Fréttatíminn - 06.08.2016, Page 4
4 | FRÉTTATÍMINN | Laugardagur 6. ágúst 2016
Vanskil við bæinn
Fyrirtækið United Silicon er
þegar komið í mikil vanskil við
bæjarfélagið og eru 100 millj-
ónir í lögfræðinnheimtu vegna
lóðarleigu. Fyrirtækið neitaði
að greiða skuldina þar sem bæj-
arfélagið væri á hausnum en
bæjaryfirvöld telja hinsvegar
að ekki verði vandkvæði á því
að standa við öll fyrirheit þegar
verksmiðjan taki að fullu til
starfa en einungis fyrsti áfangi
hennar af alls fjórum verður
gangsettur á næstu mánuðum.
Stjórnmál Áhrifafólk í
Framsóknarflokknum segir
að æskilegast væri að Sig-
mundur Davíð drægi sig í hlé
og Sigurður Ingi Jóhannsson
tæki við formennsku en hann
er varaformaður flokksins.
Hörðustu stuðningsmenn Sig-
mundar Davíðs horfa fremur
til Lilju Alfreðsdóttur, fari svo
að hann neyðist til að víkja.
Þóra Kristín Ásgeirsdóttir
tka@frettatiminn.is
Sigmundur Davíð Gunnlaugsson
hefur verið á yfirreið um landið að
undanförnu til að ræða við áhrifafólk
í Framsóknarflokknum en hann vill
gegna formennsku áfram. Um það
eru þó skiptar skoðanir í flokknum
enda hefur fylgið hrapað eftir um-
ræðuna um Panama-skjölin.
Eygló Harðardóttir félagsmálaráð-
herra, sem situr í landsstjórn flokks-
ins sem kom saman á fimmtudag,
segir að ákveðið hafi verið að boða
til miðstjórnarfundar í lok mánað-
arins til að taka ákvörðun um hvort
flýta eigi flokksþingi en samkvæmt
lögum flokksins á það að vera í
febrúar á næsta ári. „Það er gott að
marka stefnuna fyrir kosningar, en
ég treysti miðstjórn til að taka rétta
ákvörðun,“ segir Eygló. Hún segir að
það gleymist oft í þessari umræðu,
að þótt Panama-málið hafi verið mik-
ið högg fyrir Framsóknarflokkinn,
sé Sigmundur Davíð mjög vinsæll
meðal flokksmanna. „Hann þykir
almennt hafa staðið sig vel og okkur
þykir ákaflega vænt um hann.“
Bæði Sigurður Ingi Jóhannsson
forsætisráðherra og Lilja Alfreðsdótt-
ir utanríkisráðherra, sem hafa ver-
ið nefnd sem líklegir arftakar hans,
hafa lýst því yfir að þau fari ekki fram
gegn sitjandi formanni. Lilja Alfreðs-
dóttir hefur ekki gefið út hvort hún
sækist eftir þingsæti í næstu kosn-
ingum en hún verður að ákveða fyr-
ir fimmtánda ágúst hvort hún ætli
að gefa kost á sér á lista flokksins.
Margir áhrifamenn í flokknum eru
þeirrar skoðunar að best færi á því
að Sigmundur Davíð viki til hliðar
af sjálfsdáðum og Sigurður Ingi tæki
sæti hans sem varaformaður.
Lilja er náin vinkona Sigmundar
Davíðs, fyrrverandi aðstoðarmaður
hans og einn helsti stuðningsmað-
ur hans þegar hann bauð sig fram
til formanns. Fari svo að Sigmundur
Davíð víki, sem er ekki í kortunum
núna, munu stuðningsmenn hans
horfa til Lilju fremur en Sigurðar
Inga. Mörgum úr stuðningsliði for-
mannsins þykir hinsvegar sem hann
hafi verið helst til sjálfstæður, til að
mynda í umræðum um kosningar
þar sem stefna hans og formanns-
ins fór ekki saman. Þetta fólk horf-
ir frekar til Lilju Alfreðsdóttur sem
arftaka Sigmundar, fari svo að hann
þurfi að víkja.
