Fréttatíminn

Tölublað

Fréttatíminn - 06.08.2016, Blaðsíða 12

Fréttatíminn - 06.08.2016, Blaðsíða 12
aðið kemur ekki nálægt fjármögn- un ólympíuleikanna sjálfra því það kemur í hlut ríkissjóðs og Rio de Janeiro-borgar sjálfrar. Óbein áhrif eru mjög slæm því héraðið borgar lögreglumönnum laun. Þegar hér- aðsstjórinn lýsti yfir neyðarástandi vegna fjársveltis í júní, fóru lög- reglumenn í verkfall. Myndir birtu- st í heimspressunni af löggum sem héldu á skiltum með áletruninni: „Velkomin til helvítis!“ Ríkið þurfti að koma héraðinu til bjargar með neyðarfjárlögum og lögreglumenn fengu loks launin sín borguð. Glæpa- tíðni í Brasilíu er mjög há í alþjóð- legum samanburði. Aðeins 14 lönd í heiminum teljast hafa hærri morð- tíðni en 50 þúsund morð voru fram- in í Brasilíu árið 2014. Rio de Janeiro telst þó öruggari staður en meðal- borgin í landinu. Gestir Ólympíuleik- anna eru varaðir við þjófnaði og smáglæpastarfsemi. Alls munu 85 þúsund manns gæta öryggis á leik- unum, en það eru um helmingi fleiri en í London 2012. Talsverður við- búnaður er vegna hættu á hryðju- verkum og hafa nokkrir verið hand- teknir í Brasilíu vegna gruns um að þeir tengist Íslamska ríkinu. Mannréttindabrot Meira en 6000 fjölskyldur hafa ver- ið reknar frá heimilum sínum eða hótað slíku í undirbúningi fyrir bæði ólympíuleikana og HM fyrir tveim- ur árum. Á undanförnum árum hafa mörg fátækrahverfi eða favelas ver- ið rýmd og jöfnuð við jörðu til að byggja mannvirki í tengslum við íþróttaviðburðina. Á lóð ólympíu- þorpsins stóð áður favela sem var fjarlægð smám saman. Margir mótmæla áformum um að breyta íbúðunum í byggingunum sem hýsa íþróttamenn í lúxusíbúðir fyrir ríkt fólk eftir leikana en það virðist vera stefna stjórnvalda. Amnesty-samtök- in í Brasilíu segja að stjórnvöld hafi misst af góðu tækifæri til að bæta Rio með framkvæmdunum. Hægt hefði verið að sætta borgarbúa í stað þess að sundra þeim enn meira, en gríðarleg skipting ríkir í borginni á milli fátæklinga og þeirri efnameiri. Samtökin telja að stefna yfirvalda um að taka heimili af fólki og breyta svæðum þeirra svo í ríkramanna- hverfi gangi gegn anda ólympíuleik- anna. Gríðarlegt ofbeldi einkennir lífið í fátækrahverfum Rio og aðgerð- ir lögreglu þar á síðustu árum við að hreinsa þau af eiturlyfjabarónum þykja misheppnaðar. Mengun Eitt af helstu loforðum stjórnvalda í aðdraganda ólympíuleikanna var að hreinsa mengunina í Guanabara- -flóa í Rio. Efnahagsástandið þýddi hins vegar að það var aldrei gert. Gríðarlegt magn af skólpi og ýmsum öðrum úrgangi rennur út í flóann frá stórborginni. Sérfræðingar vara við böðun og siglingum í sjónum. Þetta er meðal þess sem vekur reiði heima- manna í Rio. Á meðan milljörðum er varið í tímabundin mannvirki er minna um fjárfestingar í varanlegum innviðum og mikilvægum mál eins og mengunarstarf. Hættan af Zika- -veirunni hefur að ýmsu leyti verið ýkt í heimspressunni því í Rio, eins og annars staðar á suðurhvelinu, er nú vetur og þá er moskítóflugan að mestu fjarverandi. Þarf á góðum leikum að halda Ef leikarnir heppnast vel þá geta þeir hresst við brasilísku þjóðina sem glímir við margslungin vandamál. Og þeir geta vonandi komið hinni frábæru borg Rio á réttu brautina. En það er ekki nóg að hún sé falleg og að veðrið sé gott. Stjórnvöld þurfa að vinna bug á glæpastarfsemi, bæta innviði og samgöngur, byggja fleiri sjúkrahús og skóla til að bæta líf íbú- anna sjálfra – en ekki bara ríkra gesta á stærsta íþróttaviðburði veraldar. í smíðum. Landið naut, rétt eins og hin BRICS-ríkin svokölluðu, Rúss- landi, Kína, Indland og Suður-Afríka, gríðarlegs hagvaxtar vegna hás verðs á hrávörum í heiminum. Uppsveiflan í Kína hækkaði mjög verð á ýmsum landbúnaðarvörum og einnig verð á olíu og málmum. 