Fréttatíminn - 17.06.2016, Blaðsíða 2
2 | FRÉTTATÍMINN | Föstudagur 17. júní 2016
Hrottalegt ofbeldismál fyrir héraðsdómi
Ákærðir fyrir að höfuðkúpubrjóta mann með kúbeini
Sakamál Þrír menn hafa verið
ákærðir fyrir að svipta par á
fimmtugs- og sextugsaldri frelsinu
og misþyrma karlmanninum með
kúbeini
Valur Grettisson
valur@frettatiminn.is
Fyrirtaka fór fram í Héraðsdómi Reykjavík-
ur í gær í sakamáli gegn þremur mönnum
sem er gefið að sök að hafa rænt og mis-
þyrmt pari á fimmtugs- og sextugsaldri með
hrottafengnum hætti árið 2014.
Tveir hinna ákærðu hafa áður verið
dæmdir fyrir aðild sína að stórfelldu fíkni-
efnasmygli í tveimur óskyldum málum sem
varðaði innflutning á miklu magni fíkniefna
með skútum hingað til lands.
Mönnunum er gefið að sök að hafa ráðist
á parið við Bústaðaveginn í júlí árið 2014 og
neytt þau með ofbeldi upp í bíl sem þriðji
maðurinn ók. Eiga þeir að hafa slegið parið
ítrekað í andlitið á meðan þeir neyddu þau
upp í bílinn. Konunni tókst að forða sér út
úr bílnum með því að skríða út um gluggann
og komst hún þannig undan árásarmönnun-
um.
Mennirnir óku þá með karlmanninn í hús
í Garðabæ þar sem þeir misþyrmdu honum
hrottalega, samkvæmt ákæruskjali. Þannig
er einum mannanna gefið að sök að hafa
slegið manninn, sem þá var 56 ára, í rist,
höfuð og líkama ítrekað með kúbeini. Annar
sló hann svo ítrekað með krepptum hnefa.
Árásin stóð yfir í 30-40 mínútur. Að lok-
um var ekið með fórnarlambið til Hafnar-
fjarðar þar sem hann var látinn laus að lok-
um. Maðurinn stórslasaðist við árásina.
Meðal annars hlaut hann höfuðkúpubrot
auk þess sem bein brotnuðu í andliti og rist.
Konan hlaut mar víða um líkamann.
Maðurinn krefst fimm milljóna króna í
skaðabætur vegna árásarinnar. Ekki er ljóst
hver var ástæða árásarinnar en aðalmeðferð
mun fara fram í málinu síðar á árinu.
Málið var tekið fyrir í Héraðsdómi
Reykjavíkur á miðvikudaginn.
Best að sannleikurinn
komi fram – ef hann
er ekki kominn fram
Handtaka tveggja manna
vegna 40 ára morðmáls vek-
ur athygli. Nýjar upplýsingar
kunna að renna stoðum
undir sakleysi þeirra sem
fengu dóma í málinu. Annar
mannanna segir að þeir séu
alsaklausir
Þóra Kristín Ásgeirsdóttir
tka@frettatiminn.is
Stefán Almarsson, betur þekktur
sem Malagafanginn, er annar þeirra
sem settur saksóknari í Guðmund-
ar- og Geirfinnsmálinu lét handtaka
vegna nýrra upplýsinga um flutn-
inginn á líki Guðmundar Einars-
sonar.
Hinn er Þórður Jóhann Eyþórs-
son sem hefur tvívegis orðið manns-
bani, í fyrra sinnið á nýársnótt
árið 1983 en þá var hann dæmd-
ur í fjórtán ára fangelsi en í seinna
skiptið fyrir manndráp á Snorra-
braut í ágúst 1993, en þá var hann á
reynslulausn eftir að hafa afplánað
helming refsitímans.
Davíð Þór Björgvinsson, settur
saksóknari í Guðmundar- og Geir-
finnsmálinu segist hafa fengið fyrir-
mæli frá endurupptökunefnd um að
rannsaka ákveðin atriði betur varð-
andi hvarf Guðmundar Einarsson-
ar aðfaranótt 27. janúar árið 1974,
en hann sást síðast við Strandgötu
í Hafnarfirði. Það varð til þess að
tveir menn voru handteknir og yf-
irheyrðir vegna nýrra vísbendinga
í þessu rúmlega fjörutíu ára gamla
morðmáli. Þá var einnig gerð hús-
leit á heimili annars þeirra.
Stefán segist í samtali við Frétta-
tímann alsaklaus, hvorugur þeirra
hafi komið nálægt málinu og þetta
komi honum mjög á óvart. Lög-
reglumenn hafi bankað upp á
eldsnemma um morguninn og
þegar ekki var svarað, hafi þeir
mætt með kúbein til að brjótast inn.
Þá hafi verið gerð húsleit en hann
veit ekki að hverju var leitað.
Þetta er ekki í fyrsta sinn sem til-
gáta hefur komið upp um að Stef-
án Almarsson hafi komið nálægt
málinu, aðstandendur heimildar-
myndarinnar um Geirfinns- og Guð-
mundarmál, hafi reynt að ná tali af
honum en án árangurs.
