Berklavörn - 01.06.1946, Síða 30
' sfc * S e •' -
JÓN EIRÍKSSON, lœknir:
\
Berklaprófið
Berklaprófið (Pirquet-Mantoux og Moro-
próf) er mjög þýðingarmikið atriði í öllum
berklarannsóknum. Prófið grundvallast á
því, að þegar líkaminn hefur fengið í sig
berklabakteriu, verður hann í flestum til-
fellum upp frá því ofnæmur (allergishur)
gegn efni því, sem berklabakteríurnar
ntynda og nefnt er túberkúlín. Berklapróf-
ið gefur því til kynna, hvort sá sent prófið
er gert á, hafi fengið í sig berklasmit eða
ekki, en segir á hinn bóginn ekkert til um
það, hvort sá, sem prófið kemur út á, er
jákvætt, er berklaveikur eða ekki. Aftur
á móti er í lang flestum tilfellum hægt að
útiloka, að um berklaveiki geti verið að
ræða hjá þeim, sem berklaprófið kentur
ekki út á, er neikvætt. Berklaprófið segir
því fyrst og fremst til um, hvort smitun
hefur átt sér stað eða ekki.
Nú á tímum má gera ráð fyrir, að allir
sem kornast á fullorðins aldur smitist fyrr
eða seinna af berklum. Sem betur fer, er
þó aðeins lítill hluti, sem fær sjúkdóminri,
en engin leið er að vita fyrir fram h\'er
verður fyrir því og hver ekki.
Með endurteknum berklaprófunum er
hægt að gera sér grein fyrir á hvaða aldri
berklasmitunin á sér stað. I þéttbýli snrit-
ast flestir á aldrinum 15—35 ára, svo að um
40 ára aldur rná segja að flestir hafi smitast
af berklum, en sem betur fer aðeins lítili
hluti sýkzt, eins og áður er tekið frarn.
Hér á landi, eins og víða annars staðar, er
árlega gert berklapróf á börnum á skóla-
skyldualdri og sýnir það sig, að um fjórði
hluti allra barna hafa fengið í sig berkla
smit um fermingaraldur.
Jón Eiríksson.
Berklaprófun á börnum getur gefið
mikilvægar upplýsingar urn smitunarleiðir
og er það ekki ósjaldan að jákvætt berkla-
próf gefur ákveðnar bendingar um, hvar
líkur séu til að einhver sé með „opna
berkla“ þ. e. .a. s. virka berklaveiki.
Berklaprófið er hægt að gera á þrennan
hátt: Svokallað Pirquet-próf nteð því að
rispa í húðina með hnífsoddi, Mantoux-
próf, með því að stinga í húðina og Moro-
próf, þar sent smyrsli er notað á húðina og
plástur settur yfir. I öllum prófunum er
notað túberkúlín, íPirquet- og Mantoux-
prófinu í þunnri upplausu, í Moro-próf-
inu í smyrslinu. Túberkúlínið er algjör-
lega skaðiaust líkamanum í þeim þynning-
um, sem það er notað við berklaprófin.
og eru yfirleitt engin óþægindi við prófin,
nema smávegis rispa með hnífsoddi eða
stunga með fínni nál. Moro-prófið er ekki
öruggt, nema hjá börnum fram til ca. 12
ára aldurs, og eru auðvitað mikil þæg-
14
BERKLAVÖRN’