Fréttatíminn - 17.09.2016, Síða 34
Chris Martin býr enn hjá Gwyneth
Slúðurvefurinn RadarOnline segir að Gwyneth
Paltrow og Chris Martin búi undir sama þaki þrátt
fyrir að vera skilin. Þau hafa fyrirkomulag á skilnaði
sínum sem þau kalla meðvitaðan aðskilnað. Chris
er með lykil af húsinu þeirra, sitt eigið herbergi og
hann kemur og fer eins og hann vill. En þau eiga
saman tvö börn 10 og 12 ára. Gwyneth er komin með
nýjan kærasta, Brad Falchuk, en þau vilja ekki hætta að hafa þetta fyrir-
komulag. „Nærvera Chris á heimilinu er mjög mikilvæg í þessu fyrirkomu-
lagi,“ segir heimildarmaður RadarOnline. Það er ein mikilvæg regla, Chris
verður að senda smáskilaboð til Gwyneth, áður en hann kemur heim, svo
hann lendi ekki í vandræðalegum uppákomum.
Blac Chyna ætlar að borða fylgjuna
Blac Chyna er að fara að eignast barn með Robert Kardashi-
an, sem er bróðir Kardashian systranna. Þetta verður fyrsta
barn Rob en Blac á barn fyrir. Blac ætlar að gera hlutina aðeins
öðruvísi núna en þegar hún átti fyrra barnið. Blac spjallaði við
Amber Rose í síðustu viku í þættinum hennar Amber, Loveline
with Amber Rose. Þar sagði hún að hún væri reyndari núna en
á fyrstu meðgöngunni og hún væri búin að vera að lesa sér til
um það að konur borða fylgjuna sína. Blac segist vera til í að
skoða það að borða sína fylgju því þetta sé gott fyrir konur og benti á það
að flest dýr gera þetta þegar þau hafa eignast afkvæmi.
Sharon Osbourne fékk taugaáfall
Snemma í vikunni sagði Sharon Osbourne frá því að hún
hefði fengið taugaáfall á síðasta ári. „Ég hafði gefist upp
og gat ekki tekist á við neitt. Ég var mjög hrædd um hvað
væri að gerast í hausnum á mér og allar hugsanirnar sem
voru sífellt í huga mér,“ sagði Sharon. Hún sagði frá þessu
og sagðist hafa rankað við sér á spítala og ekki hafa vitað
neitt í sinn haus í þrjá daga. „Ég vissi ekkert, ég gat ekki
hugsað, gat ekki talað eða gert nokkuð. Heilinn á mér var
bara í fríi,“ sagði hún. Sharon segir að fjölskyldan hafa
reynst henni ómetanleg og staðið við hliðina á henni allan
tímann. Ozzy, eiginmaður hennar, kom henni á spítala og sonur hennar,
Jack, kom henni til bestu mögulegu læknanna.
Sólrún Lilja Ragnarsdóttir
solrunlilja@amk.is
Ég fékk bara símtal frá henni Manúelu og hún bað mig um að taka þetta að mér, sem var sjálfsagt mál af minni
hálfu,“ segir Eva Ruza Miljevic,
sem sló í gegn sem kynnir á Miss
Universe Iceland keppninni sem
fór fram í Gamla bíó á mánudags-
kvöld. En Manúela Ósk Harðar-
dóttir var einn af aðstandendum
keppninnar. Eva er reyndar ekki
óvön því að standa á sviði, en hún
var til að mynda kynnir í Color
run hlaupinu í sumar, ásamt fleiri.
„Ég hafði samt aldrei prófað að
gera eitthvað svona og það er alltaf
gaman að prófa að gera eitthvað
nýtt. Í Color run vorum við þrjú
að peppa tólf þúsund manns en
þarna var ég ein á sviðinu. Það var
ekkert í boði að skíta á sig,“ segir
hún og skellir uppúr.
Upplifði prinsessudag
Eva klæddist glæsilegum silfurlit-
uðum pallíettukjól og himinháum
hælskóm, en það sem hún óttaðist
mest áður en hún steig á svið var
að hún myndi detta um sjálfa sig í
skónum. Hún er nefnilega ekki vön
að klæðast slíkum skóbúnaði. „Ég
er alls ekki feimin að vera á sviði
en ég hafði töluverðar áhyggjur
af þessum hælum. En ég stóð í
lappirnar allan tímann. Þetta var
annars voðalegur prinsessudag-
ur fyrir mig, sem lifi dagsdaglega
bara þessu venjulega mömmulífi.
