Fréttatíminn - 03.06.2016, Blaðsíða 80
Sómasamloka
vinsælli en Davíð
Davíð Oddsson hefur
að eigin sögn ekki tapað
oft í lífinu. Þessa dagana
þarf hann þó að sætta
sig við að lúta í lægra
haldi fyrir Sóma-
samloku af rækju-
salatskyni á internetinu – nánar
tiltekið á Facebook. Pollapönkar-
inn og leikskólakennarinn Harald-
ur Freyr Gíslason lét reyna á það
hvort færsla hans um samlok-
una sívinsælu fengi fleiri læk en
stuðningsmannasíða forsetafram-
boðs Davíðs Oddssonar. Fór svo
á einum sólarhring að samlokan
fékk tæplega fimm þúsund læk en
Davíð er ekki með nema rúmlega
4300 læk. Seint á miðvikudags-
kvöldið var rækjusamlokan komin
með rúmlega 7300 læk. Ofan á
þetta bætist að hann þarf að vinna
upp tæplega 40 prósentustiga for-
ystu Guðna Th. Jóhannessonar í
skoðanakönnunum fyrir forseta-
kosningar eftir þrjár
vikur.
Rosazol – Lyf við rósroða
Rósroði er húðsjúkdómur sem hrjáir allt að tíunda hvern einstakling, bæði konur og karla.
Sjúkdómurinn er krónískur en því fyrr sem meðferð hefst, því líklegra er að hægt sé að hægja á
framvindu einkenna. Rosazol er fyrsta og eina lyfið sem fæst án lyfseðils við einkennum
rósroða eins og roða og bólum. Virka innihaldsefnið í Rosazol, metrónídazól, tilheyrir flokki
sýklalyfja og er ætlað til staðbundinnar notkunar við rósroða. Rosazol, sem er án rotvarnar, er
borið á einkennin tvisvar á dag en ávallt ætti að ráðfæra sig við lækni áður en byrjað er að nota
lyfið. Ef greiningin er rósroði – spurðu þá eftir Rosazol í apótekinu.
Notkunarsvið: Rosazol 10 mg/g krem inniheldur virka efnið metrónídazól. Lyfið tilheyrir flokki sýklalyfja, virkt gegn nauðbundnum (obligate), loftfælnum bakteríum og frumdýrum og ætlað til staðbundinnar notkunar við rósroða. Verkunar-
háttur metrónídazóls gegn rósroða er ekki þekktur. Áður en meðferð með Rosazol kremi hefst skal læknir staðfesta sjúkdómsgreininguna. Frábendingar: Ofnæmi fyrir virka efninu eða einhverju hjálparefnanna. Sérstök varnarorð: Forðast
ber að kremið berist í augu eða á slímhúð. Forðast ber sterkt sólarljós og útfjólublátt ljós (sólböð, sólarlampa og útfjólubláa lampa) meðan á meðferð með metrónídazóli stendur. Við ertingu ætti að bera Rosazol sjaldnar á eða gera hlé á notkun
þess. Forðast ætti ónauðsynlega og/eða langvarandi meðferð með Rosazol. Metrónídazól er nítróimidazól og þarf að nota með varúð ef fram koma einkenni um blóðmein eða saga er um slíkt. Lyfið inniheldur cetýl- og cetostearýlalkóhól sem
getur valdið staðbundnum húðviðbrögðum (t.d. snertihúðbólgu). Sjúklingnum er ráðlagt að leita læknis ef þörf krefur. Meðganga og brjóstagjöf: Metrónídazól má aðeins nota á meðgöngu sé það metið lífsnauðsynlegt. Meta þarf m.t.t.
