Berklavörn - 01.06.1946, Síða 43

Berklavörn - 01.06.1946, Síða 43
ÞÓRÐUR BENEDIKTSSON: ÓSKIR (Endursögð smásaga) Inn um gluggan barst hljómur kirkju- klukkunnar. Hún sló sjö liögg. Stúlkan leit á armbandsúrið, síðan gaf hún símatækinu hornauga. Það stóð vinstra megin á skrifborðinu, svart, tilfinningar- laust og þögult. Hún andvarpaði mæðulega og sagði: Fífl. Ekki var ljóst hvort hún meinti sjálfa sig eða símann, en hún beið þess að hann hringdi. Hún reis á fætur, greip bók úr skápn- um, settist og opnaði hana af handahófi. Eftir að hafa lesið sömu síðuna nokkruiu sinnum, fleygði hún bókinni út í horn. Auðséð var að allmikið amaði að stúlk- unni er hún vatt sér að símanum og hringdi til ungfrú Klukku. Skýr en mjög hluttekningarlaus rödd svaraði: Nítján núll átta. Enn leit hún á armbandsúrið og full- vissaði sig um að það gékk rétt. Þær gengu þá rétt allar þessar klukkur, ekki vantaði stundvísina hjá þeim. í því sambandi bar hún fram fáorðar en kjarnyrðtar athuga- semdir, um ónefnda persónu. Þær voru óvinsamlegar. Ungfrúin hagræddi sér í mjúkum stóln- um, lagði hægri handlegg upp á borðið og sló, með fingurgómum, hraðann danstakt á plötuna. Það var danslag kvöldsins. Hann hringir ekki, endurtók hún við sjálfa sig, aftur og aftur. Þetta er í sjötta eða sjöunda sinn, sem hann gabbar mig á þennan hátt, en ég skal sjá um að þetta verði í síðasta sinn: Minn góði lierra! Þér virðist haldinn mjög leiðum misskilningi. Ég er ekki svo gerð að bjóða megi mér hvað sem er. Ég vildi óska að ég hefði aldrei séð hann! Þá hefði ég ekki þurft að þola þetta. Ekki svo að skilja að ég sé nokkra lifandi vitund skotin í honum, en ég er of stolt til að sætta mig við slíka auðmýkingu, allra sízt af manni, sem stendur mér svo langt að baki á öllum sviðum. Já, svo óralangt að baki. Taugar mínar eru ekki gerðar til að taka við slíkri móðgun. Satt að segja er ég of viðkvæm, alltof viðkvæm og fíngerð til að umgangast mann af hans tagi svo ófyrir- leitinn og ruddalegan. Þegar klukkan í turninum sló hálf átta, leit stúlkan enn á armbandsúrið sitt, snéri sér síðan að símanum og horfði á hann með augum sem loguðu af reiði. Ég vildi óska, að ég sæi hann aldrei fram- ar! Áhrifaríkast væri það vissulega að segja honum, slöngva því framan í hann að ég biðjist undan áleytni hans: Herra minn! Ég fer þess á leyt við yður að þér gerið yður ekkert ómak mín vegna. Aðdáun yðar skiptir mig engu máli. Vonandi að þér skiljið mig. herra minn. Það er annars vafamál að hún hafi BERKLAVÖRN 27

x

Berklavörn

Beinleiðis leinki

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Berklavörn
https://timarit.is/publication/1220

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.