Fréttatíminn

Tölublað

Fréttatíminn - 17.09.2016, Blaðsíða 2

Fréttatíminn - 17.09.2016, Blaðsíða 2
2 | FRÉTTATÍMINN | Laugardagur 17. september 2016 Upplýsingar í símum 845 1425 / 899 1295 eða á tölvupósti info@iceline.is Verð á mann í tvíbýli kr 622.000 Nánari ferðalýsing á www.icelinetravel.com Sydney, Brisbane, Fraser Island, strandbærinn Noosa, þjóðgarðar og fl. er meðal þess sem boðið verður upp á í þessari ferð. Ástralía 18. nóv til 5. des 2016 Sigríður Hagalín með skáldsögu Sigríður Hagalín hefur skrifað bók með pólitísku og sagnfræðilegu ívafi sem hefur fengið titilinn Eyland. Bækur Fréttakonan ætlaði að henda handritinu í ruslið. Sigríður Hagalín Björnsdóttir vara- fréttastjóri RÚV brá sér í þriggja mánaða starfsleyfi frá fréttastof- unni fyrr á árinu og nýtti það til að berja saman sína fyrstu skáldsögu. Hugmyndina að sögunni hafði hún gengið með lengi. Í viðtali við Guð- rúnu Vilmundardóttur bókaútgef- anda í þessu blaði, kemur fram að til hafi staðið að henda handritinu. „Í haust var hún svo á báðum átt- um hvort hún ætti að henda hand- ritinu í ruslið eða sýna mér það... og til allrar guðslifandi hamingju leyfði hún mér að kíkja!“ Sagan hefur hlotið titilinn Eyland og lýsir Guðrún henni sem einskonar „land- búnaðarhrollvekju“. Fyrirhugað er að bókin komi út hjá bókaútgáfunni Benedikt í haust. | þt Viðskipti Ingimar Jóhanns- son, skrifstofustjóri í sjávar- útvegs- og landbúnaðar- ráðuneytinu, eignaðist jörðina Grímstungu í Vatns- dal sem Arion banki hafði yfirtekið vegna skulda eigandans. Hann var for- maður vinnuhóps sem vann með skuldsettum bændum og eigendum jarða ásamt viðskiptabönkunum. Kaup- verðið var 85 milljónir en árið 2006 var jörðin seld á 145 milljónir. Ingi Freyr Vilhjálmsson ingi@frettatiminn.is Skrifstofustjóri í sjávarútvegs- og landbúnaðarráðuneytinu keypti jörðina Grímstungu í Vatnsdal í Húnavatnshreppi af Arion banka síðla árs 2012 eftir að hafa unnið að málefnum skuldsettra bænda og jarðaeigenda í starfi sínu um nokkurra ára skeið. Kaupverðið var 85 milljónir króna en jörðin var seld á 145 milljónir króna árið 2006. Skrifstofustjórinn heitir Ingimar Jó- hannsson og keypti hann jörðina ásamt konu sinni, Lillý Valgerði Oddsdóttur. Grímstunga er gam- alt höfuðból í Vatnsdal og er með- al annars stærsti einstaki eigandi veiðiréttar í laxveiðiánni Vatns- dalsá með tæp 10 prósent af veiði- réttindunum. Í samtali við Fréttatímann segist Lillý ekki getað rætt Grímstungu. „Ég er að fara til tannlæknis. Má ég ekki hringja í þig á eftir?“ Þegar Fréttatíminn fór í prentun hafði hún ekki haft samband við blaðið eða svarað símtölum. Ekki náðist í Ingimar við vinnslu fréttarinnar. Hann lét af störfum í ráðuneytinu í ársbyrjun 2014 samkvæmt upplýs- ingum frá ráðuneytinu. Ingimar var formaður vinnuhóps sem skipaður var af Jóni Bjarna- syni árið 2009 og átti að fjalla um og bregðast við erfiðri skuldastöðu bænda og jarðaeigenda í kjölfar efnahagshrunsins árið 2008. Ís- lensku viðskiptabankarnir höfðu þá eignast fjölmargar jarðir víða um landið, meðal annars Grímstungu. Í minnisblaði um skipun starfshóps- ins sagði meðal annars: „Stjórnvöld hafa einkum af því áhyggjur, hvern- ig bújörðum í eigu eignarhalds- félaga, sem keypt hafa jarðir í stór- um stíl, verði ráðstafað, ef þessi fé- lög fara í þrot, sérstaklega ef um er að ræða jarðir sem skipta máli fyr- ir búsetu og nýtingu lands í sveit- um landsins og fæðuöryggi þjóðar- innar.