Ég er tvíburamamma sem þarf að
skutla og sækja á æfingu, þrífa,
elda mat, láta krakkana læra og
allt það, þannig það er mjög gam-
an að fá einn dag þar sem maður
er tekinn í greiðslu og förðun og
klæðist glimmerkjól. Það er eng-
um sem finnst það leiðinlegt.“
Karakterinn fékk að njóta sín
Eva fékk staðlað handrit á ensku í
hendurnar frá eigendum keppn-
innar úti, en hún þurfti í megin-
atriðum að fara eftir því. „Þessi
Miss Universe keppni er alveg risa-
stórt batterí þannig það þarf að
fylgja ákveðinni uppskrift að því
hvernig þeir vilja að keppnin sé.
Keppnin fór samt 97 prósent fram
á íslensku, ef ég á að giska á
prósentutölur. Ég kynnti stelpurn-
ar á ensku, spurði þær spurninga
og þær svöruðu á ensku. Ann-
að var á íslensku,“ segir Eva sem
þýddi handritið sjálf og hennar
karakter fékk því að njóta sín. „Ég
fékk þau fyrirmæli að ég ætti að
gera það. Ástæðan fyrir því að
þau fengu mig til gera þetta var sú
að þú vildu fá minn karakter. Ég
átti að gera þetta að mínu, sem ég
gerði.“
Dómararnir skellihlógu
Eva segir það hafa verið mjög
skemmtilega reynslu að kynna
keppnina, en viðurkennir að hún
hafi verið pínu stressuð áður en
hún steig á svið. „Fyrst þegar ég
steig á svið þá fann ég hvernig
adrenalínið pumpaði út í æðarnar
og ég var aðeins stíf í öxlunum. En
fljótlega slaknaði á öllu og ég datt í
sjálfa mig. Dómarnir komu einmitt
til mín eftir keppnina og hrósuðu
mér. Þeir voru skellihlæjandi
allan tímann þó þeir skildu ekkert
hvað færi fram. Þeir náðu meira
að segja að tengja við íslensku
brandarana. Mér leið mjög vel að
heyra það og ég held að ég geti
sagt: „My mission was completed.“
„Það var ekkert í boði
að skíta á sig“
Eva Ruza var kynnir á Miss Universe Iceland keppninni og kom
dómurunum ítrekað til að hlæja þrátt fyrir að þeir skildu ekkert hvað
hún var að segja.
Prinsessa í einn dag Eva fékk smá frí frá
mömmulífinu, lét farða sig og greiða og
klæddist silfurlituðum pallíettukjól.
Katy Perry aðstoðaði systur sína
við að koma barni heimi í vikunni.
Þetta eru nokkrar fréttir en hið
fréttnæma er ef til vill að þetta
er í annað sinn sem hún hjálpar
henni í fæðingu. Eldri systir Perry,
Angela Hudson, eignaðist frum-
burðinn sinn fyrir rúmum tveim-
ur árum og þá var poppstjarnan
einnig til staðar til þess að hvetja
stóru systur áfram. Perry tvítaði
um seinni fæðinguna þegar hún
var um garð gengin þar sem hún
sagðist hafa tekið á móti barni
klukkan 2 eftir hádegi og var kom-
in í stúdíó klukkan átta. Þessa
dagana er nóg að gera hjá söng-
konunni svölu, nýtt efni á leiðinni
frá henni hvað úr hverju, auk þess
sem hún nýtir frístundir til þess
að knúsa kærastann sinn, Orlando
Bloom. Sögusagnir þess efnis að
samband þeirra hefði liðið undir
lok voru stórlega ýktar en Bloom
er afar duglegur að birta myndir af
þeim turtildúfunum við hin ýmsu
athæfi á instagram reikningi sín-
um. Þess má geta að Katy breytti
nafninu sínu í Katy Perry úr Katy
Hudson þegar frægðarsól hennar
hóf að sýna glæður sínar þar sem
á þeim tíma var fyrir á vellinum
Kate Hudson sem var orðin þekkt.
Katy Perry tekur
á móti öðru barni
Aðstoðar systur sína í fæðingu í annað sinn.
Fjölhæf Katy Perry tekur á móti börnum milli þess sem hún tekur upp nýtt efni og knúsar
Orlando Bloom.
Góð viðbrögð Dómararnir skellihlógu af bröndurum Evu og hrósuðu henni í hástert eftir
keppnina.
…fólk 2 | amk… LAUGARDAGUR 17. SEPTEMBER 2016