2008, árið áður en Rio de Janeiro landaði ólympíuleik- unum, hafði Kína einmitt haldið eina glæsilegustu sumarleika sögunnar í Beijing – sem kostuðu gríðarlegt fé. Það þótti því borðleggjandi að efna- hagslega sterk Brasilía með sínar 200 milljónir íbúa og krúnudjásn sitt, hina gullfallegu borg Rio, gæti haldið ólympíuleika. Brasilíumenn höfðu auðvitað líka fengið HM 2014 í sinn hlut eftir kosningu hjá FIFA árið 2007. Þeir horfðu bjartsýnir fram á veginn og það gerði umheimurinn líka. Á forsíðu nóvemberblaðs The Economist árið 2009 var mynd af Kristsstyttunni í Rio að takast á loft líkt og eldflaug og fyrirsögnin „Brazil takes off“. Kreppa og leiðindi Mikill samdráttur hefur orðið á síð- ustu árum á hrávörumörkuðun- um sem tryggðu Brasilíu efnahags- legan uppgang og landið glímir nú við djúpa kreppu. Spillingarmál og mikil eyðsla í ríkisbúskapnum hef- ur gert vandann enn erfiðari. Og ofan á allt saman ríkir stjórnmála- leg upplausn. Þetta sýnir okkur enn á ný fram á óstöðugleikann í hagkerf- um heimsins. Aðeins sjö árum eft- ir að hinni ríku Brasilíu var hampað glímir landið við atvinnuleysi, verð- bólgu og minnsta hagvöxt í áratugi. Og á síðustu árum hefur komist upp um stærsta spillingarmál sögunnar í Brasilíu. Það tengist ríkisolíufyr- irtækinu Petrobras og teygir anga sína um allt þjóðfélagið. Stærstu byggingarfyrirtæki landsins eru grunuð um að rukka Petrobras um of hátt verð fyrir verk og deila þeim peningum með ríkasta og valdamesta fólki landsins. Fyrsta bylgja mótmæla var í júní 2013 þegar álfukeppnin í fótbolta fór fram í landinu, en mótið var einskonar upphitun fyrir HM sem fór fram árið eftir. Mótmælin hófust þegar verð á almenningssamgöngum var hækkað í São Paulo. Þó að sak- leysislegt yfirbragð hafi verið á því í fyrstu þróuðust mótmælin fljótt yfir í allsherjar mótmæli gegn spill- ingu. Fólk krafðist betri þjónustu, menntunar og heilsugæslu. Reiðin beindist líka gegn eyðslu vegna HM. Þessi bylgja mótmæla skaut aftur upp kollinum í fyrr í tengslum við brottví- sun Dilmu Rousseff forseta en hún er sökuð um að hafa fegrað ríkisreikn- inga á ólögmætan hátt og bíður nú niðurstöðu um hvort hún verði sett af. Mótmælin halda áfram og bein- ast nú gegn ólympíuleikunum, en eru minni í sniðum en áður. Löggan í verkfalli Rio de Janeiro-hérað rambar á barmi gjaldþrots og það hefur komið sér einkar illa í undirbúningnum. Hér- Forsíða The Economist frá nóvember 2009. Enginn bjóst við að Brasilía glímdi við eina dýpstu efnahagskreppu sögunnar aðeins sjö árum síðar. 12 | FRÉTTATÍMINN | Laugardagur 6. ágúst 2016 Stríð í fátækrahverfum. Lögreglumenn í favelu viku fyrir setningarathöfn ólympíuleikanna. Aðeins sjö árum eftir að hinni ríku Brasilíu var hampað glímir landið við atvinnu- leysi, verðbólgu og minnsta hagvöxt í áratugi. Og á síðustu árum hefur komist upp um stærsta spill- ingarmál sögunnar í Brasilíu. Það tengist ríkisolíufyrirtækinu Petrobras og teygir anga sína um allt þjóðfélagið. Mynd tekin í júní 2016 eftir að Rio de Janeiro fékk neyðarlán frá ríkinu til að ljúka framkvæmdum fyrir leikana. KRINGLUNNI 2. HÆÐ | HAGKAUPSHÚSINU, SKEIFUNNI SPÖNGINNI, GRAFARVOGI SELESTE UMGJÖRÐ Á: 1 kr. við kaup á glerjum

x

Fréttatíminn

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Fréttatíminn
https://timarit.is/publication/944

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.