Fréttatíminn - 17.09.2016, Side 38
Sólrún Lilja Ragnarsdóttir
solrunlilja@amk.is
Rósa Guðbjartsdóttir, bæjarfulltrúi í Hafnar-firði, sendi á dögunum frá sér bókina Hollt nesti - morgunmatur og milli-
mál. Rósa hefur skrifað um mat í
blöð og tímarit í næstum tuttugu
ár og hefur gefið út nokkrar mat-
reiðslubækur svo hún er enginn ný-
græðingur þegar kemur að matar-
gerð.
„Ég er alltaf að spá og spekúlera
í nýjum uppskriftum og nýjum
möguleikum. Síðustu ár hef líka
tekið mikið af myndum, þannig ég
er alltaf með eitthvert efni í vinnslu.
Bókin er því samsafn uppskrifta sem
ég hef sjálf unnið með í eldhúsinu
með krökkunum mínum í gegnum
árin,“ segir Rósa um tilurð upp-
skriftanna í bókinni. „Ég er alltaf að
reyna að hafa nestið hjá krökkunum
fjölbreytt og girnilegt og þannig að
það gefi þeim réttu orkuna. Það er
svo mikilvægt að nestið og millimál-
ið sé hollt og næringarríkt, og hafi
góð áhrif á blóðsykurinn. Ég hugsa
uppskriftirnar út frá því, það er
enginn hvítur sykur eða hvítt hveiti
notað. Ég er mikið með fræ, hnet-
ur og hafra sem við vitum að gefur
góða orku.“
Dóttir Rósu, Margrét Lovísa, hef-
ur líka mikinn áhuga á matargerð og
hefur síðustu ár hugað vel að holl-
ustunni. „Hún á nokkrar uppskriftir
í bókinni og vann með mér að þessu.
Uppskriftirnar eru því hugsaðar
þannig að stálpaðir krakkar og ung-
lingar eigi auðvelt með fylgja þeim,“
segir Rósa, en hver uppskrift inni-
heldur ekki mörg hráefni. Þá notar
hún einföld hráefni sem við þekkj-
um langflest og eru til í skápunum
heima. „Mér finnst mikilvægt að
þetta sé einfalt, bæði hvað hráefni
og vinnslu varðar. Ef manni dettur
Hægt að gera mjög hollt
úr einföldum hráefnum
Einfalt Það er einstaklega auðvelt að útbúa
þessi stykki, þau þarf ekki einu sinni að baka.
Orkustykki með kókos
og trönuberjum
- sem ekki þarf að baka
5 dl hafraflögur
½ dl kókoshveiti
½ dl kókosmjöl
50 g smjör
1 tsk. vanilludropar
1 dl hunang, fljótandi
1½ dl kókosolía, fljótandi
1 dl möndlur, smátt saxaðar
1 dl þurrkuð trönuber, söxuð
1. Blandið saman í stórri skál
hafraflögum, kókoshveiti og
kókosmjöli.
2. Bræðið smjör og blandið saman
við vanilludropa, hunang og
kókosolíu.
3. Hrærið síðan þurrefnum og
vökvablöndu vel saman.
4. Bætið möndlum og trönuberjum
saman við.
5. Setjið blönduna í form og
þrýstið vel og jafnt niður.
6. Kælið í a.m.k. 2 klukkustundir
og skerið í bita.
7. Geymist í lokuðu íláti í kæli.
Girnilegar Hollar og góðar múffur eru
tilvaldar sem millimál.
Haframúffur með
banönum og kókos
12 stk.
8 dl hafraflögur
1 dl kókosmjöl
1½ tsk. lyftiduft
½ tsk. matarsódi
3 egg
1 dl hunang eða hlynsíróp
2 vel þroskaðir bananar, maukaðir
200 g grísk jógúrt
½ tsk. vanilludropar
1. Hitið ofninn í 200 gráður.
2. Blandið þurrefnum saman í skál.
3. Hrærið egg, hunang, banana,
jógúrt og vanilludropa saman í
annarri skál.
4. Blandið síðan öllu saman.
5. Skiptið deiginu í múffuform og
bakið í 20 mínútur.
Mæðgur hjálpast að Rósa og dóttir hennar, Margrét Lovísa, deila áhuganum á matargerð
og sú yngri á nokkrar uppskriftir í bókinni.
Rósa Guðbjarts sendir frá sér nýja matreiðslubók með áherslu á nesti
og millimál. Allar uppskriftirnar eru hollar og einfaldar þannig að
stálpaðir krakkar og unglingar eiga auðvelt með að fylgja þeim.
í hug að búa til orkustykki þá á það
ekki að þýða að maður þurfi að fara
út í búð og leita að allskonar skrýtn-
um hráefni. Það er hægt að gera
mjög hollt úr einföldum hráefnum.
Bókin á að höfða til almennings sem
vill hafa matarræðið í hollari kantin-
um. Það eru engar öfgar.“
Þegar Rósa útbýr mat fyrir fjöl-
skylduna reynir hún að nota tiltölu-
lega hreint hráefni og kynnir það
fyrir börnunum. „Það er mjög gott
að fá þau til liðs við sig með því að
láta þau hjálpa til að sjá um nestið
sitt. Í bókinni eru til dæmis nokkr-
ar uppskriftir að orkustykkjum sem
þarf ekki einu sinni að baka. Það er
mjög þægilegt fyrir krakka. Þau hafa
líka bara svo gaman af því að gera
þetta.“
…heilsa 6 | amk… LAUGARDAGUR 17. SEPTEMBER 2016
Netlu-, túnfífla- og birkilaufstöflur
örva brennslu og meltingu og eru
bjúglosandi. Sérstaklega er mælt
með vörunni til að hreinsa líkamann.
Colonic Plus
Kehonpuhdistaja
www.birkiaska.is
www.birkiaska.is
Bodyflex Strong vinnur gegn stirðleika
og verkjum í liðamótum og styrkir
heilbrigði burðarvefja líkamans.
2 hylki tvisvar á dag í tíu daga. Síðan er hægt
að minnka skammt í 2 hylki á dag. Inniheldur
hvorki laktósa, ger, glúten né sætuefni.
Bodyflex
Strong