Fréttatíminn

Tölublað

Fréttatíminn - 09.07.2016, Blaðsíða 10

Fréttatíminn - 09.07.2016, Blaðsíða 10
10 | FRÉTTATÍMINN | Laugardagur 9. júlí 2016 Ég hitti vinkonurnar Zöhru og Maryam í fyrsta sinn í matarboði síðastliðinn vetur. Þær sögðu sögur og hlógu og voru glaðar og létu eins og flestar tvítugar stelpur láta. En þær eru samt ekki eins og flestar tvítugar stelpur. Zahra hefur búið á Íslandi frá því hún fékk hér hæli fyrir tæpum fjórum árum. Þá höfðu hún, móðir hennar og systir, verið á flótta frá Afganistan síðan faðir hennar var myrtur fyrir rangar stjórnmála- skoðanir. Zahra ólst því upp sem flóttamaður í Íran þar til hún, móð- ir hennar og systir, fengu ásamt þremur öðrum afgönskum konum og börnum þeirra hæli á Íslandi. Þetta voru fyrstu afgönsku konurn- ar til að fá hæli hér á landi. Frá því að Zahra kom til lands- ins fyrir tæpum fjórum árum hefur hún lært íslensku, tekið stúdentspróf, stundað nám í há- skólanum, lært að keyra bíl og eignast vini. Hún segir Ísland vera draumalandið sitt. Hér hefur hún í fyrsta sinn fengið tækifæri til að hugsa um framtíðina. Hana dreym- ir um að verða læknir og draumur- inn getur ræst. Maryam getur aftur á móti ekki látið sig dreyma um neitt, hvað þá framtíðina. Hún hefur, líkt og Zahra, lifað sem flóttamaður mest alla sína ævi. Þegar hún var fjögurra ára flúði móðir hennar, Tapikey, með hana til Írans undan ógnarstjórn talíbana í Kabúl. Síðan hafa þær verið á flakki milli Írans og Afganistan. Þegar Maryam var sextán ára vildi valdamikill afg- anskur stríðsherra taka hana sem konu og þá ákvað móðir hennar að flýja með dóttur sína til Evrópu. Þær sóttu um hæli á Íslandi eft- ir að hafa verið synjað í Svíþjóð. Ástæðan fyrir synjuninni var sú að þær voru skilgreindar sem „efna- hagslegir f lóttamenn“ í leit að „betra lífi“. Maryam hefur aldrei skilið þessa niðurstöðu sænska kerfisins því hún og móðir henn- ar eru einfaldlega að leita að „lífi“. Þegar við hittumst í vetur hafði hælisumsókn þeirra líka verið synj- að á Íslandi en lögfræðingur þeirra hafði kært synjunina og þær biðu í von og óvon eftir nýrri niðurstöðu. Maryam hefur lifað við slíka óvissu um framtíðina allt sitt líf og móð- ir hennar hefur lifað í ótta um af- drif Maryam frá því hún fæddist. Á flótta frá einu landi til annars, úti á hafi á gúmmíbáti, í vöruflutn- ingabílum og fótgangandi með stöðugar áhyggjur af dóttur sinni þar til hún endaði hér, á Íslandi. Í dag er Tapikey með svo mikla áfallastreituröskun að hún er kom- in með alvarleg minnisglöp. Á þeim ellefu mánuðum sem mæðgurnar hafa verið á Íslandi hefur myndast vinátta með- al Zöhru og Maryam. Þegar af- gönsku konurnar hittast er það oftar en ekki við eldhúsborðið þar sem sögurnar sjóða meðan deig- ið er hnoðað. Þegar við hittumst í matarboðinu höfðu vinkonurnar, ásamt systrum og mæðrum, verið í eldhúsi Zöhru í þrjá daga að undir- búa veisluna. Þær elduðu rétt sem er klassík á öllum veisluborðum Afgana, Manto. Manto eru litlar soðnar deigbollur sem eru fylltar með kjöti og grænmeti. Nafn rétt- arins er samsett úr orðunum „ég“ og „þú“ og þýðir VIÐ. VIÐ því þennan rétt eldar enginn einn. Ekki bara vegna þess að það er auðveldara að vinna hann saman heldur líka vegna þess að það er svo miklu skemmtilegra. Rétturinn er sá eini sem samein- ar stórfjölskylduna í eldamennsku, bæði karla og konur. Zahra og Mar- yam ákváðu að elda Manto því rétturinn er tákn sameiningar og samstöðu. Vinkonurnar eiga ótal minningar úr æsku tengdar Manto en hafa líka skapað nokkrar góðar við eldhús- borð á Íslandi. En þær verða því miður ekki fleiri því á næstu dög- um mun íslenska ríkið vísa Mar- yam og móður hennar úr landi. Af hverju? Af því að kæran var ekki tekin gild og mál þeirra er kom- ið á borð lögreglunnar. Af því að kerfið segir þær víst vera öruggar í Afganistan. Af því að það er ekkert bara VIÐ. Af því að þar sem erum VIÐ, verða alltaf líka HINIR. Halla Harðardóttir VIÐ OG HINIR Köllunarklettsvegi 1, 104 Reykjavík. Sími: 531 3300. ritstjórn@frettatiminn.is Útgefandi: Gunnar Smári Egilsson. Ritstjórar: Gunnar Smári Egilsson og Þóra Tómasdóttir. Fréttastjóri: Þóra Kristín Ásgeirsdóttir. Ritstjórnarfulltrúi: Höskuldur Daði Magnússon. Dreifing: Póstdreifing. Framkvæmdastjóri og auglýsingastjóri: Valdimar Birgisson. Fréttatíminn er gefinn út af Morgundegi ehf. og er prentaður í 83.000 eintökum í Landsprenti. Það er allt í lagi. Pappelina vill láta ganga yfir sig á skítugum skónum. Hún er nefnilega úr plasti. Pappelina virkar því best þar sem mikið álag er á gólfinu. Tilvalinn félagi í forstofuna eða eldhúsið. Svo vill hún líka fara í þvottavél. Plastmotturnar frá Pappelinu hafa farið sigurför um heiminn og eru nú loksins fáanlegar á Íslandi. Kíktu á úrvalið í verslun Kokku eða á kokka.is. J Ó N S S O N & L E ’M A C K S • jl .i s • S ÍA Á skítugum skónum? Það er llt í lagi. Pappelin vill láta ganga yfir sig á skítugum skónum. Hún er nefnilega úr plasti. Pappelina virkar því best þar sem mikið álag er á gó finu. Tilvalinn félagi í forstofuna e a eldhúsið. Svo vill hún líka f ra í þvottavél. Plastmotturnar frá P ppelinu hafa a ið sigurför um h iminn g eru nú loksins fáanlegar á Íslandi. Kíktu á úrvalið í verslun Ko ku eða á kokka.is. J Ó N S S O N & L E ’M A C K S • jl .i s • S ÍA Á skítugum skónum? Það er allt í lagi. Pa pelina vil láta ganga yfir sig á skítugum skónum. Hún er nefnilega úr plasti. Pa pelina virkar því best þar sem mikið álag er á gólfinu. Tilvali n félagi í forstofuna eða eldhúsið. Svo vill hún líka fara í þvottavél. Pl stmotturnar frá Pa pel nu hafa farið sigurför um heimi n og eru nú loksins fáanlegar á Íslandi. Kíktu á úrvalið í verslun Ko u eða á ko ka.is. J Ó N S S O N & L E ’M A C K S • jl .i s • S ÍA Hausverkurinn eftir EM 2016

x

Fréttatíminn

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Fréttatíminn
https://timarit.is/publication/944

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.