Fréttatíminn - 17.09.2016, Qupperneq 8
8 | FRÉTTATÍMINN | Laugardagur 17. september 2016
Þegar þú bítur í lærisneiðina á sunnudaginn er gott að hafa í huga að aðrir eru búnir að bíta í hana á und-
an þér, hún er nánast hálfétin. Og
mjólkurglasið er hálftæmt. Þú ert
búin að greiða margfalt fyrir veislu-
borðið úr íslenskri náttúru og þótt
þú sér venjulegur ókræsilegur ís-
lenskur launaþræll sem sniglast um
með hús á bakinu, er ekki þar með
sagt að matvælaframleiðendur geti
ekki gert sér mat úr þér.
Nú þegar mikill minnihluti þing-
manna hefur skuldbundið okkur til
að greiða 140 milljarða til bænda og
stórfyrirtækja í landbúnaði og mat-
vælaframleiðslu og kjósendur nær
ganga af göflunum af æsingi korteri
fyrir kosningar, stígur sjávarútvegs-
og landbúnaðarráðherra Fram-
sóknarflokksins fram vatnsgreidd-
ur í sunnudagafötunum á forsíðu
Fréttablaðsins og færir okkur þær
fréttir að betra hefði verið að reikna
svolítið meira og rannsaka svolítið
meira, flýta sér aðeins hægar, áður
en búvörusamningarnir voru sam-
þykktir.
Þegar þessi orð ráðherrans og
kurteisleg hjáseta og fjarvera stjórn-
arandstæðinga og stjórnarliða sem
höfðu verið gagnrýnir á fyrirkomu-
lagið eru lögð saman, líður manni
eins og í gamalli gátu. Hvernig er
hægt að komast yfir ána, í bát, með
grimman úlf, lítið lamb og hey-
poka?
Það er búið að lögfesta samning-
ana til tíu ára og ekkert getur breytt
því nema bændur sjálfir komist að
þeirri niðurstöðu eftir þrjú ár, að
annað fyrirkomulag henti þeim bet-
ur. En það má telja nær öruggt að
það verði ekki ódýrara fyrir hinn
almenna borgara.
Það er nánast enginn, varla nokk-
ur maður á Alþingi, tilbúinn að axla
fulla ábyrgð á þessum búvörusamn-
ingi. Þegar sjálfur landbúnaðarráð-
herrann og fulltrúi bændaflokksins,
stígur fram og segir að undirbyggja
hefði mátt samninginn betur,
hvarflar að manni að veigamestu
ákvarðanir löggjafarþingsins séu
teknar annars staðar.
Er það virðing fyrir almannahags-
munum sem vakir fyrir ráðherran-
um sem er klemmdur milli tveggja
velgjörðarmanna sinna, kaupfélags-
stjórans í Skagafirði og formanns
Framsóknarflokksins?
Kaupfélag Skagfirðinga græðir
um milljarð á ári á samningunum
en hefur nú snúið baki við Sigmundi
Davíð, Kaupfélagið á líka Auðhumlu
sem á meirihlutann í MS sem græðir
2,5 milljarða á búvörusamningun-
um.
Kaupfélagsstjórinn er mettur.
En þótt ungir og efnilegir menn úr
kjördæminu eigi kaupfélagsstjóran-
um allt gott að þakka er ekki hægt
að neita því að meginástæða þess
að Gunnar Bragi er ekki að afgreiða
pylsur og kók á Sauðárkróki, heitir
Sigmundur Davíð.
Sigmundur Davíð sneri aftur
eins og feitur sauður af fjalli, eft-
ir að hafa verið rekinn burt, en nú
segir sagan að kaupfélagsstjórinn
vilji leiða hann til slátrunar í stað
þess að setja hann á. Annar hefur
tekið hans stað og sækir nú að for-
mennskunni, það er maðurinn sem
undirbjó búvörusamningana í fang-
ið á Gunnari Braga.
Ráðherrann er því ekki að tala við
almenning og hann er ekki að tala
fyrir almannahagsmunum. Hann
er að tala við skjólstæðinga flokks-
ins og hvessa sig fyrir vin sinn og
velgjörðarmann í aðdraganda próf-
kjörs fyrir norðan og flokksþings eft-
ir hálfan mánuð.
Ráðherrann vill koma því á fram-
færi þegar hann og átján aðrir þing-
menn hafa skuldbundið okkur til
að greiða sem svarar 14 milljörðum
á ári og hinir sátu hjá af kurteisis-
ástæðum til að spilla ekki stemn-
ingunni í boðinu, að það hafi ver-
ið eitthvað bogið við málið. Dæmið
hafi ekki verið reiknað til fulls.
Þessi samningur sem þingmenn
og ráðherrar vilja ekki taka ábyrgð
á kostar okkur um fjórðung þess
sem Alþingi ákveður að þurfi til að
reka Landsspítalann á hverju ári.
Nú erum við búin að hlusta á grát-
bólgnar yfirlýsingar stjórnarand-
stæðinga sem sátu hjá, þótt þeir í
hjarta sínu vildu gera eitthvað ann-
að og þá taka stjórnarliðar við og
segjast hafa samþykkt samninginn
þótt þeim fyndist málið vanreifað.
Þetta er hið svokallaða matvælaör-
yggi í boði Framsóknarflokks allra
landsmanna.
Þegar við kaupum í matinn er
mikilvægt að hafa í huga að hluti
kostnaðarins við máltíðina, rennur
til úlfanna sem hika ekki við að éta
litlu lömbin, sem eiga að gæta hags-
muna kjósenda, sem í þessu tilfelli
eru heypokinn.
Saman komumst við ekki yfir ána.
Þóra Kristín Ásgeirsdóttir
ÚLFUR, LAMB
OG HEYPOKINN
Köllunarklettsvegi 1, 104 Reykjavík. Sími: 531 3300. ritstjórn@frettatiminn.is
Útgefandi: Gunnar Smári Egilsson. Ritstjórar: Gunnar Smári Egilsson og Þóra Tómasdóttir.
Fréttastjóri: Þóra Kristín Ásgeirsdóttir. Ritstjórnarfulltrúi: Höskuldur Daði Magnússon. Dreifing: Póstdreifing. Framkvæmdastjóri
og auglýsingastjóri: Valdimar Birgisson. Fréttatíminn er gefinn út af Morgundegi ehf. og er prentaður í 83.000 eintökum í Landsprenti.
Húrra fyrir Búvörusamningum!
Íslenska þjóðarkusan heldur alsæl
af stað í safaríka bithaga.
KATRÍNARTÚNI 12 WOWAIR.IS WOWAIR@WOWAIR.IS
BOSTON f rá
15.999 kr.*
WASHINGTON D.C. f rá
15.999kr.*
SAN FRANCISCO f rá
23.499 kr.*
LOS ANGELES f rá
24.499 kr.*
ÞAÐ ER
FLUG
Á ÞÉR!
*Verð miðast við flug aðra leið með sköttum ef greitt er með Netgíró.
nóv. - mars
okt . - mars
nóv.-mars
okt .- mars
NEW YORK f rá
15.999 kr.*
nóv. - mars