Fréttatíminn

Issue

Fréttatíminn - 06.08.2016, Page 22

Fréttatíminn - 06.08.2016, Page 22
Bieber vill fá Bud light og lífræna banana í Kórnum Kanadíski söngvarinn Justin Bieber treður upp á stærstu tónleikum Íslandssögunnar í næsta mánuði. Á kröfulista Biebers fyrir tónleika er fjölbreytt úrval af bjór, tekíla og nóg af kexi og sælgæti. Vill nóg að bíta og brenna Justin Bieber treður upp á tvennum tónleikum í Kórnum í Kópavogi í september. Forvitnilegt er að sjá kröfur hans um veitingar baksviðs. Þar skal vera nóg af bjór og tekíla en Bieber vill sömuleiðis sælgæti og snakk. Mynd | NordicPhotos/Getty Kanadíski popparinn Justin Bieber krefst þess að á tónleikum hans sé fjölbreytt úr-val af mat og drykkj- um til taks baksviðs. Meðal þess sem Bieber vill geta gætt sér á er Bud Light bjór, te, Red Bull orku- drykkir, morgunkorn og lífrænir bananar. Tekíla og lífrænn kalkúnn Þetta má lesa út úr kröfulista Biebers, eða svokölluðum „rider“ sem Fréttatíminn hefur undir höndum. Ísleifur Þórhallsson, tónleikahaldari hjá Senu Live, vill ekki staðfesta að umræddur „rider“ eigi við tónleika Biebers hér á landi. Hann vill ekki tjá sig um kröfur Biebers og föruneytis á tónleikunum í Kórnum í næsta mánuði. Ýmislegt forvitnilegt er á kröfu- lista Biebers. Auk áðurnefnds Bud Lights vill söngvarinn svala þorst- anum með Corona og Stella bjór. Þá vill hann að til taks séu tvær flöskur af Don Julio 1942 tekíla. Bieber vill gott úrval af gosdrykkj- um og orkudrykkjum, fjölbreytt úrval af te-i og flöskuvatn. Ekki ætlar söngvarinn að svelta og því skal vera til taks fjölbreytt úrval ávaxta, mikið af lífrænum banön- um, samlokubrauð og ýmist álegg, svo sem lífrænn kalkúnn, Provolone ostur og svartar ólívur. Nóg af sælgæti og kexi Þá vill Justin Bieber geta geng- ið að nokkrum tegundum af tyggjói, venjulegu Skittles og súru Skittles, M&M og tíu pökkum af Hi-Chew sælgæti. Hann er greini- lega eitthvað fyrir sætindin því þar fyrir utan vill hann graðga í sig þremur gerðum af Oreo-kexi, Twixi og Kit Kat. Og ef sá gállinn er á honum er ekki verra að geta komist í minnst tvær gerðir af morgunkorni. Auk Biebers sjálfs eru settar fram kröfur um það sem dansarar og tónlistarmenn í hljómsveitinni vilja hafa til taks. Stærstu tónleikar Íslandssögunnar Tónleikar Justins Bieber fara fram í Kórnum í Kópavogi dagana 8. og 9. september næstkomandi. Um 38 þúsund gestir verða á tónleik- unum eða yfir tíu prósent þjóðar- innar. Í vikunni var tilkynnt að hljómsveitin Sturla Atlas hiti upp. Samkvæmt upplýsingum Frétta- tímans er undirbúningur fyrir tónleikana nú kominn á fullt. Um- fang tónleikanna verður af áður óþekktri stærðargráðu enda um langstærstu tónleika hér frá upp- hafi. | hdm „Atriðin verða kringum 35 sem er mjög svipað og síðustu ár. Það eru þessir föstu liðir sem við sjáum á hverju ári, helstu hóparnir inn- an hinsegin samfélagsins, svo eru stóru stuðatriðin eins og Kiki bar, tvö eða þrjú sjálfstæð drag-atriði og að sjálfsögðu Páll Óskar sem er bú- inn að gefa út að hann ætli að vera silfraður einhyrningur,“ segir Ásta Kristín Benediktsdóttir, formaður göngustjórnar Gleðigöngunnar um hvers má vænta í göngunni í dag. Þetta er sjöunda gangan sem Ásta Kristín skipuleggur en hún er að hætta sem formaður göngu- stjórnar og ætlar að því tilefni að skella sér upp á einn pallinn með stjórn hinsegin daga. „Þetta verður svolítið öðruvísi fyrir mig en venju- lega. Ég held ég hafi bara einu sinni gengið í göngunni sjálfri, annars hef ég bara verið að stýra henni. Þannig þetta verður eflaust áhuga- verð upplifun.