Fréttatíminn - 17.06.2016, Blaðsíða 46
…matur 14 | amk… föstudagur 17. júní 2016
„Engan víking hef ég hitt
sem er með slæmt hjarta“
Víkingahátíð er haldin við Fjörukrána í Hafnarfirði um helgina, 21. árið í röð. 200 íslenskir víkingar leggja hönd á plóg
Unnið í samstarfi við Fjörukrána
Hin árlega Víkingahátíð er haldin nú um helgina, 16.–19. júní, með tilheyr-andi skemmtidagskrá
við Fjörukrána í Hafnarfirði. Há-
tíðin í ár er númer 20 í röðinni og
hefur eigandinn, Jóhannes Viðar
Bjarnason, betur þekktur sem Jói
á Fjörukránni, frá upphafi séð til
þess að skemmta landanum og
erlendum gestum með aðstoð
góðra fyrirtækja og Hafnar-
fjarðarbæjar.
Hátíðin í ár er með sama sniði
og síðustu ár, en mikill vöxtur hef-
ur verið í umfangi og afþreyingu
frá því að hátíðin komst fyrst á
laggirnar árið 1995. Nú í dag er
áhersla lögð á skemmtidagskrá
fyrir alla fjölskylduna, enda hver
einasta mínúta helgarinnar skipu-
lögð með glæsilegri dagskrá langt
fram á kvöld.
Þegar líða fer að þessari
skemmtilegu hátíð fer að bera
á víkingum á svæðinu og koma
þeir víðsvegar að frá Evrópu.
Jóhannes segir að hér áður fyrr
hafi hann þurft að hafa fyrir því
að fá víkingana til landsins og
þurft að greiða fyrir þá flug, mat
og gistingu. En nú sé svo komið
að tugir erlendra víkinga sæk-
ist enn eftir að koma hingað til
lands til að vera viðstaddir þessa
hátíð á eigin og nú sjá þeir um að
borga flugmiðana og síðan fá þeir
frítt upphald meðan á hátíðinni
stendur.
Fjöldi íslenskra víkinga hefur
einnig aukist svo um munar síð-
ustu árin, en þeir eru nú um 200
talsins og hafa þeir tekið virk-
an þátt í þessari einstöku hátíð
á ári hverju, flestir úr Hafnarfirði
og víkingafelagi sem stofnað var
í kring um Fjörukrána og nefnist
Rimmugýgur. Þeir bjóða fram að-
stoð sína á hverju ári og segir Jó-
hannes að hann sé afar þakklátur
þeirri aðstoð sem hann hefur feng-
ið frá þessum dyggu íslensku vík-
ingum. Nú er svo komið að íslenska
víkingahátíðin hefur orðið sér úti
um mjög gott orðspor. „Það er bor-
ið mikil virðing fyrir þessari hátíð í
heimi víkinga,“ segir Jóhannes.
„Þessir víkingar núna eru að-
allega íslenskir, yfir 200 víkingar
alls. Þeir voru flestir litlir strákar
sem voru að fylgjast með þessum
víkingum sem voru að koma hing-
að til lands á árum áður.“
Víkingarnir sem eru á svæðinu
eru vanalega um 250–300 talsins
og er skemmtanahald á svæð-
inu fram á nótt, þar sem víkingar
sjá um afþreyingu. Margir gestir
koma á hótelið gagngert til þess
að vera viðstaddir hátíðina.
Frá því að veitingastaðurinn
Fjörukráin var stofnuð árið 1990,
með pláss fyrir 50 manns í sæti,
hefur Jóhannes bætt við sig Vík-
ingahóteli með rúmlega 60 her-
bergjum og er staðurinn fær um
að taka á móti hátt í 500 manns
í sæti.
Jóhannes vill koma á fram-
færi þakklæti fyrir alla þá aðstoð
sem hann hefur fengið í gegnum
tíðina. Víkingafélagið Rimmugýg-
ur, eins öll þau fyrirtæki sem og
Hafnarfjarðarbær, hefur lagt hönd
á plóg og aðstoðað Jóhannes í að
gera hátíðina að þeirri hátíð sem
hún er í dag.
Þess má geta að börn hafa færi
á því að fara í víkingaskóla, sem
getur verið mjög skemmtilegt fyr-
ir þau, þrátt fyrir að víkingar geti
virst óhuggulegir fyrir börnin.
