Fréttatíminn

Tölublað

Fréttatíminn - 17.06.2016, Blaðsíða 14

Fréttatíminn - 17.06.2016, Blaðsíða 14
14 | FRÉTTATÍMINN | Föstudagur 17. júní 2016 lóaboratoríum lóa hjálmtýsdóttir Á þjóðhátíðardegi Íslendinga stendur bókstaflega allt tæpt. Þetta er dagur sem brugðið getur til beggja vona. Allt sem getur klikkað mun líklega klikka. Eða kannski. Við lær- um hins vegar seint af reynslunni og ætlumst til mikils af þessum degi. Skiljanlega. Við erum nú einu sinni að tala um sjálfan þjóðhátíðar- daginn. Þetta er okkar dagur, við eigum hann og viljum „hæ, hó, jibbí jei!“ Er’ ekki allir í stuði?! Íslendingar eru víst sjálfstæð þjóð, eins sjálfstæð og þjóðir verða í samtímanum. Við erum hæfilega sjálfumglöð smáþjóð sem vill að á sig sé hlustað og það er hlustað segja menn, a.m.k. svona stundum. Leiðtogar okkar fara á mikilvæga fundi í útlöndum til að sýna fram á að á okkur sé hlustað. Dagur eins og 17. júní er síðan til þess að við hlustum á okkur sjálf . Við syngj- um sérhannaða söngva, skjótum upp sérhönnuðum fána og reynum að rækta það sem sameinar okkur frekar en sundrar. Allir saman nú! En svo brestur eitthvað. Hver man ekki eftir brostnum vonum á 17. júní? Allt sem ekki átti að klikka, það klikkaði. Þegar við erum börn þá viljum við fá alls konar dót sem fylgir hátíðahöldunum, en gasblöðr- ur eiga til að sleppa og svífa upp í himinhvolfin eða leka gasi, risastór sleikjó-snuð detta í jörðina og safna á sig sandi og ógeði, pylsan er köld, ísinn lekur út um allt, það vantar rör á Svalann og röðin í hoppukast- alann er of löng fyrir mömmu og pabba. Seinna nýta unglingar þjóðhátíðar- daginn til að „detta í það“ í fyrsta skipti. Þau vilja þannig slíta sig frá barnæskunni á þennan ofuríslenska hátt. Þessi mannvígsla inniber samt ofurmannlega sorg. Þetta er dæmt til að verða undir vænting- um og endar stundum illa. Maður vonar og trúir að þessi ósiður hafi að mestu verið lagður af. Við vilj- um trúa því að unga fólkið læri af reynslu kynslóðanna, að þau séu betri og lunknari í lífinu en við sem eldri erum. Já, góðir landsmenn. Svona er þetta. Þjóðskáldið meðal okkar, meistari Megas, söng um árið um litla sæta stráka og sagði þar m.a.: „þú veist af beiskri reynslu að vínberin eru súr.“ Fáir dagar á árinu eru eins vel til þess fallnir að kenna okkur þessi eilífu sannindi. Vínberin eru gallsúr, þó eitt og eitt sé alveg full- komið. Lykillinn að degi eins og 17. júní er væntingastjórnun sem alltaf er dæmd til að klikka. Ef það er eitt- hvað sem þessi þjóð kann ekki er það að stilla væntingum í hóf. Þetta finnur maður greinilega þegar mik- ið liggur við, þegar hátíð er í bæ og þegar okkar fólk á að „gera gott mót.“ Í rúmlega 70 ár höfum við reynt okkur við að halda upp á þjóðhá- tíðardaginn. Allt er nokkurn veg- inn í föstum skorðum á svona degi, þó að viðbætur hafi komið til sögunnar í gegnum tíðina. Á Aust- urvelli syrgjum við Jón Sigurðsson með blómsveig. Hann er enn okk- ar maður þó að tengslin við hann séu að trosna. Fæstir lesa tveggja binda ævisögur nú til dag. Á vell- inum sem sameinar þjóðina og þar sem við söfnumst líka saman til að sýna fram á sundrungu, hefur mótmælagirðingunum silfurgráu og taktföstu verið bætt við á síð- ustu árum. Helgispjöll segja sumir, aðrir fagna og slá taktinn. Við erum nefnilega sæmilega sjálf- stæð, en ekki endilega alveg sam- einuð. Þetta höfum við líka lært af beiskri reynslu og þurfum að fara að læra að lifa með þessari stað- reynd. Þá fyrst verður lýðræðið sæmilega heilbrigt. Það er nefnilega ekkert sérstaklega sorglegt við hæfilega sundrungu, jafnvel á degi eins og þessum. Þó lýðveldið sé komið á áttræðisaldur þá er stundum eins og lýðræðið í lýðveldinu sé litið barn. Frekt lítið barn sem vill allt það sem að get- ur náð í á 17. júní. Blaðran er fyrir löngu horfin upp í rigningarhimin- inn, snuðið er orðið að sandstólpa, andlitsmálningin runnin niður á bringu. Við reynum aftur að ári, þá hlýtur allt að ganga upp, á þessum súr- sætasta degi ársins. Guðni Tómasson gudni@frettatiminn.is SORGIN OG SAUTJÁNDI Köllunarklettsvegi 1, 104 Reykjavík. Sími: 531 3300. ritstjórn@frettatiminn.is Útgefandi: Gunnar Smári Egilsson. Ritstjórar: Gunnar Smári Egilsson og Þóra Tómasdóttir. Fréttastjóri: Þóra Kristín Ásgeirsdóttir. Ritstjórnarfulltrúi: Höskuldur Daði Magnússon. Framkvæmdastjóri og auglýsingastjóri: Valdimar Birgisson. Fréttatíminn er gefinn út af Morgundegi ehf. og er prentaður í 83.000 eintökum í Landsprenti. Austurstræti 16 Sími 551 0011 apotek.isAPOTEK KITCHEN+BAR SUNNUDAGS LAMBALÆRI SUNNUDAGSSTEIKIN SVÍKUR EKKI! HÆGELDAÐ LAMBALÆRI MEÐ RÓSMARÍN OG HVÍTLAUK Sykurbrúnaðar kartöflur „Crispy“ kartöfluteningar með rósmarín og hvítlauk Heimalagað rauðkál Pönnusteiktir blandaðir sveppir Ofnbakaðar gulrætur Grænar baunir með myntu Maís Bjór- hollandaisesósa Sveppasósa 2.900 kr. á mann Aðeins framreitt fyrir allt borðið. með öllu tilheyrandi ALLA SUNNUDAGA FRÁ 12–14.30

x

Fréttatíminn

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Fréttatíminn
https://timarit.is/publication/944

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.