Það var ríkissaksóknari sem fékk
ábendingu um að mennirnir kynnu
að búa yfir einhverri vitneskju og
kom henni áfram til endurupp-
tökunefndarinnar en hún snýr að
því að mennirnir hafi tekið þátt í
því að flytja líkið eftir morðið. Erla
Bolladóttir, sem fékk dóm fyrir að-
ild að Guðmundar- og Geirfinnsmál-
inu á sínum tíma, segist telja að nýj-
ar upplýsingar renni stoðum undir
sakleysi þeirra sem fengu dóma í
málinu.
Baldur Einarsson, bróðir Guð-
mundar Einarssonar, vildi lítið tjá
sig um nýjar vísbendingar í málinu
en sagði þó að auðvitað væri best að
sannleikurinn kæmi fram – ef hann
væri þá ekki þegar kominn fram.
Það var skýr afstaða sérstakrar
nefndar um endurupptöku Guð-
mundur- og Geirfinnsmáls að það
ætti að endurupptaka málin fyr-
ir dómstólum. Nefndin hafði þó
engar rannsóknarheimildir. Niður-
staðan fór fyrir sérstaka endurupp-
tökunefnd sem hefur hinsvegar
ekki komist að niðurstöðu. Henn-
ar er þó að vænta í ágúst eða sept-
ember.
Mirjam og Tómas Ingi gift
Stefán Almarsson og Þórður Jóhann Eyþórsson handteknir
vegna hvarfs Guðmundur Einarssonar
Ást í meinum Brúðkaup í
fangelsinu á Akureyri
Fangarnir Mirjam og Tómas Ingi,
sem sögðu ástarsögu sína í Frétta-
tímanum fyrir þremur vikum, hafa
gengið í hjónaband.
Parið kynntist í fangelsinu á
Kvíabryggju og hefur unnið að
því í nokkurn tíma að fá að ganga
í hjónaband, þó þau afpláni nú
dóma hvort í sínu fangelsinu. Full-
trúi frá sýslumannsembættinu á
Akureyri gaf þau saman fyrir utan
fangelsið þann 10. júní. Athöfn-
in fór fram á ensku, að viðstödd-
um tveimur vottum sem einnig
afplána dóma í fangelsinu á Ak-
ureyri. Tómas Ingi er að ljúka af-
plánun á dómi í fíkniefnamáli og
Mirjam hlaut sögulega langan dóm
fyrir að vera burðardýr í fíkniefna-
innflutningi frá Hollandi.
Tómas Ingi fékk heimild frá
fangelsisyfirvöldum til að fljúga frá
Reykjavík til Akureyrar á föstu-
degi, taka þátt í athöfninni, og
gista í fangageymslum lögreglunn-
ar á Akureyri um nóttina. Hjónin
fengu því ekki að verja löngum
tíma saman eftir athöfnina en
Tómas Ingi fékk að koma í aðra
heimsókn í fangelsið, á laugardeg-
inum, áður en hann flaug aftur í
bæinn. | þt
Guðmundur Einars-
son sást síðast á
Strandgötu í Hafnar-
firði aðfaranótt 27.
janúar 1974.
Nýjar upplýsingar í Guðmundarmálinu leiddu til handtöku tveggja manna.
Mirjam og Tómas Ingi voru gefin
saman fyrir utan fangelsisgirðinguna á
Akureyri á dögunum.
ALICANTE
Netverð á mann frá kr. 9.900 aðra leið m/sköttum og
tösku.Flugsæti
Bir
t m
eð
fy
rir
va
ra
um
pr
en
tvi
llu
r.
He
im
sfe
rð
ir
ás
kil
ja
sé
r r
étt
til
le
iðr
étt
ing
a á
sl
íku
. A
th.
að
ve
rð
ge
tur
br
ey
st
án
fy
rir
va
ra
.Frá kr.
9.900
Aðra leið m/sköttum
og tösku
EM Leikurinn sýndur um
morgun í Manitoba. Barinn
í Gimli mun opna fyrr en
vanalega
Fótboltaæði hefur brotist út í bæn-
um Gimli í Kanada sökum vel-
gengni íslenska liðsins á EM. Þó
margir í bænum séu af íslenskum
uppruna hefur hvorki knattspyrna
né handbolti átt upp á pallborðið
hingað til.
„Það eru helst þeir sem eru ný-
fluttir hingað frá Íslandi eða eiga
íslenska vini sem fylgjast með
handbolta, en EM 2016 er miklu
vinsælla,“ segir Karyn Suchy, íbúi
Gimli, en langafi hennar fluttist
til Kanada frá Íslandi. Hún segir
að íslenska fánanum sé nú flaggað
í bænum eins og um sjálfan Ís-
lendingadaginn væri að ræða, en
hann er haldinn hátíðlega fyrstu
helgina í ágúst.
Vegna tímamismunar verður
leikurinn sýndur klukkan ellefu
um morgun og ætlar bæjarbarinn
Ship and Plough að opna fyrr en
vanalega af þeim sökum. „Ég býst
við að allir ættingjar mínir fari
á barinn á laugardagsmorgun til
að horfa á leikinn,“ segir Karyn.
„Þetta er eitthvað sem við gerum
ekki einu sinni fyrir okkar eigin
heimalið.“
Eins og alltaf hjá Vestur-Ís-
lendingum er ættræknin í fyrir-
rúmi. „Rúnar Már Sigurjónsson er
frændi minn!“ segir Kari Johnson
Affleck, annar íbúi Gimli. -vsg
Kanadamenn uppgötva
íslenskan fótbolta