mikilvægis meðferðarinnar fyrir móðurina hvort hætta eigi eða gera hlé á meðferð með Rosazol við brjóstagjöf. Skömmtun: Þunnt lag af Rosazol er borið á svæðið sem á að meðhöndla, tvisvar á dag, að morgni og að kvöldi. Meðalmeðferðartími
er breytilegur eftir löndum en er venjulega 3 til 4 mánuðir. Meðferð ætti ekki að standa lengur en ráðlagt er en þó má læknirinn sem ávísar lyfinu framlengja meðferðina um aðra 3 til 4 mánuði þegar rík ástæða er til og í samræmi við alvarleika
sjúkdómsins. Beri meðhöndlunin ekki markverðan árangur ætti að hætta henni. Svæðið sem á að meðhöndla er þvegið með mildri sápu áður en kremið er borið á. Eftir að Rosazol krem hefur verið borið á húðina mega sjúklingarnir nota
snyrtivörur sem ekki loka húðinni og verka ekki herpandi á hana. Börn ættu ekki að nota lyfið þar sem ekki liggja fyrir gögn um öryggi/virkni/skammta fyrir börn. Algengar aukaverkanir: Um 10% sjúklinga finna fyrir aukaverkunum. Algengustu
aukaverkanirnar eru húðerting, þurrkur, kláði, roðaþot, sviði í húð, versnun rósroða, sársauki. Markaðsleyfishafi: Actavis Group hf. Geymið þar sem börn hvorki ná til né sjá. Lesið vandlega leiðbeiningar sem fylgja lyfinu. Mars 2016.
FÆST ÁN
LYFSEÐILS
A
ct
av
is
6
14
08
0
alla föstudaga
og laugardaga
„Það er stundum eins og ég fari í „blackout“
og taki þá þær ákvarðanir sem beina mér í
þá átt að gera mig hamingjusama.“
Salóme Gunnarsdóttir í viðtali í amk... á morgun
Kardashian og Beckham ekki í eina sæng
Khloe Kardashian hefur
loksins opnað sig vegna tengsla
sinna við bandaríska ruðnings-
leikmanninn Odell Beckham
yngri sem leikur með New York
Giants í NFL-deildinni. Khloe
notaði Twitter-reikning sinn til
að eyða orðrómi um að skötu-
hjúin væru par eftir að til þeirra
sást láta innilega hvort að öðru í
veislu hjá rapparnum Drake á
dögunum.
Samkvæmt sjónarvottum voru
þau ansi ágeng hvort við ann-
að og eyddu auk þess öðru
kvöldi á næturklúbbi í Las
Vegas.
„Þykir leitt að valda
ykkur vonbrigð-
um. Þegar blandað
er saman nokkrum
drykkjum, örlitlu
daðri og of mikilli
nánd geta hlutir
lítið út fyrir vera brjálaðir.
Þetta er hins vegar ekki það
og það er ekki þetta,“ sagði
Khloe á Twitter-reikningi
sínum.
Leiðinlegt fyrir Odell
blessaðan en gaman fyrir
alla hina vonbiðlana.
Laus og liðug
Khloe Kardashian
er ekki gengin út.
Engin tengdamamma
Odell Beckham yngri fær
ekki Kris Jenner sem
tengdamömmu – í það
minnsta ekki strax.
Fögnuðu með
pomp og prakt
Eva Dögg Sigurgeirsdóttir,
tískudrottning með meiru, og
Bjarni Ákason, eigandi Apple
umboðsins á Íslandi, héldu
heljarinnar brúðkaupsveislu á
Jómfrúnni á dögunum, en hjónin
létu pússa sig saman í Las Vegas í
byrjun þessa árs. Ekkert virðist
hafa verið til sparað í veislunni og
hver skemmtikrafturinn á fætur
öðrum tróð upp. Björgvin
Halldórsson mætti og tók meðal
annars Gullvagninn, við mikinn
fögnuð veislugesta. Þá var einnig
vel tekið undir með Stebba og Eyfa
sem að sjálfsögðu sungu Nínu.
Standandi borðhald var í veisl-
unni og opið út í garð þar sem
tjöldum hafði verið komið fyrir.
Gestir gátu því notið góða veð-
ursins þar sem þeir röðuðu í sig
dýrindis mat og drykk.
100 árituð eintök
og ekki meira
Listmálararnir Eggert
Pétursson og Helgi Þorgils
Friðjónsson hafa í áratug unnið að
myndaseríu þar sem þeir grípa inn
í verk hvor
annars og
skapa þannig
eitthvað
algerlega
óvænt og
nýtt.
Afraksturinn
var settur
upp á
sýningunni
„Gengið í björg“ á Listasafni ASÍ.
Crymogea hefur nú gefið út
samnefnda bók þar sem finna má
öll verkin í einni þykkri bók sem
kostar rétt tæpar 17 þúsund
krónur. Bókin er gefin út í 100
árituðum og tölusettum eintökum.