“ Aðspurð hvort göngustjórn- in hafi á síðustu árum þurft að afstýra einhverjum krísum seg- ir hún ýmis atvik koma upp, sum stærri en önnur. „Í fyrra þurftum við að bregðast við því þremur dög- um fyrir göngu þegar í ljós kom að víkingaskipið hans Páls Óskars var alltof hátt. Það komst ekki undir trén í Sóleyjargötunni. Lausnin á því vandamáli var reyndar ekki mjög flókin, við færðum einfald- lega gönguna yfir á hina akbraut- ina. Það eru ýmis svona atriði sem fólk hugsar kannski ekki út í og þarf því að bregðast við á síðustu stundu.“ | slr Afstýra krísum í gleðigöngunni Göngustjórnin Sami hópurinn hefur skipulagt gönguna síðustu ár og kann því vel til verka. Mikið stuð verður í miðbænum í dag þar sem meðal annars má sjá Pál Óskar í gervi einhyrnings. Hafnað! Þrátt fyrir að lepja sannarlega ekki dauðann úr skel lenti sjálf Adele í því á dögunum að kreditkortinu hennar var hafnað í H&M. Hún sagðist hafa skammast sín niður í tær en gera má ráð fyrir því að aðrar ástæður en blank- heit hafi orsakað synjunina enda með launahæstu lista- mönnum heims. Söngkonan sagði frá uppákomunni á nýleg- um tónleikum en hún er á tónleikaferð um Bandaríkin um þessar mundir. Í ferðinni hefur hún verið dugleg að versla í ódýrari verslunum, jafnvel Target. „Það er allt til þar! Ég eyddi 100 dollurum í dót sem ég þarf ekki – mig vantar aldrei það sem ég kaupi í Target en hún er frábær,“ sagði Adele en það eru eflaust margir sem tengja við þennan hugsunarhátt. Hættur að reykja – byrjaður að „veiba“ Simon Cowell hefur reykt eins og strompur í fjölda ára en hefur nú snúið sér að rafrettunum eins og svo fjölmargir aðrir. Cowell, sem varla festist á filmu nema með rettu í munnvikinu, segist hafa viljað setja ungum syni sínum gott fordæmi. Hann reykir nú rafrettur af miklum móð og segir það vera bara ansi ljúft að „veiba“, eins og gár- ungar kalla athæfið hér á landi. Sonur hans er tveggja ára gamall og var Cowell farinn að óttast að reykingarnar hefðu slæm áhrif á drenginn þegar fram liðu stundir. Bomban í banastuði Britney Spears er í banastuði þessa dagana og í fantaformi. Ný plata er væntanleg þann 26. ágúst og hún hefur verið áberandi í hvers kyns kynningargjörningum undanfarið. Hún læddist til dæm- is inn í svefnherbergi Jimmy Kimmel í skjóli nætur með fjóra dansara og hélt litla einkadanssýningu fyrir hann. Allt heila klabbið var svo sýnt í spjallþætti Jimmy Kimmel en hann tók þessu afar vel enda spjallþátta- kóngar þekktir fyrir að bæði hrekkja og vera hrekktir á móti. Söngdívan hefur slegið í gegn með sýningu sinni í Planet Hollywood í Vegas og var samningur hennar framlengdur á síðasta ári um heil tvö ár vegna fágætrar vel- gengni sýningar af þessu tagi. Afar ánægjulegt að sjá drottninguna sjálfa í svo góðum gír eftir fremur tvísýna tíma. …fólk 2 | amk… LAUGARDAGUR 6. ÁGÚST 2016 Ekki ætlar söngvarinn að svelta og því skal vera til taks fjölbreytt úrval ávaxta, mikið af lífrænum banönum, samlokubrauð og ýmist álegg, svo sem lífrænn kalkúnn, Provolone ostur og svartar ólívur. Laugavegi 178 | Sími 555 1516 Kíkið á myndir og verð á Facebook Opið virka daga k l. 11–18 Opið laugardaga