„Enginn er ómissandi og ég held
að ég vilji sjá nýjan forystumann í
Framsóknarflokknum,“ segir Guð-
mundur Baldvin Guðmundsson,
bæjarfulltrúi Framsóknarflokksins
á Akureyri. „Það hefur orðið trún-
aðarbrestur milli Sigmundar Dav-
íðs og flokksmanna og það eru mjög
blendnar tilfinningar gagnvart hon-
um. Sigurður Ingi Jóhannsson er að
mínu mati best til þess fallinn að taka
við keflinu,“ segir hann. „Ég tel að
hann eigi að víkja en það eru auðvit-
að skiptar skoðanir hér í kjördæm-
inu, eins og annars staðar,“ segir
Stefán Bogi Sævarsson, bæjarfulltrúi
á Egilsstöðum. „Mér þætti eðlilegt að
Sigurður Ingi tæki við keflinu en ég
veit auðvitað ekki hverjir bjóða sig
fram ef til þessa kemur.“
Þingflokkurinn er ekki einhuga
að baki Sigmundi Davíð, hvað sem
menn segja um það opinberlega.
Silja Dögg Gunnarsdóttir, þingmað-
ur flokksins í Suðurkjördæmi, seg-
ir mikilvægt að halda flokksþing,
fara yfir málin og ræða hvort gera
eigi breytingar á forystunni. Eygló
Harðardóttir segir að öll forystan
muni lúta vilja miðstjórnarinnar. Ef
það sé talið rétt að þau sæki endur-
nýjað umboð til flokksmanna verði
það gert. Sjálf segist hún ekki hafa
tekið ákvörðun um hvort hún bjóði
sig þá fram að nýju til stjórnar. Að-
spurð hvort hún muni sækjast eft-
ir formennskunni, segist hún enga
ákvörðun hafa tekið um það.
Sigurður Ingi of
sjálfstæður fyrir
Sigmund Davíð
Mörgum hörðustu sam-
starfsmönnum Sigmundar
Davíðs þykir Sigurður Ingi
full sjálfstæður og halla sér
fremur að Lilju Alfreðsdóttur.
Mynd | Hari
Lilja Alfreðsdóttir
hefur ekki gefið út
hvort hún sækist
eftir þingsæti í
næstu kosningum
en hún verður að
ákveða fyrir fimm-
tánda ágúst hvort
hún ætlar að gefa
kost á sér á lista
flokksins.
„Enginn er ómiss-
andi og ég held að
ég vilji sjá nýjan
forystumann í Fram-
sóknarflokknum,“
segir Guðmundur
Baldvin Guðmunds-
son, bæjarfulltrúi
Framsóknarflokks-
ins á Akureyri.
„Ég tel að hann eigi
að víkja en það eru
auðvitað skiptar
skoðanir hér í
kjördæminu, eins og
annars staðar,“ segir
Stefán Bogi Sævars-
son, bæjarfulltrúi á
Egilsstöðum.
„Sigmundur Davíð
þykir almennt hafa
staðið sig vel og
okkur þykir ákaflega
vænt um hann,“
segir Eygló Harðar-
dóttir.
Helguvík „Það verður vænt-
anlega ekki biðröð fyrir
framan verksmiðjuna til
að vinna fyrir þessi laun,“
segir Kristján Gunnarsson,
formaður Verkalýðs og
sjómannafélags Keflavíkur,
en kísilverið United Silicon
hefur ákveðið að gera ekki
sérkjarasamninga við verka-
lýðsfélagið á staðnum vegna
nýs kísilvers.
