum
var aðdáunarvert. Þegar við átt-
um okkar daglegu samtöl sem
voru alltaf seinnipartinn hvern
dag, þegar ég spurði þig hvernig
þú hefðir það kom alltaf: „Veistu,
María mín, að nú líður mér miklu
betur í dag en í gær, þetta er allt
saman að koma.“ Jákvæðnin var
stórkostleg hjá þér, meira að
segja þegar þú varðst fyrir slysi
heima í lok nóvember, dast og
fótbrotnaðir illa þá var alltaf já-
kvæðnin í fyrirrúmi.
Söknuðurinn er sár eftir
mömmu og verður það að sjálf-
sögðu áfram en ég er þakklát fyr-
ir þann tíma sem við gátum átt
saman síðustu daga þína hérna
megin, rætt bæði það góða og
slæma í lífinu og fyrir það er ég
þakklát og sátt í hjarta mínu og
að hafa getað kvatt mömmsuna
mína eins og ég kallaði þig. Ég
geymi síðustu orð þín til mín í
hjarta mínu um alla eilífð þegar
þú tókst utan um mig tveimur
dögum áður en þú kvaddir og
sagðir „elsku stelpan mín“.
Lífið er ekki alltaf sanngjarnt,
elsku mamma mín, og þau áföll
sem þú varðst fyrir að missa tvö
börn mörkuðu djúp sár í lífi þínu.
Ég trúi því að nú sértu komin á
betri stað og að systur mínar
tvær, þær Þórunn Sigurbjörg og
Guðríður Kristín (Dinna), hafi
tekið vel á móti mömmu sinni og
þið séuð sameinaðar í Sumar-
landinu góða. Ég trúi því í hjarta
mínu að þú sért umvafin ást,
hlýju og kærleika.
Guð geymi þig, elsku hjartans
mamma mín.
Láttu nú ljósið þitt
loga við rúmið mitt.
Hafðu þar sess og sæti,
signaði Jesús mæti.
(Höf. ók.)
Eins láttu ljósið þitt
lýsa í hjarta mitt,
skína í sál og sinni,
sjálfur vaktu þar inni.
Lát húmið milt og hljótt
hlúa að mér í nótt
og mig að nýju minna
á mildi arma þinna.
Ég fel minn allan hag
einum þér nótt og dag,
ljósið af ljósi þínu
lifi í hjarta mínu.
(Sigurbjörn Einarsson)
Þín dóttir,
María.
Jónína Ísleifsdóttir
Ungur að árum
komstu inn í líf
mitt, tókst mig í
arma þína og ólst
sem þinn eigin. Kenndir mér allt
sem þú kannt þó að ég væri ekki
af blóði þínu borinn. Tókst mig á
vit ævintýranna, sagðir mér
hverju þú tryðir. Gerðir mig að
manni. Eins og líkt er börnum
þegar þau koma til sjálfsvitund-
ar, finnst þeim foreldrar sínir
skrítnir. En þegar stálin mætast
Barði Valdimar
Barðason
✝ Barði Valdi-mar Barðason
fæddist 12. maí
1959. Hann lést 30.
nóvember 2016.
Útför Barða fór
fram 16. desember
2016.
undir eldinum,
bræðast þau saman
og verða að einu,
svo sannarlega
gerðum við það,
deildum draumum,
skoðunum og lífi
hvor annars í allri
sinni dýrð og feng-
um að eldast sam-
an. En þó ekki eins
lengi og við vonuð-
umst til. Í dag er ég
nær alveg eins og þú, sjómaður,
hestamaður, félagsvera sem og
einfari. Trúi á það góða í mann-
inum og rækta það. Grófur að
utan, mjúkur að innan.
Eða eins og sagt hefur verið,
sjaldan fellur eplið langt frá eik-
inni.
Elsku pabbi, þú varst svo
margt, félagi, lærimeistari, vin-
ur, bróðir, sonur, faðir, tengda-
faðir, afi, töffari, flottur karl og
svo margt annað sem orð fá ekki
lýst, eins og þeir sem þekktu þig
vita.
Sannarlega hugsaðirðu vel
um þá sem stóðu þér næst og
mun minningin um þig lifa í
hjarta okkar um aldur og ævi.
Elsku pabbi, þú varst horn-
steinninn í lífi mínu meðan þú
lifðir og áfram eftir að þú deyrð.
Þú vildir að ég nýtti það sem ég
hefði, ræktaði garð minn, lifði
lífi mínu, lifði drauma mína og
svo sannarlega mun ég lifa
drauma okkar beggja og gera
þetta eins og við töluðum svo oft
um. Ég mun verða við ósk þinni
og syngja upp til himna, svo þú
heyrir. Og eins og þú orðaðir
það, við sjáumst hressir þegar
minn tími kemur. Ég mun heyra
í þér í náttúrunni, ég mun heyra
í þér í hafinu, ég mun heyra í þér
í vindinum, ég mun heyra í þér í
þögninni.
Ósvald.
Móðir okkar,
GUÐRÚN VALDIMARSDÓTTIR,
húsmóðir og verkakona,
Hafnarfirði,
lést á Hrafnistu í Hafnarfirði 16. desember.
Útförin fer fram frá Þjóðkirkjunni í
Hafnarfirði fimmtudaginn 22. desember klukkan 15.
.
Svavar Gestsson Sveinn Gestsson
Helga M. Gestsdóttir Málfríður Gestsdóttir
Valdimar Gestsson Guðný Dóra Gestsdóttir
Kristín Guðrún Gestsdóttir
og fjölskyldur þeirra.
Ástkær móðir mín, amma, langammma og
tengdamóðir,
BRYNDÍS SIGURÐARDÓTTIR,
Klukkubergi 9,
Hafnarfirði,
lést 10. desember. Útför hennar verður gerð frá
Hafnarfjarðarkirkju miðvikudaginn 21. desember klukkan 15.
.
Smári Eiríksson,
Tinna Smáradóttir,
Brynja Jónsdóttir,
Kolfinna Ósk Andradóttir,
Birna Lísa Jensdóttir.
Ástkær eiginmaður minn, faðir, tengdafaðir,
afi og langafi,
STEFÁN SIGURKARLSSON,
lyfjafræðingur og fyrrverandi
apótekari,
lést 17. desember á hjúkrunarheimilinu
Sóltúni. Útförin fer fram frá Digraneskirkju
miðvikudaginn 28. desember klukkan 13.
.
Anna Guðleifsdóttir
Sigurkarl Stefánsson Olga L. Garðarsdóttir
Sigurborg Stefánsdóttir Mekkinó Björnsson
Anna Kristín Stefánsdóttir Sigurður Erlingsson
barnabörn og barnabarnabarn.
Lengd | Minningargreinar sem birtast í Morgun-
blaðinu séu ekki lengri en 3.000 slög. Ekki er unnt
að senda lengri grein. Lengri greinar eru eingöngu
birtar á vefnum. Hægt er að senda örstutta kveðju,
HINSTU KVEÐJU, 5-15 línur. Ekki er unnt að
tengja viðhengi við síðuna.
Myndir | Hafi mynd birst í tilkynningu er hún sjálf-
krafa notuð með minningargrein nema beðið sé um
annað. Ef nota á nýja mynd skal senda hana með
æviágripi í innsendikerfinu. Hafi æviágrip þegar
verið sent er ráðlegt að senda myndina á netfangið
minning@mbl.is
Minningargreinar