Fréttatíminn

Tölublað

Fréttatíminn - 09.07.2016, Blaðsíða 14

Fréttatíminn - 09.07.2016, Blaðsíða 14
14 | FRÉTTATÍMINN | Laugardagur 9. júlí 2016 hringum síðar – og gæfa Ítala var að hafa miklu meiri breidd auk þess sem þeir voru að fá mikilvæga leikmenn til baka úr meiðslum. Ítalir gerðu því fimm breytingar á byrjunarliðinu og Júgóslavar að- eins eina – og unnu öruggan 2-0 sigur þar sem Gigi Riva var að- alstjarnan, en hann hafði verið meiddur í fyrri leiknum. Gullöld Þjóðverja Næstu þrír úrslitaleikir áttu eitt sameiginlegt: Vestur-Þýskaland. Óvænt jafntef li í Albaníu hafði kostað þá sæti í fjórðungsúrslitun- um 1968 en liðið var óstöðvandi 1972 og lék sér að Sovétmönn- um í úrslitaleiknum í 3-0 sigri. Franska blaðið L‘Equipe talaði um fótbolta frá árinu 2000 og flestir voru sammála um að þetta væru langbestu Evrópumeistararnir til þessa. Leikstíllinn var kallað- ur Ramba Zamba fussball og það voru þrjár súperstjörnur í liðinu; Franz Beckenbauer sem var svo ró- legur að hann spilaði fótboltaleiki með hvíldarpúls, Gerd Müller sem skoraði fleiri mörk en hann lék landsleiki og gleymda stjarnan Günter Netzer. Netzer var maður mótsins – það mætti kannski kalla hann George Best þýska boltans, hann nennti varla að æfa en stjórn- aði spilinu áreynslulaust þegar á hólminn var komið. Netzer náði sér hins vegar ekki á strik á HM tveimur árum síðar og spilaði bara einn leik – og þótt Þjóðverjar ynnu titilinn þá voru það Hollendingar sem allir elskuðu og skyndilega var ramba-zambað flestum gleymt. Evrópumótið 1976 reyndist svo það dramatískasta í sögunni. All- ir fjórir leikir lokakeppninnar enduðu í framlengingu og Þjóð- verjar virtust algerlega ódrep- andi. Þeir lentu 2-0 undir á móti Júgóslavíu en unnu 4-2 og svo lentu þeir 2-0 undir á móti Tékkóslóvak- íu en jöfnuðu og knúðu fram víta- spyrnukeppni. Við erum flest vön því að vítakeppni þýði sjálfkrafa þýskan sigur – en sú hefð kom síð- ar. Tékkinn Antonín Panenka skor- aði sigurmarkið með frægasta víti knattspyrnusögunnar, vítaspyrn- utækni sem hefur verið kennd við hann allar götur síðan. Þetta byrj- aði allt með veðmálum. Panenka var vanur að veðja um bjór eða súkkulaði við markmanninn á æf- ingavellinum – og hann tapaði ít- rekað. Þangað til honum datt í hug að gabba markmanninn með því að skjóta í háum boga í mitt mark- ið eftir að hann var búinn að skutla sér – tækni sem hann fullkomn- aði þessa sumarnótt í Belgrad. Panenka var einn af fáum Tékkum í liðinu, þetta var gullöld slóvakís- ka fótboltans og þaðan voru 8 leik- menn af 11, en samt fengu Tékkar að erfa heiðurinn af þessum eina titli Tékkóslóvakíu. Vestur-Þjóðverjar endurheimtu titilinn fjórum árum síðar, en það er minni glans yfir þessum hálf-gleymdu Evrópumeistur- um frá 1980. Gömlu stjörnurnar voru flestar hættar og Karl-Heinz Rumenigge og Bernd Schuster voru nýstirnin – Rumenigge átti eftir að vera helsta stjarna þýska boltans næstu árin en Schuster var hins vegar andlegur arftaki Günt- er Netzer. Hann var besti mað- ur keppninnar – en spilaði svo aldrei aftur á stórmóti eftir deil- ur við þjálfara, leikmenn og þýska knattspyrnusambandið. Liðið var þó ekki nærri því jafn sterkt og áður og náði aðeins að tryggja sér 2-1 sigur á spútnikliði Belga á lokamínútunum. Úrslitaleikurinn skipti þó jafnvel meira máli fyrir Belga – þeir voru hálfgerðir ný- græðingar á stórmótum og mark- vörðurinn frægi Jean-Marie Pfaff sagði seinna: „Fyrir EM 1980 vor- um við amatörar.“ En það gjör- breytist og Belgar voru fastagestir á stórmótum næstu tuttugu árin. Michel og Marco sigra Evrópu Evrópukeppnin hefur alið af sér ófáar stjörnur en engar hafa átt heilu mótin með húð og hári eins og Michel Platini og Marco van Basten árin 1984 og 1988. Það voru samt engar skussar með þeim í liði. Franska liðið státaði af gullna ferhyrningnum í miðjunni – þeim Alain Giresse, Luis Fernández, Jean Tigana og Platini sjálfum – en þegar miðjumaður skorar níu mörk í fimm leikjum þá er óhætt að nota hástemmd lýsingarorð. Dramað var mest í undanúrslitun- um og úrslitaleiksins gegn Spán- verjum er aðallega minnst fyrir klaufaskap spænska markvarðar- ins Arconada þegar Platini skoraði fyrra markið í 2-0 sigri. Fjórum árum síðar unnu Hol- lendingar sinn