Fréttatíminn - 17.06.2016, Side 41
Í mars árið 1913 hófst vinna við hafnargerð í Reykjavík með því að tekið
var að sprengja grjót inni í Öskjuhlíð og leggja flutningabraut (járn-
braut) frá Öskjuhlíðinni að Ánanaustum og í framhaldi af því að Ingólfs-
garði.
Eimreiðin, sem er alltaf sýnd á Miðbakka, var keypt hingað til lands 17.
apríl 1913 vegna hafnargerðarinnar. Eimreiðin er sett upp fyrir sumar-
daginn fyrsta og tekin niður fyrsta vetrardag. Hún er í vörslu Faxaflóa-
hafna yfir veturinn.
Hinn 16. nóvember árið 1917 voru hafnarmannvirkin afhent. Um svipað
leyti var ákveðið að gatan frá Batterísgarði vestur að Slipp skyldi heita
Tryggvagata í höfuðið á Tryggva Gunnarssyni.
Samfélagsleg verkefni
Faxaflóahafnir sf. er styrktaraðili að fjölda samfélagslegra verkefna.
Sjóferð um Sundin
Þessi skemmtilega og lærdómsríka sjóferð er í boði Faxaflóahafna
sf. fyrir nemendur 6. bekkjar á Faxaflóahafnasvæðinu. Til að gera
sjóferðina sem ævintýralegasta, þá er botnvarpa eða gildrur settar í
sjóinn, til að ná upp sjávarfangi til að sýna nemendum.
Ljósmyndasýning Miðbakka
Undanfarin ár hafa Faxaflóahafnir sett upp veglega ljósmyndasýn-
ingu, ásamt þeim Guðjóni Inga Haukssyni sagnfræðingi og Guð-
mundi Viðarssyni, á steyptum stöplum við Miðbakka. Það myndefni
sem valið er hverju sinni á að gefa vegfarendum góða innsýn í þróun
byggðar og hafsækinnar starfsemi. Ljósmyndasýningin hefur vakið
mikla lukku meðal almennings og er orðin árlegur viðburður. Sýn-
ingin opnar rétt fyrir Hátíð hafsins og stendur fram að hausti.
Hátíð hafsins
Faxaflóahafnir sf. og Sjómannadagsráð standa sameiginlega að
framkvæmd Hátíðar hafsins, sem haldin er fyrstu helgina í júní. Há-
tíðin er haldin sem ein af megin borgarhátíðum Reykjavíkurborgar, í
þeim tilgangi að gefa fjölskyldufólki tilefni til að heimsækja hafnar-
svæðið og kynnast störfum sjómanna. Hátíðin er fjölskylduhátíð
með áherslu á að fólk þurfi ekki að greiða sig inn á viðburði eða dag-
skrá hátíðarinnar.
Styrkveitingar
Á hverju ári leggja Faxaflóahafnir sf. samfélagsmálefnum lið með
styrkveitingum. Með styrkveitingunum vill fyrirtækið leggja
sitt af mörkum til þess að metnaðarfullt starf á ýmsum sviðum
samfélagsins geti dafnað.
hagskerfi landsins. Fyrir utan
útgerðir, flutningafyrirtæki
og hafsækinn iðnað, stóran
og smáan, hefur á undanförn-
um árum orðið mikill vöxtur
í hafsækinni ferðaþjónustu.
Með þessum vexti fylgir auk-
ið mannlíf og menning. Því er
höfnin í rauninni orðin allt í
senn sjávarútvegshöfn, ferða-
þjónustuhöfn, afþreyingarhöfn
og menningarhöfn.
er yfir 5.000 tonn. Faxaflóahafnir
hafa pantað stálþil í hafnarbakk-
ann sem stenst allar nútíma kröfur
og hefur hluti verið afhentur nú
þegar, þannig að hægt sé að byrja
á framkvæmdum.
Nýi hafnarbakkinn telst til mjög
stórs verks í hafnargerð og því þarf
til verks ýmis tæki og tól sem ekki
eru til hér á landi. Það sem gerir
nýja hafnarbakkann áhugaverðan
er að suma verkhluta er verið að
vinna í fyrsta sinn hér á landi. Þar
má telja rekstur á samsettu þili,
rekstur stálbita undir sporbita og
endarekstur þeirra í klöpp. Þar að
auki þarf að fergja alla verkáfanga
bakkagerðar sem tekur langan tíma
og stýrir að vissu marki framgangi
framkvæmda.
Grjótið flutt með
járnbraut úr Öskjuhlíð
…kynning9 | amk… föstudagur 17. júní 2016