kl. 11-15 Flottur sumarfatnaður Kvarterma peysa á 12.900 kr. 3 litir Stærð 36 - 52 Buxur á 15.900 kr. 5 litir Stærð 34 - 48 Laugavegi 178 | Sími 555 1516 Kíkið á myndir og verð á Facebook Opið virka daga k l. 11–18 Opið laugardaga kl. 11-15 Flottu sumarfatnaður Kvarterma peysa á 12.900 kr. 3 litir Stærð 36 - 52 Buxur á 15.900 kr. 5 litir Stærð 34 - 48 íkið á myndir og verð á Facebook Verð 11.900 kr. 3 litir: blátt, grátt, svart. Stærð 36 - 46 - rennilás neðst á skálm Verð 15.900 kr. 5 litir: gallablátt, svart, hvítt, blátt, ljóssand. Stærð 34 - 48 Laugavegi 178 | Sími 555 1516 Kíkið á myndir og verð á Facebook Opið virka daga k l. 11–18 Opið laugardaga kl. 11-15 Flottur su arf tnaður Kvarterma peysa á 12.900 kr. 3 litir Stærð 36 - 52 Buxur á 15.900 kr. 5 litir Stærð 34 - 48 Gallab xur Kíkið á myndir og verð á Facebook Laugavegi 178 | Sími 555 1516 Kíkið á myndir og verð á Facebook Opið virka daga k l. 11–18 Opið laugardaga kl. 11-15 Flottur suma fatnaður Kvarterma peysa á 12.900 kr. 3 litir Stærð 36 - 52 Buxur á 15.900 kr. 5 litir Stærð 34 - 48 Laugavegi 178 | Sími 555 1516 Kíkið á myndir og verð á Facebook Opið virka daga k l. 11–18 Opið laugardaga kl. 11-15 Flottur sumarfatnaður Kvarterma peysa á 12.900 kr. 3 litir Stærð 36 - 52 Buxur á 15.900 kr. 5 litir Stærð 34 - 48 íkið á myndir og verð á Facebook Verð 11.900 kr. 3 l tir: blátt, grátt, svart. Stærð 36 - 46 - rennilás neðst á skálm Verð 15.900 kr. 5 litir: gallablátt, svart, hvítt, blátt, ljóssand. Stærð 34 - 48 Laugavegi 178 | Sími 555 1516 Kíkið á myndir og verð á Facebook Opið virka da a k l. 11–18 Opið laugardaga kl. 11-15 Flottur su arfatnaður Kvarterma peysa á 12.900 kr. 3 litir Stærð 36 - 52 Buxur á 15.900 kr. 5 litir Stærð 34 - 48 Gallab xur Laugavegi 178 | Sími 555 1516 Kíkið á myndir og verð á Facebook Opið virka daga k l. 11–18 Opið laugardaga kl. 11-15 Flottur sumarfatnaður Kvarterma peysa á 12.900 kr. 3 litir Stærð 36 - 52 Buxur á 15.900 kr. 5 litir Stærð 34 - 48 Laugavegi 178 | Sími 555 1516 Kíkið á myndir og verð á Facebook Opið virka daga k l. 11–18 Opið laugardaga kl. 11-15 Flottur sumarfatnaður Kvarterma peysa á 12.900 kr. 3 litir Stærð 36 - 52 Buxur á 15.900 kr. 5 litir Stærð 34 - 48 íkið á myndir og verð á Facebook Verð 11.900 kr. 3 litir: blátt, grátt, svart. Stærð 36 - 46 - rennilás neðst á skálm Verð 15.900 kr. 5 litir: gallablátt, svart, hvítt, blátt, ljóssand. Stærð 34 - 48 Laugavegi 178 | Sími 555 1516 Kíkið á myndir og verð á Facebook Opið virka daga k l. 11–18 Opið laugardaga kl. 11-15 Flottur su arfatnaður Kvarterma peysa á 12.900 kr. 3 litir Stærð 36 - 52 Buxur á 15.900 kr. 5 litir Stærð 34 - 48 Gallab xur ÚTSALA 30 - 60% AFSLÁTTUR Verðdæmi: Verð nú Verð áður Pils 3.900 kr. 9.900 kr. Buxur 4.900 kr. .900 kr. Toppur 4.900 kr. 8.900 kr. Blúndujakki 4.900 kr. 9.900 kr. Toppur 3.900 kr. 9.500 kr. Buxur 8.900 kr. 13.900 kr. Kjóll 4.900 kr. 9.900 kr. Pils 5.900 kr. 12.900 kr.

x

Fréttatíminn

Direct Links

If you want to link to this newspaper/magazine, please use these links:

Link to this newspaper/magazine: Fréttatíminn
https://timarit.is/publication/944

Link to this issue:

Link to this page:

Link to this article:

Please do not link directly to images or PDFs on Timarit.is as such URLs may change without warning. Please use the URLs provided above for linking to the website.