fyrsta titil – og þótt það kæmi lítið á óvart bjuggust flestir við að þetta yrði mótið hans Ruud Gullit. Og Gullit var þræl- góður á mótinu – en þeir töpuðu þó opnunarleiknum gegn Sovét- mönnum. Þá var Marco van Basten á bekknum, enda hafði hann ver- ið meiddur mestallan veturinn – og var heldur ekki ennþá orðin sú stórstjarna sem við munum í dag. En það breyttist fljótt, þrenna gegn Englendingum og mark þegar þeir náðu fram hefndum gegn Þjóð- verjum í undanúrslitunum þýddi að þeir mættu Sovétmönnum aft- ur í úrslitaleiknum. Þar mættust tveir guðfeður – Rinus Michels, guðfaðir hollenska total football skólans, var aftur orðinn lands- liðsþjálfari og Valeri Lobanovsky, hugsuðurinn á bak við veldi Dyna- mo Kiev, stjórnaði Sovétmönnum. Þeir mættu í raun til leiks með hálf-úkraínskt landslið, eftir á að hyggja, en sjö Úkraínumenn, tveir Rússar og tveir Hvít-Rússar byrj- uðu úrslitaleikinn. En ómögulegt galdramark van Basten tryggði Hollendingum 2-0 sigur, skömmu eftir að Sovétmenn höfðu misnot- að víti. Öskubuskuævintýri og gullmörk Þjóðverjar snéru aftur í úrslitaleik- inn 1992 – í fyrsta skipti sem sam- einað Þýskaland – en það dugði ekki til þess að stoppa danska Öskubuskuævintýrið. Danir höfðu komist á EM bakdyramegin eftir að Júgóslavíu var hent út vegna borgarastyrjaldar, þeir höfðu kom- ist naumlega upp úr riðlakeppn- inni og lifðu af undanúrslitaleik- inn gegn Hollendingum á einhvern ótrúlegan hátt – þar sem hálft danska liðið virtist vera að spila framlenginguna í gegnum krampa. En þegar í úrslitaleikinn var komið var eins og Þjóðverjar hefðu sætt sig við að það væri þegar búið að skrifa handritið – og 2-0 sigur Dana var furðu þægilegur á endanum. Það leit svo út fyrir að Þjóðverjar ætluðu að tapa aftur fyrir spútnik- um fjórum árum síðar – ungu og upprennandi tékknesku liði sem enginn hafði búist við neinu af. En þegar tuttugu mínútur voru eftir kom Olivier Bierhoff inn á, fram- herji sem hafði ekki náð neinni fótfestu í Bundesligunni áður en hann varð aðalmarkaskorari Udi- nese á Ítalíu. Hann jafnaði fljótlega og skoraði svo gullmark á fimmtu mínútu framlengingar. Gullmörkin voru skammlíf og umdeild tilraun til þess að lífga upp á framlengingar – þar sem það dugði til sigurs að skora fyrsta markið í framlengingunni. Þá var einfaldlega flautað af. Frakk- ar unnu líka á gullmarki fjórum árum síðar í 2-1 sigri á Ítölum og urðu þar með aðeins annað liðið á eftir Þjóðverjum til þess að vera bæði heims- og Evrópumeistarar í einu. Næsta Evrópumót fór fram í Portúgal og gullaldarlið Portú- gala, sem hafði bæst liðsauki í ungum Cristiano Ronaldo, ætlaði sér mikla hluti en tapaði óvænt fyrir Grikkjum í opnunarleiknum. Það virtist þó ekki ætla að koma að sök, þar sem þeir rifu sig upp og marseruðu nokkuð örugglega í úrslitaleikinn – þar sem Grikkir biðu þeirra á ný. Grikkland hafði aldrei unnið nein afrek á fótbolta- vellinum áður og landsliðsmenn þess höfðu verið niðurlægðir á HM tíu árum áður – markatalan þá var 0-10. En í útsláttarkeppninni 2004 tókst engum að skora gegn fjölmennri grískri vörninni, ekki Evrópumeisturum Frakka, ekki Tékkum, líklega besta liði keppn- innar, og ekki heldur Portúgölum, sem töpuðu úrslitaleiknum 1-0. Flestum sparkunnendum er svo vafalaust í fersku minni gulla- ldarlið Spánverja, sem urðu fyrst- ir allra til að verja Evrópumeist- aratitilinn og voru raunar ekki í neinum vandræðum í úrslitaleikj- unum tveimur. Fernando Torres skoraði eina markið gegn Þjóðverj- um 2008 en sigurinn var miklu ör- uggari en þær tölur gáfu til kynna. Svo slátruðu þeir Ítölum 4-0 fyr- ir fjórum árum. En þeir ná ekki að verja titilinn – og núna bíðum við bara eftir að sjá arftaka þeirra krýnda. Vonandi eftir skemmti- legan og dramatískan fótboltaleik. Stjörnurnar Marco Van Basten og Michel Platini voru yfirburðamenn á Evrópumótum níunda áratugarins, sem skilaði þjóðum þeirra sínum fyrsta titli. Evrópukeppnin hefur alið af sér ófáar stjörnur en engar hafa átt heilu mótin með húð og hári eins og Michel Platini og Marco van Basten árin 1984 og 1988.

x

Fréttatíminn

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Fréttatíminn
https://timarit.is/publication/944

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.