Fréttatíminn - 17.06.2016, Side 13
| 13FRÉTTATÍMINN | Föstudagur 17. júní 2016
Þéttustu svæðin Ef fram
fer sem horfir verða
ferðamenn á íbúa á íslandi
eins og á vinsælustu
ferðamannastöðum heims
Kanaríeyjar eru það landsvæði
sem tilheyrir Evrópu þar sem
flestar gistinætur eru seldar. Ár-
lega eru þær fleiri en 90 milljónir.
Næst kemur Île de France eða Par-
ís og nærsveitir með um 77,5 millj-
ónir, Katalónía með 70,5 milljónir,
Baleaus-eyjaklasinn með Majorku,
Ibiza og Menorku með 65,3 millj-
ónir og loks strandhéruð Króat-
íu, Jadranska Hrvatska, með 61,8
milljón gistinætur árlega.
Það eru miklu færri gistinætur
seldar árlega á Íslandi. Þar voru
líklega um 6,2 milljónir í fyrra og
stefna í að verða um 8,5 milljónir í
ár þegar gert er ráð fyrir að hingað
komi um 1,7 milljón ferðamanna.
En ef spár ganga eftir og hingað
koma fimm milljónir ferðamanna
má reikna með að árlega verði
seldar um 25 milljónir gistinótta.
Í samstarfi við
Lindberg
síðan 1992
ÍslandÁFRAM
Ferðamenn hafa nánast kaffært samfélagið á Gran Canaria þótt þar megi þó enn finna þorp og dali sem ekki eru
undirlögð túrisma. Og ástandið er eilítið skárra á hinum eyjunum. En engu að síður fer það ekki fram hjá þeim
sem heimsækja eyjarnar að mannlífið snýst meira og minna kringum túrisma.Ísland á leið fram úr
Kanarí og Majorku
Virðisauki Hækkun gisti
náttagjalds vegur lítið á
móti skattaafslætti hótela og
gisthúsa.
Áætla má að skattaafsláttur til
hótela og gistihúsa nemi í ár um
10 milljörðum króna. Árið 2010
nam þessi eftirgjöf, sem felst
í því að innheimta lægra þrep
virðisaukaskatts af gististöðum,
um 3,5 milljörðum og um 8,2
milljörðum í fyrra og 10 milljörð-
um í ár. Ef áætlanir um fjölg-
un ferðamanna ganga eftir má
reikna með að afslátturinn nemi
tæpum 20 milljörðum árið 2020
og yfir 27 milljörðum um miðjan
næsta áratug.
27 milljarðar króna eru um
fimmtungur af öllum tekjuskatti
einstaklinga og 8 milljörðum
hærri fjárhæð en varið er til Há-
skóla Íslands í ár.
Nú eru uppi hugmyndir um
hækkun gistináttagjalds úr 100
krónum í 300 krónur. Sú hækk-
un mun færa tekjur hins opinbera
upp í tæplega einn milljarð króna
eða innan við 10 prósent af því
sem afsláttur á virðisauka færir
eigendum gistihús og hótela.
25 milljarða skattaafsláttur
Þar sem Íslendingar eru fáir vega
25 milljón gistinætur á Íslandi
mun þyngra en til dæmis 77 millj-
ón gistinætur í Île de France þar
sem 12 milljónir manns búa. Það
bendir því margt til að álag ferða-
mennskunnar á íslenskt samfélag
verði meira en jafnvel á veigamestu
ferðamannasvæðum Evrópu. Sé
fjölda áætlaðra gistinótta deilt nið-
ur á fjölda íbúa kemur í ljós umfang
túrismans, mælt í fjölda ferða-
manna og gistinótta miðað við
fjölda íbúa, verður 70 prósent meiri
en á Kanaríeyjum og 25 prósent
meiri en á Ibiza og Majorku. | gse
ÍSLAND
4.0
Eins og sést á grafinu
stefnir í að Ísland fari fram úr
helstu ferðamannasvæðum
Evrópu þegar horft er til fjölda
ferðamanna sem hlutfall af íbúum.
Ísland hefur þegar tekið fram úr
Île de France, héraðinu sem París
tilheyrir, og Katalóníu með Barcelona
og alla sína strandbæi.
Á næstu árum stefnir í að Ísland taki fram úr
Jadranska Hrvatska, strandhéruðum Króatíu og sjálfum
Kanaríeyjum. Ef ferðamannastraumurinn vex samkvæmt
spám eru síðan aðeins fáein ár þangað til Ísland tekur fram
úr Baleaus-eyjum, klasanum með Majorku, Ibiza og Menorku.
Ísland verra en verstu ferðamannastaðir Evrópu
Skattafsláttur til hótela og gistiheimila
í formi lægri virðisaukaskatts miðað
við spár um fjölgun ferðamanna
Upphæðir eru í milljörðum króna
Árlegur fjöldi túrista á hvern íbúa
Ísland 2025
14,7
Baleareyjar
11,8
Ísland 2020
10,3
Kanarí
8,5
Jadranska
Hrvatska 8,4
Ísland 2015
3,7
Katalónía
1,9
Île de France
1,3
2010 2015 2020 2025
27,8
19,7
8,2
3,5