“ Vinnuhópurinn átti meðal annars að vinna að því „kortleggja“ þessi mál og fá yfirlit yfir jarðir sem líklegt er að „lendi undir yfirráðum banka og fjármálastofnana“. Í svari frá Arion banka kem- ur fram að jörðin hafi verið aug- lýst til sölu í gegnum fasteignasöl- ur í „hefðbundnu söluferli“ og að hæsta tilboðinu hafi verið tekið eftir að Grímstunga hafði verið til sölu í um eitt ár. Samkvæmt svarinu var jörðin seld með sama hætti og aðr- ar jarðir og fasteignir sem bankinn hefur tekið yfir. Grímstunga var áður í eigu eignarhaldsfélagsins Flaums ehf. sem Andri Teitsson átti en Arion banki yfirtók jörðina vegna skulda Flaums eftir hrunið. Andri keypti einar sjö jarðir á Íslandi fyrir nokk- ur hundruð milljónir króna á árun- um fyrir hrunið 2008. Hann keypti jörðina af bóndanum í Gríms- tungu, Steingrími Reynissyni, og segist fyrst og fremst hafa horft til arðsins af veiðiréttindum í Vatns- dalsá sem fylgja henni. Leigan á veiðiréttindunum í Vatnsdalsá var tæpar 50 milljónir króna árið 2009 og 41 milljón árið 2010 en hún er tengd við Bandaríkjadal. Eigendur veiðiréttindanna fengu frá 28 millj- ónum og upp í rúmar 53 milljónir króna í arð út úr Veiðifélagi Vatns- dalsár á árunum 2007 til 2010. Hlutdeild Grímstungu í þessum arði er tæplega 10 prósent. Andri segir að kaupverðið fyrir jörðina sé í lægri kantinum þegar litið er til verðs á slíkum jörðum í dag en að á þeim tíma, á fyrstu árunum eftir hrun, hafi verðið verið lægra. „Ég var með þá hugmynd að byggja fjárfestinguna á veiðitekjum sem fylgja að einhverju leyti erlendu verðlagi. Maður getur, í einhverj- um skilningi, verið eins og útflutn- ingsfyrirtæki sem fjármagnar sig með erlendum lánum án stórfelldr- ar áhættu,“ segir Andri en bara miðað við arðstekjur af Vatnsdalsá geta kaupin á Grímstungu borgað sig upp á 15 til 20 árum. 20 prósenta afsláttur af krónum Ingimar Jóhannsson fjár- magnaði viðskiptin með Grímstungu í gegnum fjár- festingarleið Seðlabanka Ís- lands, með fjármunum erlendis, og gat því fengið 20 prósent afslátt af kaupunum á íslensku krónunum. Þetta kemur fram í kvöð sem þing- lýst var á Grímstungu þar sem kaupendur fasteigna og jarða sem notuðu fjárfestingar- leiðina skuldbundu sig til að selja ekki þessar eignir í fimm ár eftir kaup þeirra. Milljón- irnar 85 sem notaðar voru til kaupanna á jörðinni hafa því fengist fyrir upphæð sem nam um 68 milljónum króna á sín- um tíma. Fjárfestingarleiðinni var komið á til að liðka til fyrir erlendri fjárfestingu á Ís- landi í kjölfar hrunsins 2008 og var hugmyndin að lokka erlent fjármagn til landsins. Vann með skuldsettar jarðir í ráðuneyti og keypti eina af bankanum Kaupin á