Fréttatíminn - 17.06.2016, Síða 45
„Kærastan mín keypti nýlega Net-
flix sem ég nota auðvitað miklu
meira en hún og þar datt ég inn
í þætti sem heita Marseille. Þeir
fjalla um stjórnmál og bakstung-
ur í borgarpólitíkinni í Marseille.
Ég hef mjög gaman af því. Þetta er
eiginlega franska útgáfan af House
of Cards. Það eru líklega margir
Íslendingar núna í Marseille þannig
það er tilvalið fyrir fólk að kíkja á
þessa þætti þegar það kemur heim.
Ef það er nógu mikið um pólitík,
spillingu og bakstungur þá eru það
þættir fyrir mig. Það er algjörlega
minn tebolli. Þessir þættir eru í
uppáhaldi í augnablikinu. En svo
horfi ég auðvitað á House of Cards
og Game of Thrones. Það er nóg af
því sama þar.
Svo hef ég unnið mig að minnsta
kosti fjórum sinnum í gegnum all-
ar seríurnar af West Wing. Það er
einmitt sama þema. Oft á sumrin
þegar það er gjörsamlega ekkert í
sjónvarpinu þá tek ég nokkra þætti
af West Wing. Þetta er eiginlega
óheilbrigt stjórnmála „obsession“
hjá mér. Það er auðvitað nógu
mikið um stjórnmál í fréttum, en
það dugir mér ekki. Það er líka
töluvert af svona þáttum í boði og
stjórnmála „thrillerar“ virðast vera
að færast í aukana. Ég hafði mjög
gaman af Borgen þegar þeir voru á
sínum tíma og gömlu Yes, minister.
Þá eru geggjaðir þættir í gangi á
HBO sem heita Veep, þar sem Julia
Louis-Dreyfus fer á kostum sem
varaforseti Bandaríkjanna.“
Sófakartaflan
Stefán Rafn Sigurbjörns-
son, fréttamaður á 365
Með óheilbrigt stjórnmála „obsession“
Nú talaði
Jesús aftur
til þeirra
og sagði:
“Ég er ljós
heimsins.
Sá sem fylgir
mér mun ekki
ganga í myrkri
heldur hafa
ljós lífsins.”
www.versdagsins.is
…sjónvarp13 | amk… föstudagur 17. júní 2016
Pólitíkin heillar Stefán Rafn
vill hafa nógu mikið af spillingu
og bakstungum í þáttunum
sem hann horfir á. Mynd | Hari
Tímalaus klassík á
þjóðhátíðardaginn
Með allt á hreinu RÚV
klukkan 20.10 Ef þú hefur ekki séð
Með allt á hreinu þá er komið að
því í kvöld. Og ef þú hefur séð
hana, eins og allar líkur eru á, þá
horfirðu bara aftur og jafnvel enn
einu sinni á þessa snilld. Myndin
fjallar um hljómsveitirnar Stuð-
menn og Gærurnar (Grýlurnar) sem
ferðast um landið og keppa.
Kafað ofan í nauðgunarmenningu
The Hunting Ground Netflix Í þessari mögnuðu mynd er flett ofan af
þeim fjölda af nauðgunum sem eiga sér stað á háskólalóðum í Bandaríkj-
unum. Talað er við fórnarlömb og aðstandendur og sagt frá eftirmálum og
hvernig er tekið á svona málum hjá stjórnvöldum. Oftar en ekki eru svona
mál þögguð niður og ekkert aðhafst, en 1 af hverjum 5 stúlkum í háskólum
í Bandaríkjunum er nauðgað.
Sáluhjálp í þungarokkinu
Málmhaus RÚV klukkan 22.15 Átakanleg kvikmynd frá 2013 um
stelpu sem lifir áhyggjulausu lífi í sveitinni þar til eldri bróðir hennar deyr
af slysförum og hún kennir sjálfri sér um dauða hans. Í sorginni finnur hún
sáluhjálp í þungarokki og dreymir um að verða rokkstjarna. Aðalhlutverk:
Ingvar E. Sigurðsson, Halldóra Geirharðsdóttir, Þorbjörg Helga Dýrfjörð,
Þröstur Leó Gunnarsson og Sveinn Ólafur Gunnarsson. Leikstjórn: Ragnar
Bragason.
EM um helgina
Í dag, föstudag 17. júní
13.00 Ítalía - Svíþjóð E-riðill
16.00 Tékkland - Króatía D-riðill
19.00 Spánn - Tyrkland D-riðill
PÓSTSENDUM FRÍTT HVERT Á LAND SEM ER
Fákafeni 9 | Sími 581-1552 | www.curvy.is