Berklavörn - 01.06.1946, Side 22

Berklavörn - 01.06.1946, Side 22
Aðalhúsið. I. hæ'ö. -Vf- -f-«^ en að safna peningum — hún vissi að gef- endurnir höfðu ætlazt til að hún ávaxtaði þá, og skilaði vöxtunum í meira heilsu- farslegu öryggi og bættu heilsufari þjóðar- innar sem fyrst. í sambandi við það var svo hafizt handa um framkvæmdir á landi sam- bandsins á Reykjum í Mosfellssveit í júní 1944, og hefur þeim verið haldið áfram ó- slitið síðan. Og stjórnin væntir þess að kleift muni reynast að halda enn óslitið áfram þar til Vinnuheimilið að Reykja- lundi er fullbyggt og sæmir þeim stórhug, sem þjóðin hefur sýnt með framlögum imum. Þá mun ég lítillega gera grein fyrir þeim framkvæmdum, sem ýrnist er lokið eða ver- ið að vinna að á Reykjalundi. Lokið hefur verið við byggingu 11 smá húsa, sem hvert um sig rúmar fjóra vistmenn auk dagstofu og smáeldhúss. Byggður hefur verið lækn- isbústaður og starfsmannahús. Hermanna- skálar hafa verið lagfærðir og breytingar gerðar á þeim svo að þeir yrðu nothæfir sem verkstæði, eldhús, borðstofa, íbúðir starfsfólks o. fl. Keyptar hafa verið vélar fyrir járnsmíði, trésmíði, saumastofu, prjónastofu og bókband auk byggingavéla. Þá hefur verið keyptur liúsbúnaður og annað það er til þarf daglegs reksturs heim- ilisins. Byrjað hefur verið á að lagfæra landið, en því verki er langt frá að vera lokið. Þessar framkvæmdir allar liöfðu kostað okkur til síðustu áramóta kr. 1.950. 626.16. 6 BERKLAVÖRN

x

Berklavörn

Direkte link

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Berklavörn
https://timarit.is/publication/1220

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.