SÍBS blaðið - 01.11.2000, Blaðsíða 18
SlBLS-hJaðið
32. þing SIBS 6.-7. oktober 2000
Þingið var haldið að Reykjalundi eins
og jafnan áður. Þingið var fjölsótt og
fór hið besta fram. Sú nýbreytni var
höfð í frammi að ljúka þinginu á
tveimur dögum í stað þess að áður var
sunnudagurinn sem var þriðji
þingdagurinn yfirleitt lokadagur. Þessi
breyting mæltist vel íyrir hjá
þingfulltrúum, einkum þeim sem lengst
áttu að sækja.
Akveðið var á þinginu að leggja niður
lánasjóð SIBS og fela stjórn að ráðstafa
inneign hans til verðugra verkefna.
Tekjur sjóðsins eru einungis vextir og
umsóknir engar borist um lán í nokkur
ár. Tiilaga kom fram frá Inga Dóra
Einarssyni að ráðstafa fénu til að útbúa
aðstöðu eða herbergi á Reykjalundi til
guðsþjónustu eða kyrrðarstunda. Henni
var vísað til afgreiðslu stjórnarinnar.
ítarlegar tillögur til lagabreytinga lágu
íyrir þinginu og hlutu afgreiðslu þess.
Meðal nýmæla er rýmkun á inntöku
nýrra félaga, þannig að nú geta allir
oröið félagar í SÍBS sem vilja styðja
tilgang félagsins. Þá voru lögfestar
tvær stjórnir íyrir Reykjalund, önnur
Séð yfir fundarsalinn. í forgrunni má sjá þingritara,
þau Auði Ólafsdóttur og Stefán Arngrímsson.
fyrir endurhæfingarstöðina og hin fýrir
plastiðnaðinn. Skulu sömu menn skipa
báðar stjórnirnar, en áheyrnarfulltrúar
eru ekki lögboðnir í stjórn
Reykjalundar plastiðnaðar.
Samþykkt var tillaga frá Þorsteini
Sigurðssyni um að félagsdeildir og
stjórn setji sér það markmið að afla
200 milljóna króna í byggingarsjóð
þjálfunarhússins á Reykjalundi á næstu
tveimur árum.
Þingforsetar voru Vilhjálmur B.
Vilhjálmsson og Brynja D.
Runólfsdóttir og þingritarar Auður
Ólafsdóttir og Stefán Arngrímsson.
Ólafur Jóhannesson fyrrverandi framkvæmdastjóri
Happdrættisins og Borghildur Kjartansdóttir kona
hans.
Formaður SÍBS, Haukur Þórðarson, leggur nýráðnum
framkvæmdastjóra, Pétri Bjarnasyni Iffsreglurnar.