Grímstungu í Vatnsdal, sem sést hér á mynd, voru fjármögnuð í gegnum fjárfestingarleið Seðlabanka Íslands en hún veitti þeim sem áttu fjármagn erlendis 20 prósent afslátt af íslenskum krónum. Jörðin Grímstunga fær nokkrar milljónir króna ári vegna leigu á veiðiréttindum í Vatnsdalsá í Húna- vatnshreppi í Húnavatnssýslu. Ingimar Jóhannsson, þáverandi skrifstofustjóri í sjávarútvegsráðuneytinu, keypti jörðina ásamt konu sinni árið 2012. Hann er einfaldega nýr í djobb- inu en ég get fullvissað hann um að hann eigi ekki að hafa svona miklar áhyggjur,” segir Birgitta Jónsdóttir kapteinn Pírata en Guðni Th. Jóhannesson forseti Íslands segir að erfitt geti orðið fyrir Pírata að mynda ríkisstjórn. Stjórnmálaflokkar þurfi að geta gert málamiðlanir en þegar flokk- ar séu jafn miklir hugsjónaflokkar og Píratar geti það reynst erfitt.“ Þetta kemur fram í viðtali við forsetann á Channel 4 í Bretlandi, en hann var þar á ferðalagi. “Hann er bara einfaldlega að fara framúr sér og ekkert meira um það að segja. Menn eiga ekki að gera sér áhyggjur fyrirfram,” segir Birgitta. Guðni einfaldlega nýr í djobbinu Lögreglumál Lögreglan leitar manns á sjötugsaldri sem ekkert hefur til spurst í tíu daga. Í síðasta samtalinu sem maðurinn átti við bróð- ur sinn kom fram að hann hefði verið rændur. „Ég vil helst bara fara út að leita að honum,“ segir Rósa Ólöf Svavars- dóttir, systir Valdimars Svavars- sonar sjómanns sem ekkert hefur spurst til í tíu daga. Ríkislögreglu- stjóri hefur sent fyrirspurn út til spænsku lögreglunnar en Valdi- mar var í fríi í Alicante þegar síðast heyrðist til hans. Valdimar, sem er 66 ára gamall, fór til Spánar í lok ágúst, og dvaldi á hóteli í strandbænum Albir. Valdi- mar hefur að ögn systur hans átt við áfengisvandamál að stríða, en hann féll á tveggja ára bindindi úti. „Hann hringir svo í bróður minn og segir honum að hann hafi ver- ið rændur,“ segir Rósa en bróðir Valdimars tók þá af honum loforð um að hann skyldi hringja aftur eft- ir að hann væri búinn að koma sér í skjól. Það símtal barst þó aldrei. Rósa segist hafa fengið fregnir af því að Valdimar hafi sjálfur ósk- að eftir því að komast heim fyrr en áætlað var við ferðaskrifstofuna sem hann ferðaðist með. Við því var orðið en honum var vísað úr fluginu og í kjölfarið var hann rændur. Ólöf segir að bróðir sinn hafi verið með allnokkra fjármuni á sér þegar hann var rændur. Þá var hann einnig með vegabréfið sitt. „Við vitum að hann var með mikla fjármuni á sér, og þeir hafa ekkert hreyfst samkvæmt banka- yfirlitum, þannig við óttumst það versta,“ segir Rósa. Eins og fyrr segir leitar lögreglan Valdimars. Hafi einhver lesandi upplýsingar um ferðir hans, getur sá sami haft samband við lögreglu eða Ólöfu í netfangið rosa.olof@ simnet.is. | vg Bróðirinn týndur á Spáni Valdimar Svavars-son er 66 ára gam-all. Ekkert hefur til hans spurst í tíu daga.

x

Fréttatíminn

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Fréttatíminn
https://timarit.is/publication/944

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.