Fréttatíminn - 03.06.2016, Blaðsíða 35
Hvað segir leikhús-
fræðingurinn?
Magnús Þór Þorbergsson leikhús-
fræðingur bendir á að þjóðleikhús
í miðborgum um heim allan séu
yfirleitt stofnanir sem eigi rætur
að rekja til menningarhugmynda
stórvelda á 19. öld. Enn aftar liggi
hugmyndir upplýsingarinnar um
að leikhús séu ein
af leiðunum
til að bæta
samfélagið
og mennta
lýðinn.
„Það er
ekki endilega
svo að þjóðleik-
hús þurfi bara að stækka með
stærra samfélagi,“ segir Magn-
ús Þór. „Mér þykir áhugaverðari
spurning hvernig við búum til
leikhús sem endurspegli þjóðina á
nýjum tímum. Stóru leikhúsin tvö
í Reykjavík þjónusta bæði þjóðina,
en hugmyndir okkar um þjóðina
eru fjölbreyttari í dag en þær voru
um miðja 20. öld, þegar við tókum
húsið í notkun.“
Magnús bendir á að t.d. í Wales
og Skotlandi hafi verið leitað
annarra leiða til að þjóðleikhúsin
séu í virku samtali við samfélag-
ið. Þjóðleikhús Wales kemur sér
víða fyrir með verkefni sín. Það
nýtir skóga og strendur, yfirgef-
in flugvélaskýli, félagsheimili og
næturklúbba. Leikhúsið lítur á sig
sem samvinnunet fyrir skapandi
fólk. „Þú finnur okkur handan við
hornið, hinum megin við fjallið eða
í þínum stafræna bakgarði,“ segir á
heimasíðu leikhússins.
„Hvernig myndum við stofna
til svona fyrirbæris í dag?“ spyr
Magnús. „Við myndum ekki endi-
lega byggja okkur menningarminn-
isvarða inn í miðri borg. Mínar
vangaveltur snúast ekki endilega
um það hvað við viljum gera við
Þjóðleikhúsið sem nú er, heldur
þurfum við að spyrja spurninga
um hugmyndina að baki. Áskorun-
in snýst um hvernig leikhúsið geti
ennþá staðið við frumhugmyndina
um að vera vettvangur þjóðarinnar,
endurspegla hana og setja á svið.“
Hvað segir listræni
stjórnandinn?
Ragnheiður Skúladóttir, listrænn
stjórnandi Lókal leiklistarhátíðar-
innar, bendir líka á að leikhús sé
ekki bara hús. „Hins vegar er auð-
velt að halda þessu fram þegar hús-
ið er staðreynd,
sem þarf að
reka og nýta.
Ég geri mér
grein fyrir
því,“ segir
Ragnheiður.
Fyrir henni er
lykilspurning varð-
andi framtíð Þjóðleikhússins
hvernig stofnunin nái út fyrir
veggina við Hverfisgötu. „Hvern-
ig ætlar maður að eiga samtal við
þjóðina og líka við arkitektúrinn.
Er möguleiki að nýta húsið á annan
hátt og jafnvel fyrir starfsemina að
komast meira út úr því?“
Ragnheiður segir menningar-
stofnanir ekki geta leitt hjá sér
auknar kröfur um gegnsæi og þjón-
ustu. Breytingum í samfélaginu
þurfi að finna leið inn í starf-
semina. Sjálf segist hún hrifin að
þeirri aðferð sem farin hafi verið á
Bretlandseyjum að leysa starfsem-
ina meira upp. Þjóðleikhúsinu sé í
lófa lagið að láta verkefni sín verða
til annars staðar en við Hverfis-
götuna, en öllu fylgi kostnaður.
Mögulega geti leikhúsið tekið að
sér meira framleiðendahlutverk.
„Við í listunum komumst ekki
hjá því að kanna nýjar vinnuaðferð-
ir. Við erum auðvitað alltaf að tala
líka um peninga, en hver er leiðin
til að nýta þá sem best til að þjóna
framþróun listarinnar? Það þarf
alltaf að vera aðalspurningin.“
Það þykir kannski ekki nútímalegt að mæla
með mat úr krukkum. Hér koma nú samt ein-
læg meðmæli með tveimur eldhús-
fyrirbærum sem geta gert kraftaverk
á dauflegum stundum þegar sama og
ekkert er til í skápunum. Ef önnur af
þessum krukkum er til á þínu heimili
kemstu langt með fátæklegar sneiðar
af heimilisbrauði, samtíning af afgöng-
um eða hversdagslegan hamborgara.
Báðar sósurnar eru mjög bragðsterkar,
rífa í og gera sitt gagn, til dæmis gegn
geðvonsku. Þetta er alls
enginn barnamatur.
Habanero Mango
Aioli frá Stonewall er
undraverð blanda af sætu mangói, chili pipar
og majónesi. Sósa sem fer einstaklega vel á
samlokur af öllum gerðum.
Hún er frábær ídýfa með
fersku eða grilluðu græn-
meti og geggjuð á ham-
borgara.
Eins og allir vita verður
bernaise-sósa úr krukku
aldrei jafngóð og heima-
gerð. Að því sögðu er rétt
að benda á að hér er á
ferðinni ís-
lenskt hugvit
á heimsmæli-
kvarða. Reykt
chili bernaise-sósa frá Hrefnu Rósu Sætran er
svo skelfilega góð og sterk að hún hefur skapað
sjóðheitar umræður á samfélagsmiðl-
um. Sumir gengu svo langt að bíða
á náttfötunum fyrir utan Melabúð-
ina til að komast yfir glas af henni.
Sósan er snilld með kjöti, grænmeti,
fullkomin á steikarsamlokur og ómis-
sandi með þynnkumat.
Þessar krukkur eru hin besta
redding þegar tíminn er naumur en
kröfurnar miklar. | þt
Hvur þremillinn er í þessum sósum?
Reykt chili
bernaise sósa
frá Hrefnu
Rósu Sætran.
Habanero
Mango
Aioli frá
Stonewall.
| 35FRÉTTATÍMINN | Föstudagur 3. júní 2016
KJÖTBORÐ
Í Fjarðarkaupum færðu allt á einum stað. Kjötborð okkar er rómað fyrir góða
vöru og framúrskarandi þjónustu. Við bjóðum upp á fyrsta flokks ferskt kjöt,
sérvalið af fagmönnum.
Hjá okkur starfar lærður kjötiðnaðarmaður sem leiðbeinir þér við val á kjöti
og sker eftir þínum óskum. Einnig bjóðum við alltaf upp á sérútbúna rétti
sem þú getur eldað heima.
Við tryggjum þér ferskleika, gæði og úrval.
Verið velkomin í Fjarðarkaup
Ferskt kjöt • Þú ræður magni og skurði • Sérútbúnir réttir
OPIÐ mánudaga - miðvikudaga frá 09:00 - 18:00 / fimmtudaga 09:00 - 18:30
föstudaga 09:00 - 19:00 / laugardaga 10:00 - 16:00 / lokað sunnudaga. www.fjardarkaup.is