Berklavörn - 01.06.1946, Qupperneq 42
heldur en unnt var að krefjast og óskaði
að mega greiða þeim smávegis þóknun
sem þakklætisvott fyrir vel unnin störf, en
þeir skoruðust algerlega undan að taka
greiðslur fyrir störf sín.
Þingið samþykkti ýmsar ályktanir og
eru þessar helztar:
„Unnið skal að því, að við og við
verði flutt í Ríkisútvarpið á vegurn
sambandsins fræðsluerindi um berkla-
veiki og berklavarnir".
„Fimmta þing S. í. B. S., haldið að
Reykjalundi dagana 22. og 23. júní,
1946, lýsir glcði sinni yfir þeim ár-
angri, sem náðst hefur á síðustu tveim
árum í því að hrinda fram áhugamál-
um og verkefnum berklavarnasamtak-
anna. Jafnframt vottar þingið Alþingi,
ríkisstjórn, félagsheildum, einstök-
um styrktarmönnum og þjóðinni allri
hjartfólgnar þakkir sínar fyrir skiln-
ing þann, er samtökin liafa átt að
mæta, og styrk allan veittan með ráði
og dáð, og væntir þess að mega fram-
vegis njóta sörnu góðvildar og rausn-
ar frá hendi ráðamanna og almenn-
ings, — unz hrundið hefur verið fram
þeim velfarnaðarmálum, er samtökin
hafa með höndum fyrir land og lýð“.
„Fimmta þing S. í. B. S., háð að
Reykjalundi dagana 22. og 23. júní
1946, ályktar að skora á ríkisstjórn
liins íslenzka lýðveldis að hlutast til
um að ríkisstjórn Bandaríkja Norður-
Ameríku efni loforð sitt um brott-
flutning herliðs síns af íslandi og
tregðist ekki stundinni lengur um
efndir".
„Ennfremur skorar þing S. í. B. S.
á ríkisstjórn hins íslenzka lýðveldis að
neita afdráttarlaust ölluni tilmælum
erlendra ríkja um landvist eða lands-
réttindi fyrir herlið, hvort sem það
er vopnað eða eigi“.
„Fimmta þing S. í. B, S. beitir
Frá Reykjalundi.
Unnuj at) smíSi járnrúma og stóla.
þeirri áskorun til heilbrigðisstjórnar-
innar, að hún komi því til leiðar ,að
allir héraðslæknar landsins geti fram-
kvæmd loftbrjóstaðgerðir og hafi tæki
til þess“.
Að lokum fór fram kosning miðstjórn-
ar til tveggja ára og kosning eins manns í
Vinnuheimilisstjórn, auk varamanna. í mið-
stjórn voru kosnir:
Maríus Helgason forseti, Þórður Bene-
diktsson varaforseti, Ólafur Björns-
son gjaldkeri, Þorleifur Eggertsson
ritari, Oddur Ólafsson, Ásberg Jó-
hannesson og Björn Guðmundsson.
Til vara:
Daníel Sumarliðason, Jónas Þorbergs-
son, Stefán Kristmundsson, Jóhann
Kúld.
í vinnuheimilisstjórn:
Árni Einarsson. Til vara: Helgi Stein-
grímsson.
26
BERKLAVÖRN