„Þessir víkingar líta kannski ekk-
ert vel út en engan víking hef ég
hitt sem er með slæmt hjarta. En
víkingalegir eru þeir.“
Dagskrá hátíðarinnar má nálg-
ast á heimasíðu Fjörukrárinnar,
www.fjorukrain.is, undir Víkinga-
hátíð 2016.
Jói á Fjörukránni er kominn í
rétta gírinn fyrir árlega Víkingahá-
tíð þar um helgina. Mynd | Hari
Moðsoðið
kryddlegið
lambalæri með
rósmarín
kartöflum
Fyrir fjóra til
sex
1 lambalæri
1 hvítlaukur
1 msk ferskt
timían
1 msk ferskt/
þurrkað blóð-
berg
½ msk rósmarín
½ msk majoram
5 msk jómfrúarolía
salt og pipar
1. Brjótið álpappírinn saman
nokkrum sinnum þannig að
hann þoli að liggja á berum kol-
um.
2. Nuddið lambalærið upp úr olíu
og saltið og piprið. „Spekkið“
lærið með hvítlauknum með
því að stinga nokkur göt í það
með stuttum hníf og troða hvít-
lauknum í sárið.
3. Leggið þriðjung af kryddjurt-
unum á álpappírinn og svo
lambalærið ofan á jurtirnar.
4. Setjið þriðjung af jurtunum
ofan á lærið og síðasta þriðj-
unginn með hliðunum.
5. Pakkið lærinu vandlega inn og
grillið á heitum kolum í 1½-2
klst eftir stærð lærisins. Snúið
á hálftíma fresti.
6. Takið svo lærið af grillinu og
látið það hvíla í 30 mínútur
áður en þið opnið álpappírinn.
7. Á meðan lambið hvílir blúss-
hitið þið grillið.
8. Penslið lambið að 30 mínútum
liðnum með smáræði af jómfrú-
arolíu, saltið aðeins og brúnið
það síðan að utan á funheitu
grillinu. Það þarf ekki nema
mínútu á hvorri hlið þar sem
það er þegar eldað í gegn.
Gætið þess að halda vökvanum í ál
pappírnum til haga og nota í sósuna!
Fyrir rósmarínkartöflurnar
800 g nýjar kartöflur
4 msk góð jómfrúarolía
2-3 greinar ferskt rósmarín
1 hvítlaukur
sjávarsalt og pipar
Rósmarínkartöflurnar
1. Takið hvítlaukinn sundur
í geira, setjið með kartöfl-
unum í eldfast mót (eða
álbakka) og veltið upp úr
olíunni.
2. Raðið rósmaríngreinum á
milli og saltið vel og piprið.
3. Bakið við óbeinan hita í
um klukkustund þar til
kartöflurnar eru gullnar að
utan.
Moðsoðið lambalæri
á þjóðhátíðardaginn
Ragnar Freyr Ingvarsson, Læknirinn í eldhúsinu, er á
þjóðlegum nótum í dag og færir okkur uppskrift að girnilegu
lambalæri sem eldað er að fornum sið
Í grunninn er hér um að ræða gamal-kunna en jafnframt frábæra íslenska leið til að elda lambalæri. Moðsuða var gjarn-an viðhöfð á heimilum á öldum áður þegar eldiviður var af skornum skammti.
Á mörgum heimilum voru moðsuðukassar úr
tré þar sem hey, ull, hálm-
ur, fiður, segl eða tjöld
voru notuð til einangrunar, eða hvaðeina sem
mátti nota til að spara eldiviðinn. Maturinn
var settur í einangraðan kassann og kassinn
nálægt hitagjafanum. Og svo var bara beðið.
Þessi aðferð er enn einfaldari – lambalærið
er umlukt ferskum kryddjurtum, pakkað inn
í álpappír, sett beint á kolin og grasþaka lögð
yfir. Einfalt.
Þjóðhátíðarlambið
Ragnar Freyr Ingv-
arsson matreiðir hér
lambalæri að fornum
sið. Hann segir að
moðsoðið lambið
bragðist einstaklega
vel og passi vel vilji
fólk vera á þjóðlegum
nótum í dag.