Berklavörn - 01.06.1946, Side 41
BJÖRN GUÐMUNDSSON, frá Fagradal:
5. þing S. í. B. S.
Fimmta þing S. í. B. S. var haldið að
Reykjalundi 22. og 23. júní í sumar. Þetta
þing er merkilegt í sögu sambandsins vegna
þess, að það er fyrsta þingið, sem haldið
er að Reykjalundi, í eigin húsakynnum.
Þingið sátu 46 fulltrúar frá sex sambands-
félögum, auk miðstjórnar og gesta. For-
seti þingsins var kosinn Jónas Þorbergsson
útvarpsstjóri.
Síðustu tvö árin, 1944 og 1945, hafa ver-
ið sérstaklega viðburðarík í sögu samtak-
anna. Nokkru eftir að síðasta þing var háð,
eða í júlí 1944, var vinna hafin við Vinnu-
heimilið að Reykjalundi, og sjö mánuðum
síðar, 1. febrúar 1945, hófst rekstur þess.
Nú eru þarna komin upp 11 íbúðarhús
fyrir vistmenn, auk læknisíbúðar og íbúð-
ar fyrir starfsfólk. í vor hófst vinna við
aðalbygginguna, sem verður stórt hús. Her-
mannaskálarnir, sem stóðu á landi Vinnu-
heimilisins, hafa nú verið fjarlægðir, þeir,
sem ekki eru notaðir við rekstur heimilis-
ins. Landið hefur verið erjað og sáð í það.
Fagurgrænt slétt tún kemur til með að
breyta mikið útliti staðarins, en þarna var
áður örfoka melur.
Mikill áhugi ríkti meðal ^þingfulltrúa
fyrir því að efla samtökin í framtíðinni.
Þingið vottaði fráfarandi miðstjórn og öðr-
um starfsmönnum sambandsins traust sitt
og þakkir fyrir fórnfúst og árangursríkt
starf á undanförnum árum. Störf mið-
stjórnarinnar og annarra vegna bygginga-
framkvæmdanna voru það mikil og tíma-
frek, að þau tóku að miklu leyti upp tóm-
stundir þessarra manna og skertu stundum
svefntíma þeirra. En þeir höfðu flestir
föstum, óskyldum störfum að gegna á dag-
inn. Þinginu duldist ekki, að nokkrir
menn höfðu lagt þarna meira af mörkum
Frá Reykjalundi
Stúlka vi8 rafknúna saumavél.
BERKLAVÖRN
25