Fréttatíminn - 09.07.2016, Blaðsíða 6
6 | FRÉTTATÍMINN | Laugardagur 9. júlí 2016
Myndir | Rut
Straumur
ferðamanna til
Íslands eykst með
hverjum degi.
Ferðamenn virðast
vera í meirihluta
þeirra sem eru á
vappi um miðbæ
Reykjavíkur og
landinn orðinn því
alvanur. En hvaða
fólk er þetta?
Birna Guðmundsdóttir
birna@frettatiminn.is
Ferðamennirnir Hvaðan koma
þeir og hvað eru þeir að gera hér?
Svartur
sandur
stóð upp úr
Gao fjölskyldan frá
Beijing, Kína: „Á
morgun fljúgum við
til Danmerkur en við
foreldrar mínir erum
búin að vera hér í rúm-
lega tvær vikur. Fórum
hringinn frá Reykjavík.
Á Akureyri, Egilsstaði,
Vík í Mýrdal og svo
framvegis. Mér fannst
svarta ströndin við Vík í
Mýrdal alveg standa upp
úr. Foreldrum mínum
fannst skemmtilegast að
sjá Þingvelli, held ég.“
Vinna í fríinu
Kwame Charles frá London, Englandi: „Ég og kærasta mín höfum verið hér í
nokkra daga, erum bæði í fríi og að vinna. Í dag er vinnudagur en við eigum fyr-
irtæki og getum því unnið hvar sem við viljum í heiminum. Á morgun ætlum við
í Bláa lónið en annars höfum við dálítið verið að einblína á matinn hérna. Fórum
til dæmis á nafnlausa pítsustaðinn í gær og það var magnað, sjaldan smakkað
jafn góða pítsu.“
Miklu
hreinna
en í London
Cameron, Archie,
Charlie og Connor frá
London, Englandi: „Við
erum í skólaferð,“ segir
Cameron.„,Við fórum
í gær í Bláa lónið og
síðan höfum við farið
í náttúrulaugar, þær
eru geggjaðar! Skoðuð-
um líka eldfjöll, fossa,
jökla og annað,“ segir
Charlie. „Það er eigin-
lega merkilegast hvað
það er hreint hérna.
Miklu hreinna en í
London,“ bætir hann
við.
Hver er mikilvægasti
markhópurinn þinn?
58% kvenna á
höfuðborgarsvæðinu
30 til 50 ára,
mikilvægasta
markhópnum,
lesa Fréttatímann
í hverri viku.
58%
FT FBL
58%