Kísilver United Silicon er að fara
í gang en dagsetningunni hefur
þó verið frestað nokkrum sinn-
um. Verið er að ráða verkamenn til
starfa og verksmiðjan verður gang-
sett fyrir áramót. „Þetta eru mikil
vonbrigði og algerlega á skjön við
öll fyrirheit sem gefin voru þegar
þessar framkvæmdir voru kynntar
til sögunnar,“ segir Kristján. Hann
segir að fyrirtækið greiði verka-
mönnum 1470 krónur á tímann
sem nái ekki lágmarkslaunum. Þá
greiði fyrirtækið 60 þúsund króna
uppbót til að slefa yfir lágmarkið.
„Mín vegna má þetta fyrirtæki bara
fara, ég hef áhyggjur af því að þeir
ætli í raun að sækja þetta vinnuafl
til útlanda og koma því fyrir í ein-
hverjum leiguhjöllum fyrir okur-
prís,“ segir hann og bendir á að það
sé mikill uppgangur á Suðurnesj-
um, atvinnuástandið sé gott eftir
langt atvinnuleysistímabil, það sé
ólíklegt að heimamenn flykkist á
staðinn: „Ekki til að vinna fyrir
laun sem rétt drullast yfir 300 þús-
und kallinn.“
Stjórnendur fyrirtæksins hafa
samþykkt að ræða við verkalýðs-
félagið um kaup og kjör. Kristján
segist vonast eftir því að fyrirtækið
endurskoði afstöðu sína eftir fund-
inn. | þká
„Mín vegna má þetta fyrirtæki bara
fara, ég hef áhyggjur af því að þeir
ætli í raun að sækja þetta vinnuafl til
útlanda og koma því fyrir í einhverj-
um leiguhjöllum fyrir okurprís,“ segir
Kristján Gunnarsson.
Tækni Hópur sýrlenskra
flóttamanna í Þýskalandi
hannaði app til auðvelda
samskipti við þýsku
bjúrókrasíuna. Íslendingar
sem streyma til Berlínar geta
nýtt sér þjónustuna.
Þeir fjölmörgu f lóttamenn sem
komið hafa til Þýskalands undan-
farið ár hafa, eins og aðrir nýbúar
í landinu, rekið sig á vegginn sem
þýska bjúrókrasían er. Skrifræðið
þar er löngum orðið heimsfrægt
og reynist flóttafólki afar torskilj-
anlegt, sérstaklega þar sem tungu-
málið er stór hindrun.
Hópur sýrlenskra flóttamanna
sem kom til Berlínar í fyrra, brá því
á það ráð að smíða hugbúnað sem
auðveldar fólki pappírsvinnuna.
Hugbúnaðurinn er ekki bara hugs-
aður fyrir flóttafólk, heldur alla sem
koma nýir til landsins, og nefnist
Bureacrazy.
Notandinn skráir upplýsingar
um sig á sínu móðurmáli og appið
prentar út útfyllt eyðublöð á þýsku.
Það veitir einnig upplýsingar um
pappíra sem þarf að útvega og stað-
setningu viðeigandi stofnana.
Hátt í tvö þúsund Íslendingar
eru búsettir í Þýskalandi. Í fjöl-
menna umræðuhópnum, Berlín,
borgin okkar, á Facebook, hjálp-
ast Íslendingar að við að skrá sig
inn í landið, sækja um hin og þessi
réttindi, stofna bankareikninga og
leysa úr vandamálum sem koma
upp í samskiptum við þýska kerfið.
Bureacrazy getur ef til vill komið
þeim að góðum notum. Fjármögn-
un stendur nú yfir og hægt er að
hafa beint samband við Bureacrazy
á Facebook. | þt
Úrræðagóðir
flóttamenn með nýtt
app við skrifræði
Hönnuðir appsins höfðu enga reynslu af forritun né hugbúnaðasmíðum áður en
þeir hrundu verkefninu í framkvæmd.
Kísilver greiðir lágmarkslaun verkafólks
Klif ehf • Grandagarði 13, Reykjavík • Sími 552-3300 • www.klif.is
Notendavænn
góður filter á
hjólum fyrir raf-
suðureyk og ryk
• Auktu framleiðni og gæði
• Bættu strarfsumhverfið